Tími til kominn að meta störf ljósmæðra að verðleikum

Einhvern veginn held ég að það yrði þjóðarsátt ef kjör ljósmæðra yrðu leiðrétt til samræmis við kjör annarra stétta sem hafa jafn mikið nám að baki og ábyrgð í starfi. Eru ekki allir orðnir frekar leiðir á því að ábyrgð á peningum sé margfalt meira metin en ábyrgð á mannslífum, til dæmis ábyrgð á því að nýfæddir einstaklingar komist klakklaust í heiminn og móðirin upplfii góða fæðingu?

Á síðastliðnu sumri fór fram kosning um fegursta orð íslenskrar tungu og orðið ljósmóðir sigraði með nokkrum yfirburðum. Orðið er vissulega fallegt, en ég held að inntak orðsins, starfið sem að baki býr, hafi átt meiri þátt í sigrinum. Hvernig væri að láta reyna á það hvort þjóðin er ekki tilbúin að gera myndarlegt átak í að laga kjör ljósmæðra?


mbl.is Vilji ljósmæðra að semja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

heyr, heyr

alva 1.9.2008 kl. 23:14

2 identicon

Er ekki endalaust til störf sem þarf a meta að verðugleikum. Almennt held ég að ríkisstarfsmenn meti ekki það atvinnuöryggi sem þeir hafa mikils. Hvenær heyra menn um fjöldauppsagnir hjá ríkisstarfsmönnum.

Séra Jón 1.9.2008 kl. 23:35

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Heilsugæslan í dag, opinberir starfsmenn.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 2.9.2008 kl. 01:41

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Almennt er vinna með börnum, á öllum aldri, metin smánarlega lágt, miðað við matið sem er á ábyrgð á peningum. Skil ekki svona verðmætamat.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 2.9.2008 kl. 10:47

5 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Ljósmæður eru með Bachelor gráðu úr háskóla sem hjúkrunarfræðingar, og tveggja ára ljósmæðranám þeirra við það bætir við mastersgráðu. Samtals sex ár í háskóla. Læknar hafa líka sex ára nám úr háskóla, bara til að fá kandidatsleyfi og fá léleg laun eftir það..... ekki misskilja, þessi tvö dæmi eru jafn ömurleg. Það virðist bara vera sameiginleg ákvörðun stjórnvalda að borga léleg laun í heilbrigðiskerfinu, leikskólakerfinu og menntakerfinu. Allir vilja toppþjónustu á fæðingadeildinni, sjúkradeildinni, í skólakerfinu og á öldrunarstofnunum en þegar stjórnvöld vilja ekki borga mannsæmandi laun á þessum stöðum, er nokkuð erfitt að fá toppþjónustu.

En.... svo skulum við ekki gleyma því, að ljósmæður taka ekki bara á móti heilbrigðum börnum frá heilbrigðum konum, það eru líka mörg börn í krítiskri hættu í móðurkviði, margir fyrirburar sem þurfa gjörgæsluhjúkrun þegar þeir koma í heiminn, margar konur sem lenda í einhverju slæmu á meðgöngu og í fæðingu, og öllu þessu sinna ljósmæður líka.

Þessi ríkisstjórn er til skammar, segist ætla að laga launamismun kynjanna og bæta kjör kvenna en gerir nákvæmlega EKKI NEITT. Ekki í þessu máli og ekki heldur í neinu öðru.

Lilja G. Bolladóttir, 3.9.2008 kl. 21:20

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband