Síðsumarpestin, veðrið og lýsi eftir þriðju ljóðlínunni, takk!

Mér heyrist á vinum og ættingjum að önnur hver manneskja sem með þessa hálfvolgu haustpest, sem ég leyfi mér að kalla síðsumarpest, vegna þess að ég er ekki aldeilis tilbúin í haustið strax. Veðrið er hins vegar aðeins að daðra við hlýtt haust, en það er fullkomlega ótímabært. Mér finnst eiginlega að þessi blessuð pest, sem stoppar mig svo sem ekki af í mörgu, þótt ég hafi guggnað á einu afmæli á laugardaginn, sé eins og vísan góða um veðrið sem mér finnst alltaf skemmtileg (vísan, ekki veðrið). En nú sé ég reyndar að ég er búin að gleyma þriðju ljóðlínunni en treysti á ykkur bloggsamherjar að bjarga mér um hana og fylla inn í punktalínurnar:

Veðrið er hvorki vont né gott

ekki kalt og ekki heitt

.... (né heldur) ....

það er svo sem ekki neitt.

 

Smá viðbót, Sæa, tengdamamma mín hringdi inn hvernig hana minnir að vísan sé:

Veðrið er hvorki vont né gott

ekki kalt og ekki heitt

það er hvorki þurrt né vott,

það er svo sem ekki neitt.

 

Mér líst ágætlega á þessa tillögu og býð alla vega ekki betur í bili.

Í athugasemdakerfinu kom smá bragarbót á upprunalegu línurnar sem ég setti fram en með þriðju línunni eins og Sæa lagði til. Þessi breyting er ágætlega rökstudd og er frá Hlyni. Hér er sú útgáfa og nánari útlistun í athugasemdakerfinu:

Veðrið er hvorki vont né gott,

varla kalt og ekki heitt.

Það er hvorki þurrt né vott,

það er svo sem ekki neitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg G. Hansen

Hæ Anna, ég efast ekki um að Sæja hefur þetta rétt.  Bæði vegna þess að þetta hreinlega passar, en aðallega þó að hún slær flestum við í að muna hvaðeina  

Vilborg G. Hansen, 25.8.2008 kl. 23:00

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Já, ekki finnst mér það ólíklegt, en alltaf gaman að rifja upp gamlar vísur og enn betra núna þegar bloggið gerir skoðanaskipti fljótlegri og einfaldari.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.8.2008 kl. 01:24

3 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Hæ, vona að pestin sé á útleið, ég held að það sé svo með gamla húsganga að þeir geymast á mismunandi veg.  En það gerir þá bara meira sjarmerandi.  Bið kærlega að heilsa Sæu.

Ester Sveinbjarnardóttir, 26.8.2008 kl. 08:32

4 identicon

Veðrið er hvorki vont né gott, / varla kalt og ekki heitt. / Það er hvorki þurrt né vott, / það er svo sem ekki neitt. Ath. að stuðlasetningin krefst þess að höfuðstafurinn í öðru vísuorði sé v (varla).

Hlynur Þór Magnússon 26.8.2008 kl. 13:29

5 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Takk, eins og Ester segir þá eru yfirleitt til fleiri útgáfur en ein af húsgöngum, svo framarlega sem þeir eiga ekki uppruna sinn í birtu efni, eins og vísur Káins til dæmis og nokkrir gullmolar frá fleiri skáldum, sem hafa ferðast um í ýmsum útgáfum. Þannig held ég að ég hafi lært þessa vísu á enn annan hátt, en bæði útgáfu Hlyns við meginmálið svo allir fái að njóta.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 26.8.2008 kl. 14:37

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband