Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
Andartaki áður ... og eftir
30.9.2008 | 02:08
Skrýtið að sjá svona eftir á eitthvað sem maður hefur orðið vitni af, án þess að gera sér grein fyrir því.
Var að aka Suðurlandsbrautina frá Hallarmúla milli fjögur og fimm og ætlaði að beygja niður Reykjaveginn og sneiða hjá mestu síðdegisumferðinni með því að fara niður á Sæbraut. Rétt áður en beygjuljósin komu á kom hvellur og bylmingshögg á bílinn og ég sá að bíllinn á undan kipptist við. Þegar við beygðum niður Reykjaveginn var þar allt í örsmáum glerbrotum á báðum akreinum og út á tún. Rauður, óbrunninn bíll í maski á akreininni á móti með manni inní, skelfingarsvipur á andliti, og hvítur lítill sendiferðabíll (væntanlega björgunarmaðurinn) líka eitthvað laskaður, aftar, við hringtorgið, tvær konur sýndist mér að koma úr enn öðrum bíl. Allt sást þetta í sjónhendingu á meðan við, nokkrir bílar, renndum framhjá, og eldur var alls ekki farinn að loga svo sæist frá okkar sjónarhorni.
Það tók mig nokkurn tíma að fullvissa mig um að þetta atvik væri það sama og ég sá sýnt frá í sjónvarpinu. Staðsetningin fer ekki á milli mála og vera kann að eldur hafi verið kominn upp þá þegar, en ég sá hvorki reyk né eld. Hins vegar var mér enn hálfbrugðið eftir kraftinn í sprengingunni og furðaði mig á því hvernig þessi árekstur (sem þetta virtist vera) hefði orðið svona mikill og samt aðallega laskað einn bíl. Og skelfingarsvipurinn á manninum í rauða bílnum líður mér seint úr minni, það er guðsþakkarvert að maðurinn, sem ég býst við að hafi komið úr hvíta bílnum, var þarna staddur því eldurinn hlýtur að hafa blossað upp, af þessum krafti sem myndirnar sýna, rétt eftir að við renndum hjá. Úff. Gott að allt fór vel.
En núna ætla ég að reyna að koma mér aftur í bloggfrí, það ætlar að ganga svolítið illa þegar svona mikið af stórtíðindum af mismunandi toga koma á sama degi.
Gaskútur sprakk í bifreið - vegfarandi vann hetjudáð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:16 | Slóð | Facebook
Bataóskir og baráttukveðjur
29.9.2008 | 21:35
Er nokkuð viss um að mitt í hringiðu þessa viðburðarríka dags hugsa allir fallega til Ingibjargar Sólrúnar. Þótt margir láti peningamál stýra lífi sínu og þeir (peningarnir) ráði örlögum allt of oft, þá er á endanum varla margt annað mikilvægara en góð heilsa. Einlægar bataóskir og baráttukveðjur vestur um haf.
Ingibjörg Sólrún gekkst undir aðgerð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook
Þögn, þjóðnýting og þungar brúnir
29.9.2008 | 10:50
Nei, nei, ábyggilega ekki krísufundur þótt formenn allra flokka séu boðaðir á fund klukkan ellefu á sunnudagskvöldi í Seðlabankann
29.9.2008 | 00:17
Vísir.is á heiður skilinn fyrir skjótan fréttaflutning (og Halldór vinur minn fyrir að hnippa í mig):
Formenn allra flokka á fundi í Seðlabankanum
Formenn allra flokka voru kallaðir á skyndifund í Seðlabankanum nú um ellefu leytið í kvöld. Ekki er vitað hvert tilefnið er en gera má ráð fyrir því að umræðuefnið sé efnahagskrísan sem nú dynur yfir landið.
Meira um málið á eftir
Þagnareiður um miðnæturfund
Fundi formanna stjórnmálaflokkanna í Seðlabankanum lauk nú rétt fyrir miðnætti. Menn voru fremur brúnaþungir en gert er ráð fyrir að forsætisráðherra og bankastjórn Seðlabankans hafi gert grein fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í efnahagsmálum og hugsanlega boðað aðgerðir til að sporna gegn gjaldeyrisþurrð. ,,Ég vil ekkert segja," sagði Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sem mætti í fjarveru Guðjóns A. Kristjánssonar formanns Frjálslynda flokksins. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, tók í sama streng.
,,Þið fáið ekkert upp úr okkur," sagði hann. Áréttuðu þeir að þagnareiður gilti um fundarefnið.
Reiknað er með að ríkisstjórnin kynni aðgerðir sínar í fyrramálið.
MIKILL TRÚNAÐUR
Haft er eftir Steingrími J. á visir.is eða samræðurnar séu trúnaðarmál og smelli maður á fréttina þá kemur eftirfarandi upp (á slóð: http://www.visir.is/article/20080929/FRETTIR01/904060930) - tékkið áður en það er búið að laga þetta:
Username: | ||
Password: | ||
Ef þetta er ekki þrumutrúnaður þá veit ég ekki hvað er það.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:44 | Slóð | Facebook
Dálítið langt síðan ég byrjaði að býsnast yfir því hversu skaðlegt ráðleysi og sinnuleysi ráðamanna varðandi ástandið í efnahagsmálum væri, þá geri ég ekki ýkja mikinn greinarmun á ríkisstjórninni og Seðlabankastjórninni. Vissulega bárust af og til þau skilaboð að verið væri að gera ,,eitthvað meira en fólk vissi" en einnig að það væri best að aðhafast sem minnst. Það fyrra var í besta falli ýkjur (staðreyndir sýna alla vega að það var ekki nóg) og í versta falli lygi, það síðarnefnda einfaldlega rangt. Við heyrðum líka að skuldinni var skellt á ástandið á heimsmarkaði, en þar eru allir að ólmast og byltast og reyna að tryggja hag sinna þjóða - æ nema kannski við!
Mér finnst mjög rétt af Steingrími J. að stinga upp á þjóðstjórn eða kosningum við þessar aðstæður, en þar sem ríkisstjórnin hefur ekki status fótboltaþjálfara getur hún hangið eins og hundur á roði áfram og skaðað okkur enn frekar. Evrukjaftæðið hefur ekki bætt úr skák. það var löngu vitað að ekki er hægt að taka upp Evru með þeim hætti sem daður sumra ráðamanna hefur helst staðið til. Heldur ekki að við séum yfir höfuð tæk inn í það kompaní, svona fyrir þá sem þangað langar. Þannig að dýrmætur tími og tiltrú hefur farið til spillis í þeirri umræðu.
Að svo mæltu held ég áfram í bloggfrínu og reyni að nota tímann í það sem ég þarf að hafa í forgangi þessa dagana, sem er afskaplega fjölbreytilegt. Ýmislegt sem mig langar að blogga um verður að bíða eða týnast við þessar aðstæður, þannig er bloggið bara, engin mætingaskylda heldur bara eftir hentugleikum, ótvíræður kostur. Bloggfríið mitt hefur ekki síður komið niður á blogglestri, en nokkrir bloggvina minna hafa þó orðið varir við að ég lít enn við stöku sinnum. Svo kem ég bara tvíelfd aftur inn í þessa ágætu heima við tækifæri.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:42 | Slóð | Facebook
Eins og fram kom í seinustu færslu er ég ekki bloggandi þessa dagana. Er hins vegar bráðlifandi, á fullu í skemmtilegum verkefnum og ef ég hefði ekki fengið smá vink frá boggvinkonu biði ég enn með að blogga, það þarf nefnilega að taka smá tíma til að hugsa, svona um sumt af því sem bíður bloggs þessa dagana. Umhverfistengt og fleira mikilvægt sem ég ætla að grafa mig aðeins í þegar (ef) ég finn tíma. En ef þið viljið fræðast um kjör öryrkja, lesið þá ágætt blogg Ninnu.
Lilja Bolla er líka með ágætan pistil um kaup og kjör sem heldur duga ekki til framfærslu. Og það með held ég áfram í bloggfríinu í bili. Les bloggið meira og betur fljótlega og skrifa eitthvað líka.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:36 | Slóð | Facebook
Góða helgi öll, annríki og mögulegt bloggfrí
19.9.2008 | 23:30
Ný skoðanakönnun sem ábyggilega verður umdeildari en könnunin um haustið
19.9.2008 | 03:40
Dollarinn í 95 krónur ...
18.9.2008 | 01:05
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:06 | Slóð | Facebook
19 stiga hiti í dag á Tjörnesi - enn er von!
17.9.2008 | 22:44