Samfélagsmiðlar og sýnileiki

Það eru um það bil tuttugu ár síðan ég byrjaði að blogga, fyrst á blogspot. Nokkrum árum síðar færði ég mig hingað á Moggabloggið og var mjög iðin við að blogga fyrstu árin. Eftir að ég hætti í blaðamennskunni, nema sem frístundablaðamaður endrum og sinnum (og þá aðallega fyrir Læknablaðið), hafði ég óttalega þörf fyrir að skrifa um hitt og þetta, og bloggið hentaði mér vel. Svo kom fyrir að ég notaði bloggið til að vekja athygli á myndlistinni sem hefur fylgt mér alla tíð, en eitt vel virkt myndlistartímabil féll einmitt saman við fyrstu bloggárin mín.

2023-03-29_01-37-18

Svo vel fann ég mig í blogginu að ég var einna seinust í fjölskyldunni að fara yfir á Facebook (FB). Var vinsamlegast bent á að ég væri að dragast afturúr ýmsum fjölskyldumeðlimum í þeim efnum. Auðvitað eigum við okkar staðföstu fulltrúa samfélagsmiðlaleysisins líka, skárra væri það nú. Facebook varð smátt og smátt aðalvettvangurinn á samfélagsmiðlum en ég hætti aldrei alveg að blogga. Snemma þessa árs íhugaði ég alvarlega að hætta á Facebook enda var ég komin með eitthvað um 1700 vini þar og þekkti kannski ekki nema helminginn og þar af ekkert mjög marga vel. Það hleypti góðu lífi í bloggþörfina, sem alltaf blundaði. Af praktískum ástæðum sneri ég þó aftur á Facebook, tengsl við ýmsa hópa og gamall vani réði þar mestu um, en með miklu færri FB-vini og talsvert minni virkni.  

2023-03-29_01-42-28

Þegar ég var í Córdoba um daginn var ég mikið spurð um hvað ég héti á Instagram og þurfti, ekki í fyrsta sinnið, að rifja það upp, því þann samfélagsmiðil hef ég ekki mikið notað, kannski álíka og Twitter og WhatsApp. Var þá upplýst um að myndlistarfólk notaði Instagram mjög mikið, svo ég fór að glugga og setja inn eina og eina færslu. Hafði reyndar stundum þegið að framsenda FB færslurnar mínar yfir á Instagram núna í seinni tíð. Þær eru allar á íslensku, en nú tók ég þá ákvörðun að nota Instagram sem enskumælandi samfélagsmiðlavettvanginn minn. Er að prófa mig áfram núna, enda sé ég að margir Íslendingar nota miðilinn á svipaðan hátt. Hér er ég sem sagt, með óskýra kynningarmynd úr Córdoba-ferðinni, til að tengja við fólkið sem ég hitti þar. https://www.instagram.com/annari19/

2023-03-29_01-16-57

WhatsApp var reyndar í upphafi covid farvegur fyrir skemmtilega iðju. Þá datt ég inn í öflugan fjölþjóðlegan vatnslitahóp sem varð til í hjarta fyrsta covid-fársins í Evrópu, sem sagt á Norður-Ítalíu. Nokkrir öflugir myndlistarkennarar, meðal annarra formaður Vatnslitafélagsins okkar hér á landi, skiptust á að setja fyrir vikuleg verkefni, yfirleitt vatnslitaútfærslu af gömlum og nýjum olíumálverkum, og þetta birtist allt vikulega á sameiginlegum WhatsApp-þræði, án málalenginga. Mjög gaman að taka þátt í því, en það fjaraði út hjá mér alla vega á öðru ári framtaksins. En það var margt ansi skemmtilegt sem við glímdum við á þessu inniverutímabili, sem hitti einmitt á tímann meðan ég var á eftirlaunum og áður en ég byrjaði í núverandi vinnu. Eitt sýnishorn fær að fljóta með.

unnamed (1) 


Erindi til Amsterdam

Það má segja það sama um kynni mín af Amsterdam, þar til fyrir þremur árum, og kynni mín af Hamborg áður en ég fluttist þangað blómann úr árinu 2015, þar hafði ég alloft farið um en aldrei stoppað, fyrr en Óli sonur okkar Ara settist þar að snemma árs 2020. Síðan hef ég átt bæði mörg og góð erindi þangað og lært að meta þessa fallegu borg, ekki síst umhverfið í gamla miðbænum þar sem Óli okkar hefur búið nánast frá fyrstu vikum í borginni. Gatan hans er lítil, friðsæl en þó steinsnar frá iðandi mannlífi og skemmtilegum stöðum, söguríkjum og mannlífsauðugum. Út um svefnherbergisgluggann blasir við næsta síki og út um gólfsíðan stofuglubbann sem opna má í góðu veðri, sjást marga alda gömul hús eins og það sem hann býr í og þessi stórfíni, ítalski veitingastaður sem vissi ekki hvort hann væri opinn eða lokaður meðan covid-bylgjan reið yfir. Þarna er kvikmyndatökufólk stundum á ferli, því götumyndin er vel varðveitt og fýsileg til kvikmyndatöku. 

IMG-2002 (2)

Við höfum verið sæmilega dugleg að skoða list af ýmsu tagi, aðallega á söfnum, enda gnótt tækifæri til þess, siglt bæði í skipulegum ferðum og á eigin vegum á síkjunum og hafnarsvæðinu, þarna er til dæmis sail-inn pítsustaður, ekki ósvipuð sail-inn sjoppunni í Winterhude í Hamborg. Annað sem við höfum gert saman þegar ég hef lítið við í heimsókn, er að fara í einhver af ótal kvikmyndahúsum og því að þakka að stundum er ég búin að sjá kvikmyndir meðan þær eru enn á toppi vinsældanna, jafnvel stundum áður en þær koma heim til Íslands, sem ég hélt að væri liðin tíð. Líka fágætari myndir sem ekki eru á streymisveitum, og þessir leiðangrar hafa leitt okkur út um allt. Nýlega komin úr seinustu heimsókninni til Amsterdam og býst ekki við að fara þangað aftur fyrr en í júní þegar ég fer á vatnslitanámskeið (aftur hjá Alvaro Castagnet). Hef ekki verið mikið í útimálun í borginni enn, nema auðvitað á útikaffihúsum, þar sem ég tek gjarna upp blokkina mína og ferðasettið. 

IMG-2092

Áður en ég hætti (seinast) á eftirlaunum og fór að vinna venjulega vinnudaga rápaði ég út um alla borg meðan Óli var að vinna og fannst ég sífellt vera að finna nýjar og nýjar slóðir og gera nýjar uppgötvanir. Hlakka til að halda því áfram næst þegar ég fer á eftirlaun. 


Lucian Freud - hendurnar og ættingjarnir - og pínulítið lærastutt

Spánarferðin mín fyrr í mánuðinum ætlar að verða mér minnisstæð í meira lagi. Vegna beina flugsins til Madrid og ódrepandi áhuga ferðafélaga míns, Ragnars Hólm, á borginni fögru var Madrid fyrri áfangastaður okkar í ferðinni og sömuleiðis lokastopp. Ég reyndar breytti minni ferðaáætlun staðráðin í að taka enga sjansa vegna yfirvofandi (og skömmu síðar aflýstra) verkfalla, verkbanna og yfirvinnubanns sem einkum tók til flugvallarstarfsmanna. Til Córdoba ætlaði ég hvað sem tautaði og raulaði. Fór því fyrst og tímanlega til sonarins í Amsterdam í leiðinni og náði meira að segja afmælinu hans þar. Madrid var líka skemmtileg, þangað hafði ég ekki komið síðan við mamma gerðum þar stuttan stans haustið 1959. Þá fór ég í mína fyrstu flugferð, frá Malaga til Madrid. Gerðum stuttan stans í hrikalegum hausthita, sáum magnaða spánska dansa og ein áhorfenda á þeirri sýningu (þetta var um miðjan dag, sem eftir á að hyggja hljómar ekki rétt) fékk sólsting svo uppi varð fótur og fit, og mamma var áhyggjufull yfir því að ég hefði fengið snert af hinu sama, þrátt fyrir að ég ætti glæsilegan stráhatt. Kannski var hann niðurpakkaður í tösku. Svo tókum við lestina til Parísar og hittum þar Ólaf, sem ég hafði þá þegar valið sem þriðja eiginmann mömmu, en hann var nýkominn frá okkur eftir mánaðardvöl í Andalúsíunni góðu. 

Og svo var ég aftur komin til Madridar. Í þetta sinn ákvað ég að fara mér ekki of geyst, fyrir utan bráðnauðsynleg ferðatöskukaup, eftir að mín, sem var full af litum, penslum, trönum og fleiru, varð óökufær, og smá eltinbgaleik við Bodysjoppur bæjarins lét ég mér duga að fara á tvö söfn, Thyssen og Reina Sofia, því nú skyldi Gurenica skoðuð, og það var líka gert. Á Thyssen er nú merkileg yfirlitssýning á verkum Lucian Freud, listamanns sem lengi hefur verið í miklum metum hjá mér. Hann málaði einmitt myndir af Thyssen þessum, 1981 og 1985. Þrátt fyrir það var það ekki fyrr en á þessari sýningu að ég gerði þá uppgötvun að fara að skoða sérstaklega hendurnar á fólkinu sem hann málaði. Ferðaðist milli stórbrotinna handa um alla sýninguna en missti ekki af myndunum í heild, nei, nei, alls ekki. En þessar hendur!

2023-03-25_02-16-08

2023-03-25_02-13-22

https://www.newyorker.com/magazine/2021/02/08/lucian-freud-and-the-truth-of-the-body

Við ferðafélagarnir vorum eitthvað að spjalla um ætterni Lucians, sem var barnabarn Sigmundar Freud og flutti með fjölskyldunni fyrir seinna stríð til London. Hann var fæddur 1933 og allt í einu rann það upp fyrir mér að líklega hefur Gagga Lund frænka mín þekkt hann sem barn, en hún þekkti alla fjölskyldu Sigmundar Freud vel á Lundúnarárum sínum.

gagga

Og svo mundi ég líka eftir alveg stórmerkilegu erindi Sophiu Freud, sem fædd var 1924, annars barnabarns Sigmundar, sem ég heyrði á alþjóðlegri draumaráðstefnu sem ég sótti sem blaðamaður í London 1989, hundkvefuð eins og núna. Sophie er nýlega látin í hárri elli, en hún var sálfélagsfræðingur þekkt meðal annars fyrir gagnrýna greiningu á sálgreiningarkenningum afa síns. Einhvern veginn skreppur heimurinn svolítið saman í svona tilfellum. Þrátt fyrir hundkvefið fannst mér gaman að hlusta á Sophie á sínum tíma, draumar voru auðvitað viðfang ráðstefnunnar sem við vorum á og afinn eyddi miklu púðri í þá. Það var sterkur feminiskur tónn í erindi Sophie, sem höfðaði mikið til mín. Og ég ætla að treysta því að Gagga frænka hafi þekkt hana líka á unglingsárum Sophie, það væri alla vega gaman. Nógu skemmtileg var hún við mig þegar ég man fyrst almennilega eftir henni en það var í Álfheimunum hjá pabba og Dolindu konu hans, og Gagga hafði sko kappnógan tíma til að spjalla við unglinginn mig, en það var einmitt í einni af nokkrum fermingarveislum sem mér áskotnuðust fermingarárið mitt. Eina sem setti mig aðeins út af laginu var þegar hún spurði mig á fínustu íslensku hvort ég væri lærastutt, hmmm, þar til ég mundi að stuttir kjólar eins og þá voru í tísku hétu á dönsku: lårkort. Þann vísdóm hafði ég sem betur fer tekið inn gegnum tímaritið Vi unge.

Heimurinn er lítill og samt svo stór. 

https://www.washingtonpost.com/obituaries/2022/06/07/sophie-freud-granddaughter-psychoanalysis-dead/


Aratunga á Rarotonga

Eyjan Rarotonga í Cook-eyjaklasanum í Suður-Kyrrahafi er alveg klárlega sérstakasti staðurinn sem ég hef komið til. Í heimsferðinni okkar mömmu 1989 á heimleið frá frá Nýja-Sjálandi, þar sem við heimsóttum Möggu frænku, gátum við valið hvort við stoppuðum þar í ca 40 mínútur eða viku. Svo tíðar voru ferðirnar þangað. Við völdum vikuna og sáum ekki eftir því, þótt við höfum ekki beinlínis lent þar í sólarferð, skúrir flesta daga nema þann fyrsta og þægilegur hiti kringum 30 gráðurnar. Sjórinn alveg yndislega mátulegur. 

raro

Þetta var einn þriggja áfangastaða á litlum eyjum í Suður-Kyrrahafi, lengsta stoppið og skemmtilegasta umhverfið. Eyjan er eiginlega bara eitt, frekar lítið fjall og smá láglendi í kring, um það liggur hringvegurinn sem er 33 km á lengd og þar fara allir sinna ferða á skellinöðrum, eða gerðu það þegar við vorum þar. Ég leigði eina slíka, en til að fá að nota hana þurfti ég að kaupa mér ökuskírteini, sem ég gerði auðvitað. Snattaði eftir nauðþurftum og fannst ég vera orðin heimamanneskja. 

539674_4207579066189_537983692_n

Okkur hafði verið sagt að það væri tvennt sem við ættum að gera, fá okkur ökuskírteini og fara í kirkju. Ekkert sérlega kirkjuræknar en þar sem það var einmitt kirkja við hliðina á gististaðnum okkar, The Edgewater Resort and Spa, gerðum við það á sunnudeginum. Komum reyndar og fórum á þriðjudegi (en lentum á Tahiti á mánudeginum á undan brottförinni frá Raró, og hefðum verið gistingarlaus síðari aðfaranótt þriðjudags ef ég hefði ekki fattað að við vorum að fara yfir daglínuna). 

Kirkjan var fín og messan frjálsleg, konurnar mættu í sínu fínasta pússi með blómahattana sína, en það var eitt af því sem við áttum að taka eftir. Presturinn sagðist vera launaður eftir því sem honum gengi að halda uppi heilbrigðu unglingastarfi, ekki verra en hvað annað. 

Trúboðarnir sem komu til Raró voru frjálslegri en margir þeirra sem fóru um nágrannaeyjar og voru með sama hátt og Þorkell Ljósvetningagoði, fólki var áfram heimilt að blóta í laumi, í þessu tilfelli var það að dansa sína heiðnu dansa, en hvergi í Suður-Kyrrahafi þykir dansmenntin betri. Þrátt fyrir dálítinn skort á samanburði get ég alveg staðfest það. Á Fiji voru það karlar sem sáu um dagsinn og hann alls ólíkur þessum, líka góður en bara ekki eins góður. 

unnamed (3)

Hvorug okkar mömmu er gefin fyrir skordýr, en einhvern veginn lifuðum við þessa viku stórra skordýra af. Ég taldi mig vera lífvörð mömmu gagnvart kóngulóm, en þegar risastór kakkalakki flaug á mig undan símanum fyrsta kvöldið dró ég rúmið út á gólf og öll lök kyrfilega upp. Fljúgandi kakkalakkar, já! Og það sem meira er, þegar þeir fljúga þykir það, samkvæmt þjóðtrú Cook-eyjaskeggja, vita á rigningu, en daginn eftir fór einmitt að rigna. 

529648_4207426742381_1743948912_n (1)

Í höfuðborginni, Avarua, rakst ég á nokkurs konar ,,Aratungu" og mamma smellti auðvitað af mér mynd sem ég gat sýnt Ara mínum þegar heim var komið. Ekki var það nú verra. 

Við sem höfum ferðast og lesið bækur þurfum aldrei að láta okkur leiðast, meira að segja ekki á síð-pestardögum, alltaf gott að grípa næstu minningu og stundum líka að setja hana á blogg. 

 


Minningar frá Andalúsíu

Nýkomin frá Andalúsíu og kynntist enn nýrri borg og nýrri hlið á þessum indæla hluta Spánar. Í þetta sinn Córdoba og lítillega nágrenninu.  

335643939_765603221630973_3470375638173347529_n

Kynni mín af Andalúsíu ná langt aftur, hef eflaust verið eina sex ára barnið árið 1959 sem sigldi með saltfiskdalli frá Keflavík til Gíbraltar snemma árs til hálfs árs dvalar í Andalúsíu með mömmu sinni og ömmu. Við tókum á leigu tvö lítil raðhús í Torremolinos og þar með fjölgaði útlendingunum þar í bæ um meira en helming, en á pensjónatinu niðri í bæ bjó Ameríkani og í stærsta raðhúsinu við hliðina á húsinu okkar mömmu bjó þýskur rithöfundur. Í hans garði var lítil sundlaug og hann varaði okkur við að styggja hermenn og lögreglu enda var þetta á Franco-tímanum. Það var ekki fyrr en um haustið þegar við vorum að fara að farið var að byggja hótel og undirbúa þann mikla ferðaiðnaði sem hefur einkennt bæinn æ síðan. Ég eignaðist góða vinkonu, Carmen, sem var nokkrum árum eldri en ég og undi hag mínum vel í þessum litla bæ, ströndin á daginn og prófaði að fara á bak á asnanum á vegamótunum (við bjuggum ,,hinu megin við asnann").

IMG_5313

Þótt bærinn okkar væri góður fannst mér enn meira gaman þegar við fórum til Malaga, en það gerðum við af og til. Mest spennandi fannst mér að fara á nautaat, en mamma las Andrésblöðin sem voru ætluð mér meðan á leiknum stóð. Hátindur dvalarinnar var hins vegar þegar við fórum til Granada og skoðuðum Alhambra-höllina fallegu og alla garðana. Mér fannst þessi minnisvarði um máratímann alveg stórkostlegur og yfir höfuð spennandi að heyra um þetta sérstaka ríki máranna á Pyreneuskaganum. 

IMG_5323 (2)

Síðan hef ég nokkuð oft komið til Spánar, en ekki aftur til Andalúsíu fyrr en við Ari fórum til Sevilla síðla árs 2015. Það var verulega skemmtileg ferð og við skoðuðum allt sem við gátum á þessum 4-5 dögum sem ferðin varði. Þremur árum síðar skrapp ég í skottúr til Torremolinos og Malaga, en hélt þá aðallega til norðar á Spáni. Stóðst ekki mátið að skjótast og það var virkilega gaman, ekki margt en þó ekki ekkert sem ég þekkti frá fyrri tíð. Malaga hefur ekki breyst neitt rosalega, ég sá meira að segja hvar við höfuðum farið á nautaatið forðum, og turninn í Torremolinos stendur enn og gamla aðalgatan er (rétt) þekkjanleg. 

20151107_123857

Þegar ljóst var að ég væri á leið til Córdoba á stóra vatnslitasýningu og -hátíð núna í þessum mánuði var ég yfir mig spennt að sjá þessa borg sem virtist ekki síðra minnismerki um máramenninguna en Granada. Það reyndist rétt vera og ég verð áreiðanlega í vikur eða mánuði að vinna úr öllum þeim áhrifum sem ég tók inn á tæpri viku í þessari sögufrægu menningarborg. Sýningin sjálf var haldin í Palacio de la Merced, sem er að stofni til frá því snemma á 13. öld en hefur tekið miklum breytingum og er núverandi bygging talin frá 1752. 

336224550_779711367197039_630428960778117475_n

Við fórum meðal annars á merkilegt fornleifasvæði, Medina Azahara, þar sem verið er að grafa upp stjórnsýsluborgina frá 10. öld, rétt utan við Córdoba. Saga máranna í Córdoba nær aftur til 711 og ríki þeirra emíra og kalífadæmi er eldra en það sem síðar reis í Granada. Annars á ég gríðarlega margt eftir ólesið um þessa merkilegu sögu og eins og svo oft þegar ég kem á merkilegar söguslóðir, þá bæti ég smátt og smátt í sarpinn og tengi við eigin myndir og minningar.

336256180_156883810608325_8529884551395580330_n

Það var líka gaman að skoða moskuna stóru sem breytt hefur verið í dómkirkju, að mér skilst einstök endurnýting, þótt mér finnist einhvern veginn að það hljóti að finnast fleiri dæmi. Þarf að fara að lesa skrif Örnólfs Árnasonar betur um Andalúsíu, með þessa nýju upplifun í farteskinu, og svo ótal margt fleira.

Einu sinni sagnfræðingur, ávallt sagnfræðingur, því sagan er svo stór og sagnfræðin sem kennd er bara brotabrotabrot af öllu því sem hægt er að kynna sér.   

 


Komin heim frá Córdoba; hreppti 2. verðlaun á alþjóðlegu vatnslitahátíðinni þar

Seinsta bloggið mitt fjallaði um alþjóðlegu vatnslitahátíðina sem ég var á leið á í Córdoba á Spáni. Hún var á vegum IWS - International Watercolor Society. Leit fyrst og fremst á hana sem sýningu og tækifæri til að kynnast öðru listafólki sem fæst við vatnslitamálun. Gaf því lítinn gaum að þetta var líka alþjóðleg vatnslitasamkeppni, enn síður átti ég von á að hreppa verlaun, en var í öðru sæti þegar upp var staðið. Mætti á verðlaunaafhendinguna af því ég mætti einfaldlega á alla viðburði sem ég komst á. Viðurkenni suð fyrir eyrum og hálfgert að hafa dottið úr sambandi þegar ég heyrði kynninn bögglast á litla, sæta, íslenska nafninu mínu og sá myndina mína og nafnið (óbrenglað en stytt) uppi á skjánum.

335419064_1434667080405999_1409831614014337760_n

 

Það var ekki um að villast, þetta var veruleiki. Þetta var mjög metnaðarfull hátíð og ég var búin að sjá gríðarlega sterk og góð verk þarna, en sýnendur voru 212 frá 42 löndum. Þannig að þetta kom mér einfaldlega alveg í opna skjöldu. Tókst þó að halda skammlausa þakkarræðu sem var jafnóðum þýdd á spönsku eins og allt efni hátíðarinnar, sem stóð í heila viku (hátíðin, ekki ræðan) og þar af með virkri og efnismikilli dagskrá síðustu fjóra dagana. Vönduð sýningarskrá var býsna þung í farangri á heimleiðinni en verður skoðuð í þaula og sýnir breidd og gæði sýningarinnar. Enginn efi á því að ég mun fjalla meira um þetta ævintýri á blogginu mínu, en mér finnst ég vera nýlent, kom heim í nótt um Madrid. 


Á leið á alþjóðlega vatnslitasýningu í Córdoba á Spáni í næstu viku

Í dag legg ég upp í ferðalag sem ég hef hlakkað talsvert til að fara í. Leiðin liggur til Córdoba á Spáni með stuttri viðkomu í Madrid og ögn lengri í Amsterdam að heilsa upp á son minn sem hefur verið búsettur þar síðastliðin þrjú ár, en svo vill til að hann á afmæli á laugardaginn. 

Þegar auglýst var á FB-síðu Vatnslitafélagsins eftir umsóknum í þátttöku í þessari sýningu, þá fannst ég mér einmitt eiga réttu myndina á sýninguna. Það reyndist rétt vera, því hún var tekin inn og hana sendi ég á undan mér fyrir margt löngu (eins gott að hún hafi skilað sér). 

Þetta er heil hátíð, stendur í næstu viku og að minnsta kosti þrír leiðangrar í útimálun með fólk alls staðar að úr heiminum. Spáin hvort góð né vond, ennþá. 

Mun láta í mér heyra hér um þetta ævintýri, ef tími vinnst til. Þangað til, myndband af því sem framundan er.

 

Alþjóðlega vatnslitasýningin í Córdoba


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband