Andartaki áður ... og eftir

Skrýtið að sjá svona eftir á eitthvað sem maður hefur orðið vitni af, án þess að gera sér grein fyrir því.

Var að aka Suðurlandsbrautina frá Hallarmúla milli fjögur og fimm og ætlaði að beygja niður Reykjaveginn og sneiða hjá mestu síðdegisumferðinni með því að fara niður á Sæbraut. Rétt áður en beygjuljósin komu á kom hvellur og bylmingshögg á bílinn og ég sá að bíllinn á undan kipptist við. Þegar við beygðum niður Reykjaveginn var þar allt í örsmáum glerbrotum á báðum akreinum og út á tún. Rauður, óbrunninn bíll í maski á akreininni á móti með manni inní, skelfingarsvipur á andliti, og hvítur lítill sendiferðabíll (væntanlega björgunarmaðurinn) líka eitthvað laskaður, aftar, við hringtorgið, tvær konur sýndist mér að koma úr enn öðrum bíl. Allt sást þetta í sjónhendingu á meðan við, nokkrir bílar, renndum framhjá, og eldur var alls ekki farinn að loga svo sæist frá okkar sjónarhorni.

Það tók mig nokkurn tíma að fullvissa mig um að þetta atvik væri það sama og ég sá sýnt frá í sjónvarpinu. Staðsetningin fer ekki á milli mála og vera kann að eldur hafi verið kominn upp þá þegar, en ég sá hvorki reyk né eld. Hins vegar var mér enn hálfbrugðið eftir kraftinn í sprengingunni og furðaði mig á því hvernig þessi árekstur (sem þetta virtist vera) hefði orðið svona mikill og samt aðallega laskað einn bíl. Og skelfingarsvipurinn á manninum í rauða bílnum líður mér seint úr minni, það er guðsþakkarvert að maðurinn, sem ég býst við að hafi komið úr hvíta bílnum, var þarna staddur því eldurinn hlýtur að hafa blossað upp, af þessum krafti sem myndirnar sýna, rétt eftir að við renndum hjá. Úff. Gott að allt fór vel.

En núna ætla ég að reyna að koma mér aftur í bloggfrí, það ætlar að ganga svolítið illa þegar svona mikið af stórtíðindum af mismunandi toga koma á sama degi.


mbl.is Gaskútur sprakk í bifreið - vegfarandi vann hetjudáð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Maðurinn vann mikla hetjudáð þegar hann bjargaði manninum úr logandi bílnum.

Linda litla, 30.9.2008 kl. 11:55

2 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Ég var einmitt þarna um tíu metrum á undan á leið í kennslu í Laugum. Það kom þung höggbylgja og ég gerði mér ekki grein fyrir hvað var í gangi. Síðan var einn sem kom í tíma og keyrði framhjá einhverri mínútu síðar sem sagði mér að maðurinn hefði verið fastur í bílnum. Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 30.9.2008 kl. 23:57

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband