Tókum að okkur að flýta fyrir og skipta ráðuneytum milli flokka (DV)

Við mæðgurnar tókum að okkur að flýta aðeins fyrir og skipta ráðuneytum milli Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna. Hér er listinn - þetta er ekki óskalisti heldur raunsæ tillaga. Tókum mið af því að Geir hefur sagt að flokkur hans vildi gjarnan fá heilbrigðisráðuneytið og Steingrímur J. hefur lýst áhuga á fjármálaráðuneytinu.

1. Forsætisráðuneytið - D

2. Fjármálaráðuneytið - V

3. Utanríkisráðuneytið - D

4. Innanríkisráðuneytið - V

Hér er þörf á skýringu. Við teljum að ýmis hlutverk núverandi dómsmálaráðuneytis, forsætisráðuneytis og mögulega annarra ráðuneyta séu í raun málefni innanríkisráðuneytis. Einkum á það við um dómsmálaráðuneytið sem er að vasast í mörgum samræmingarmálum stjórnsýslunnar.  Dómsmálaráðuneyti á að einbeita sér að dómsmálum. Undir þetta ráðuneyti ætti m.a. að falla veiting ríkisborgararéttar, kirkjumál (ef þau verða enn á hendi ríkisins) og þau hlutverk sem við höfum á hendi eftir blessunarlega brottför hersins.

5. Heilbrigðisráðuneyti - D

6. Félagsmálaráðuneyti - V

7. Viðskiptaráðuneyti - D

8. Atvinnumálaráðuneyti - V

Hér þarf enn að gefa skýringu: Landbúnaður og sjávarútvegur og fljotlega komi iðnaður með þegar endurskoðun ráðuneyta er lengra komin (ekki undanskilinn eins og mögulega mátti túlka Þorgerði Katrínu).

9. Samgönguráðuneyti - D

10. Umhverfisráðuneyti - V

11. Iðnaðarráðuneyti - D

12. Menntamálaráðuneyti - V


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Fagna umræðu, oft þarf að henda fram einmitt SVONA fullyrðingum, sem geta verið fyllilega raunhæfar, til að fólk geti mátað möguleikana við veruleikann. Ég trúi reynar á magnaða aðhaldshæfileika VG og með þau í stjórn mun engin einkavæðing eiga sér stað í heilbrigðisþjónustu á þessu kjörtímabili, en hins vegar er alveg dagljóst að ef SS stjórn (Samfylking og Sjálfstæðisflokkur) verður mynduð verður hér bullandi einkavæðing í heilbrigðiskerfinu, og því þarf VG að afstýra. Spurning hvort skipta ætti á félagsmálaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti. Staðan býður ekki upp á neina óskastjórn og mín trú er sú að Framsókn sé ekki á leið í stjórn núna. Þess vegna eru tveir möguleikar SS eða DV. Mér finnst að VG eigi fleiri hlutverkum að gegna en að varðveita sterka stöðu sína með áframhaldandi góðri stjórnarandstöðu.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 15.5.2007 kl. 23:53

2 identicon

Sko, þó að Steingrími langi í fjármálaráðuneytið þá langar mig að setja Pétur Blöndal þangað inn. Hrædd um að Pétur láti ekki flytja sig yfir í þinn ágæta flokk  svo að D verður að fá að halda fjármálaráðuneytinu.

En þið annars ljómandi, góðu mæðgur, hvar er ferðamálaráðuneytið? Ekki ætlið þið ferðamálunum enn að vera í skúffu í fagráðuneyti samgöngumála?

HG 16.5.2007 kl. 00:42

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

VG er áreiðanlega tilbúið að taka við utanríkismálunum. Ferðamálaskúffan ætti frekar að vera í atvinnumálaráðuneytinu ásamt iðnaðarmálunum. Ég þarf að hugsa þetta betur, gott að fá svona ábendingu. Umhverfisráðuneyti þótti á sínum tíma, þegar Kvennalistinn kom fram með þá hugmynd að koma þeim málum öllum í eitt ráðuneyti, of lítill málaflokkur, þannig að ef til vill ætti að endurskilgreina ráðuneytin meira og finna ferðamálum betri stað en skúffu.  

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 16.5.2007 kl. 01:31

4 identicon

Hugsaðu þér það er ekki nema rúmur hálfur annar áratugur síðan kvennalistakonur töluðu um umhverfismál og umhverfisráðuneyti og uppskáru hlátur. Eins og þú segir umhverfismálin þóttu "of lítill málaflokkur" til að þau gætu átt heima í sérstöku ráðuneyti. Kvennalistinn var alltaf fyrstur til að nefna það sem máli skipti - en leiðslurnar í þeim hinum voru oft ansi langar eða skorti þá kannski viljann?

En mér sýnist á svari þínu að þú og ég ættum að geta náð fínu samkomulagi um skiptingu á ráðuneytum: Ætli nágranni þinn þarna á Bessastöðum vilji ekki fá okkur sem ráðgjafa, þ.e.a.s. ef Geir getur sleppt hendinni af Jóni (...talandi um Geir og sætur stelpur)!

HG 16.5.2007 kl. 10:33

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband