Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2012

Ekki alveg hætt að hugsa um pólitík

Þó ég sé að hugsa um að breyta blogginu mínu í ferðablogg og búin að lofa/hóta því að setja inn Facebook-stöðuna: Hætti í pólitík og farin að spila golf!, þá finnst mér að ef til vill sé komin ögurstund í stjórnmálum, enn einu sinni. Eftir að Kvennalistinn var lagður niður og hluti hans rann inn í Samfylkinguna, ákvað ég að verða pólitískur munaðarleysingi og kunni því bara ágætlega. Svo voru Vinstri græn stofnuð og ég tók þátt í því og tókst að halda mér á  hliðarlínunni í áratug. Svo breyttist allt, búsáhaldabyltingin hreyfði við mér eins og fleirum og ég endaði sem varaþingkona VG, en greinilega án nokkurra starfsskyldna. Löng saga og ekki merkileg. En alla vega, samviskusamlega sótti ég landsfundi og flokksráðsfundi, var ein af fimm sem ekki taldi kostina sem okkur var boðið upp á í samstarfi við Samfylkinguna nógu aðgengilega vegna ESB-mála. Sannfærð um að við hefðum getað gert betur þar, en fyrst svo var ekki var bara að standa sína pligt og hreyfa þeim málum sem mér fannst ástæða til á vettvangi flokksins.

Líklega er ég of seinþreytt til vandræða. Mörg skoðanasystkini mín og vinir hafa horfið úr VG, því miður. Sjálf er ég orðin langþreytt á að finnast ég tala við tómið. Og núna, þegar allt í einu virðist rofa til í baráttugleði forystu VG gegn ESB-ferlinu, af hverju er ég þá full efasemda um að þetta muni snúast rétt? Þannig að ég er ekki hætt í pólitík, en ég er (loksins) farin að spila golf!2012-08-04_16_59_01.jpg


Fallegasti staður sem þú hefur komið á

Þegar ég var um tvítugt tókst mér einhvern tíma að lauma mér inn í hóp með systur vinar míns og vinkonum hennar á leið til spákonu í Hafnarfirði. Það væri ekki í frásögur færandi nema vegna þess að hún lýsti í smáatriðum stað erlendis sem hún sagði að ég myndi fljótlega koma á og yrði fallegasti staður sem ég hefði komið á. Ég ætti að senda henni póstkort þaðan. Á þessum árum var maður ekki að fara í ferðalög sí og æ, reyndar fór ég í tvígang sama árið um þetta leyti til útlanda (og það sagði spákonan mér líka) þar sem foreldrar mínir voru í námsleyfi erlendis um þessar mundir. Þegar ég heimsótti þau í Mið-Frakklandi þá átti ég eina ósk og hún var sú að skoða hellamálverkin í Dordogne-dal, sem þá mátti enn skoða með berum augum, sum hver. Þangað var haldið en þegar við vorum rétt að leggja af stað sagði vinnufélagi fóstra míns að við ,,yrðum" að skoða Chateau de Val á leiðinni. Við höfðum aldrei heyrt staðinn nefndan, en þegar við ókum fram á skiltið þangað, ákváðum við að tékka. Leiðin lá um óhrjálegan veg meðfram einhverju framkvæmdasvæði og okkur fannst þetta nú ekki merkilegt umhverfi. En allt í einu opnaðist útsýnið sem sést á meðfylgjandi póstkorti, sem ég hef ekki sent enn, þar sem ég mundi hvorki nafn né heimilisfang á spákonunni góðu. Þannig að ef hún les þetta og þekkir, þá vildi ég gjarnan koma því til skila.

chateauduval.jpg


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband