Himneskur brandari

Eiginlega finnst mér að þið eigið að skoða þennan brandara á réttum linki sem er hér:

www.svavaralfred.blog.is

En til öryggis, ef þið viljið ekki, getið ekki eða nennið ekki að smella á nýja síðu þá er brandarinn sem birtist í þessu himneska bloggi sem hér segir:

Gamla fólkið á elliheimili úti á landi var orðið afar þrúgað og meðtekið af efnahagsbölsýnisíbyljunni í fjölmiðlunum.

Forstöðukonan hafði sverar áhyggjur af þessu.

Í morgun var leikfimi á heimilinu. Forstöðukonan bað íþróttafræðinginn að vera nú heldur á léttu nótunum og fyrir alla muni ekki minnast á efnahagsmál eða þrengingar.

Þetta væri alveg að fara með gamla fólkið.

Íþróttafræðingurinn sagði það ekki nema sjálfsagt.

Svona hóf hann tímann:

"Kæru vinir! Í dag byrjum við á mjög léttri æfingu. Við réttum hendur út frá hliðunum, beygjum olnbogana og bönkum flötum lófum létt á bringuna, síðan réttum við úr höndunum og kreppum snöggt hnefana og endurtökum allt aftur og aftur," og svo hrópaði hann:

"Koma svo! Banka - kreppa, banka - kreppa, banka - kreppa......!" 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

hehehh, þessi er fyndin !

knús inn í fallegan laugardag

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.10.2008 kl. 06:08

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.10.2008 kl. 09:18

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Frábært!!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 11.10.2008 kl. 19:11

4 Smámynd: Blaðamenn Foldarinnar

Það er okkur sönn ánægja að bjóða yður í heimsókn á foldin.blog.is

Blaðamenn Foldarinnar, 11.10.2008 kl. 22:41

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband