Jæja, Hillary ... hvernig fer þetta í kvöld?

Er að bræða það með mér hvort ég á að sofna snemma og heyra um Hillary (ástand og horfur) í fyrramálið eða ekki. Vakna snemma á morgnana þessa dagana, sem er bara skemmtileg tilbreyting, reyndar aðeins of snemma í morgun (hálf fimm, til að skutla Jóhönnu minni út á flugvöll, sem var á landinu í allt of stuttu stoppi). Annað hvort leggst ég í vinnutörn í nótt og tékka á Hillary á netinu af og til, legg mig smá og vakna klukkan sex (bæti svefninn upp síðar) eða ég hendi mér í rúmið núna og frétti af Hillary í fyrramálið. Hmmmmmm ég breyti alla vega engu í baráttu Hillary þannig að önnur atriði munu ráða, meðal annars þau verkefni sem ég er að vinna í og hvenær best er að vinna í þeim. Og þá kemur nóttin sterk inn, aldrei betri vinnufriður. En hvernig ætli þetta fari með Hillary, mætir hún fílelfd í slaginn í fyrramálið eður ei?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, þetta verður æsispennandi. Spurning vegna síðustu færslu þinnar, er Juno komin á DVD?

Guðríður Haraldsdóttir, 22.4.2008 kl. 23:23

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Hæ, Gurrí, oh, já, spennandi kosninganótt framundan, hvort sem við vökum eða sofnum. En varðandi Juno, held að hún sé ekki komin á DVD en það er bara tímaspursmál hvenær það verður.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.4.2008 kl. 23:53

3 Smámynd: Brynja skordal

þú ert örugglega ánægð með þína konu ekki satt hafðu ljúfan dag Elskuleg

Brynja skordal, 23.4.2008 kl. 10:51

4 identicon

Ég vakti og horfði á Sky. Það var mjög gaman að hlusta á ræðuna sem hún flutti þegar hún hitti stuðningsfólkið. Mín kona er SVO flott!!!!!

Anna Ólafsdóttir (anno) 23.4.2008 kl. 17:44

5 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Já, ég vakti líka og horfði á CNN, ræðan var æðisleg og ég er sátt með stöðu mála núna.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.4.2008 kl. 18:09

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband