Vona ađ ţetta sé rétt mat hjá Dönum

Fyrir nokkrum árum ţegar núverandi stjórnarflokkar tóku viđ stjórnartaumunum í Danmörku, var greinilega kominn jarđvegur fyrir ákveđin kaflaskil ţar í landi, kaflaskil sem voru ađ mínu mati mjög neikvćđ. Ég var einmitt stödd í Danmörku vikurnar í kringum kosningarnar vegna vinnunnar og fylgdist međ forundran međ umrćđunni. Danir sem höfđu sýnt svo mikiđ ,,umburđarlyndi" í garđ innflytjendanna sinna (nema kannski systurţjóđarinnar Grćnlendinga) voru orđnir svo svćsnir rasistar ađ mér stokkbrá hvernig umrćđan var orđin. Einkum hve grímulaust sumir sigurvegarar ţessara tilteknu kosninga töluđu hrokafullt um yfirburđi síns eigin ţjóđskipulags og trúar. Ég gat alveg međ mínu gestsauga fundiđ ýmislegt athugavert viđ danskt samfélag, ţannig er tilveran bara ađ ekkert samfélag er fullkomiđ og alltaf svolíitiđ hćttulegt ađ vera međ grjótkast úr glerhúsum.

Ef ţađ er rétt ađ skopmyndadeilan, sem var svo sem ekkert fyndin, hafi haft ţessi áhrif í Danmörku, ađ auka skilning á Islam, ţá segi ég húrra fyrir ţví. Mér finnst ţađ líka sanna ađ fáfrćđi sé uppspretta fordóma. Ég er ekkert ađ verja fordóma annarra í garđ Dana, hvorki múslima né Íslendinga (má stundum passa mig sjálf, ţótt kvart-Bauni sé). Ţađ er ekkert einfalt mál ađ búa í friđsömu fjölmenningarsamfélagi. Bendi á ađ fullt af Evrópubúum (sem eflaust eru flestir kristnir) hafa valiđ ađ setjast ađ í múslimalöndum, til dćmis í Egyptalandi og Saudi Arabíu, svo ég nefni tvö ólík samfélög. Ţeir ćtlast til ađ njóta skilnings ţar og eru kannski frekar ósáttir viđ ţađ ţegar ţeirra eigin heilögu gildi eru fótum trođin, svo sem kvenréttindi og mannréttindi (!! - ennţá haf ţessi tvö orđ mismunandi merkingu - er ţađ ekki merkilegt!?!).

Ég ćtla rétt ađ vona ađ viđ Íslendingar sleppum viđ ađ fá ţađ andrúmsloft tortryggni og skilningsleysi sem gćtti í Danmörku fyrir nokkrum árum inn í okkar litla og fallega heim.


mbl.is Skopmyndadeilan hefur haft jákvćđ áhrif á samskipti Dana viđ múslíma
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband