Sumardagurinn EINI

Samkvæmt öllum langtímaveðurspám er sumardagurinn EINI á morgun, hér á suðvesturhorninu. Þess vegna er brýnt að nota sólina og vera dugleg að njóta góða veðursins. Ekki hægt að treysta því að fleiri svona dagar komi. Gleðilegt sumar!

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða veðurspár lest þú, mín kæra? Veðurstofan spáir 10°C, lítilsháttar skúrum og vindi af suðvestan!!!  Ekki er það nú sumarlegt!  Erum við ekki örugglega báðar að tala um 16. júní 2007? Var sagnfræðingurinn nokkuð að grúska í annálum?  En sömuleiðis, gleðilegan sumardag.

HG 15.6.2007 kl. 16:32

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

gleðilegt sumar !!!

þetta er bara ekki hægt

ljós til þín og góða helgi

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 15.6.2007 kl. 16:53

3 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Hvaða, hvaða. Njóttu birtunnar. Nú er hin dásamlega voraldar veröld. Þetta verður örugglega indælt sumar.

Sigurður Sveinsson, 16.6.2007 kl. 02:54

4 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Birtan birtan birtan! Skítt með allt veður. Ég var einmitt í kvöld svona aðeins að vara yngri dóttur mína við að ef ekki viðraði á morgun færum við ekki í hlaupið. Jú jú - ég held ég láti það nú ekki hafa úrslita áhrif hvort við förum - veðrið....

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 16.6.2007 kl. 04:40

5 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Hvaða vitleysa, við elskum rigninguna, hún er góð.

Ester Sveinbjarnardóttir, 16.6.2007 kl. 08:40

6 identicon

Þá er runninn upp sá merkisdagur sem rætt var um hér í gær (sumardagurinn eini) og ekki þarf lengur að ræða um veðurspá heldur kemur hér veðurlýsing úr Kópavoginum: Bjart yfir, skúrirnar láta enn bíða eftir sér, vindurinn af suðvestan sem spáð var breyttist í rok af norðan, austan, sunnan og vestan svo að gróðurinn veit ekki hvert hann á að snúa. En mikil skelfing það er sumar - hvergi snjó að sjá.

HG 16.6.2007 kl. 13:42

7 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Eins og góðum veðurspám sæmir halda þær ekki í korter. Þegar ofangreint var ritað voru spárnar á þessa leið, en strax um kvöldmatarleytið var allt annað upp á tengingnum, þriðja útgáfan var síðan reyndin og enn eigum við eftir að komast að því hversu margir sumardagar verða í sumar. Því ég er svo bjartsýn að halda að þetta verði snjólétt sumar ;-) - Í fyrrasumar var uppáhaldslagið mitt: Veðurfræðingar ljúga, þarf endilega að finna það til aftur, þótt mér sé alveg einstaklega vel við veðurfræðinga, dyggur lesandi veðurspáa og leiðist aldrei. 

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 16.6.2007 kl. 18:49

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband