Upp er runninn útskriftardagur ...

... og ég er blessunarlega fjarri góðu gamni. Hér í Ungverjalandi ætlum við eigi að síður að halda upp á hann með því að fara út að borða. Mér sýnist að hérlendir veðurguðir ætli líka að halda upp á daginn með mér, að vísu svolítið hvasst, en létt yfir og ekkert sem bendir til þess nú að fari að rigna, en enn er sólarlaust.

Það er skrýtið að upplifa lokapunktinn á þessu stranga námi mínu en það verður eflaust ekki raunverulegt fyrr en ég sæki prófskírteinið mitt á skrifstofuna þegar ég kem heim til Íslands, sem er ekki fastsett enn, ekkert sem liggur á því. Skrýtið að vera að taka þátt á sama tíma í lífi læknastúdentanna hér, sem eru á fyrri skrefum sínum í áttina að enn lengra og miklu strangara námi en ég stundaði, enda er þetta fullt starf þeirra í 6-7 ár en mitt var bara í hjáverkum og alla tíð með mikilli vinnu, nema kannski rétt á blá-lokasprettinum.

Yfir 1000 stúdentar að útskrifast í dag frá HÍ. Það verður eflaust mikill spenningur og bið. Ég hef verið í þessum sporum í tvígang, þegar ég útskrifaðist með BA prófið, það var í febrúarmánuði fyrir réttum 30 árum (!) og ekki stór hópur sem útskrifaðist þá, við vorum í hátíðarsalnum og mjög hátíðlegt. Svo var það cand.mag. prófið 1985 í júníútskrift úr Háskólabíói. Stór hópur en ekki nándar nærri eins stór og sá sem nú er að útskrifast. Óska öllum sam-útskriftarnemendum til hamingju með daginn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju Anna mín.  Þú ert töffari

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.6.2008 kl. 10:31

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Takk, takk.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 14.6.2008 kl. 10:59

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband