Föstudagurinn laaaaaaaaannnnnngggggiiiiiiiii

Stillti á rás 1 á útvarpinu til ađ hlusta á hádegisfréttirnar og núna er ég sem sagt farin ađ hlusta á gömul Passíusálmalög. Rifjar upp ţegar ég tók viđtal viđ Smára Ólason ţá (og kannski nú) organista í Mosó um ađ Passíusálmarnir hefđu veriđ sungnir, en ţađ var einhvern tíma saga til nćsta bćjar. Alla vega, hann á einhvern heiđur af ţví sem viđ erum ađ hlusta á núna. Og einhvern veginn svo vel viđ hćfi ađ hlusta á ţessa dagskrá frekar en ađeins meira léttmeti á mörgu hinna stöđvanna. jcsReyndar skapađist sú hefđ einhvern tíma heima ađ Ólafur fóstri minn, sem alla jafnan hlustađi ekki á tónlist, vildi heyra sinn Jesus Christ Superstar á föstudaginn langa. Ţađ var bara skemmtilegur siđur, enda var stef úr ţví verki viđ útför hans, mig minnir í eftirspili. Séra Örn Bárđur átti heiđurinn af ţví eftir ábendingu, hann var nćmur á hvađ átti viđ.

Annars var skemmtileg umrćđa hér á blogginu fyrir skömmu um hvađ ,,mćtti" og hvađ mćtti ekki á föstudaginn langa. Bingó er bannađ, bara ef einhver skyldi vera búinn ađ gleyma ţví eftir mikla umrćđu á blogginu hennar Jennýjar Önnu. Man eftir löngum föstudögum ţegar ekki var hćgt ađ fara í búđ og er enn hálf feimin viđ ađ fara í búđ á föstudaginn langa (en lćt ţađ ekki stoppa mig ef ég ţarf set bara upp feimnissvipinn og treysti ţví ađ krakkarnir í 10-11 séu međ helgidagaálag).

Svo tókum viđ upp á ţađ eitt sinn í skúlptúrhópnum mínum ađ steypa á föstudaginn langa, einkar heppilegt af ţví mađur hleypur ekki frá steypu og dagurinn hvort sem er svo langur. Í ţađ skiptiđ björguđu afgangarnir úr fermingarveislunni hans Óla alveg öllum máltíđum dagsins. Ţetta krefst skýringar. Viđ fermingu Hönnu dóttur minnar tveimur árum fyrr tóku vinir og ćttingjar alveg ađ sér ađ sjá um veitingar, ţar sem ég var í miđri kosningabaráttu (nokkuđ sem dóttir mín fór ţegar ađ hafa áhyggjur af ţegar hún var 9 ára og sagđi: Mamma, svo veistu ađ ţú verđur ađ ferma í nćstu kosningabaráttu! - sem kannski er ástćđan fyrir ţví ađ upplýsingahópur Kvennalistans var međal ţeirra sem lögđu til veisluföng). En fyrir ferminguna hans Óla taldi ég ekki nokkra ţörf á hjálp annarra og mjög kát ađ geta séđ um veisluföng sjálf. Hmmm, vinir og ćttingjar hafa trúađ ţví mátulega ţví eftir sem áđur var komiđ međ veitingar í ađra veislu í viđbót. Og ţar sem okkar veislur međ nánustu ćttingjum og vinum eru jafnan nćstum hundrađ manna ţá gat skúlptúrhópurinn minn lifađ góđu lífi á brauđréttum og tertum frá klukkan 11 ađ morgni til miđnćttis ţennan föstudaginn langa. 

Metiđ í föstudögum löngum held ég ţó ađ dóttir mín eigi, sem var ađ kryfja lík á seinasta föstudaginn langa (međan ég hafđi ţađ gott hjá Nínu systur í Portales í New Mexico). Ţađ er ekki lćknadeildin hér sem fer svona međ nemendur sína heldur lćknadeildin í Debrecen í Ungverjalandi, en ţar er slatti af Íslendingum viđ nám. Ég hélt reyndar ađ hún yrđi ađ kryfja í dag, en ţađ leiđréttist hér međ.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Hreiđar

Nei, Anna mín, Smári (reyndar Ólason, ekki Ólafssson) er ekki lengur organisti hér. Nú er hann titlađur tónlistarfrćđingur og ţađ hygg ég hann beri međ sanni.

Núverandi organisti hér er Jónas Ţórir, algjör snillingur! Ég var ađ koma úr messu međ honum núna fyrir hádegiđ í Víđinesi, ţar sem hann varđ ađ láta sér lynda ađ berja á lélegt píanó en jafnvel ţví tókst ekki ađ eyđileggja góđan píanóleik -- ekki alveg amk.

Gleđilega páska

Sigurđur Hreiđar, 21.3.2008 kl. 13:52

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Góđir organistar eru mikilvćgir, ţađ var einmitt organistinn sem spilađi ţetta stef úr Jesu Christ Superstar ţegar hann Ólafur fóstri minn var jarđađur. Og ég leiđrétti ţetta međ föđurnafniđ hans Smára. Minnsta máliđ.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 21.3.2008 kl. 13:59

3 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Fólk blygđast ekki viđ ađ hlaupa út í búđ hérna í henni Ameríku á Föstudaginn Langa, sorglegt ađ segja en ég held ađ ef Jay Lenno fćri út á götu og spyrđi fólk  hvers viđ vćrum ađ minnast á Föstudaginn Langa stćđu margir á gati. Tengdamóđir mín var jörđuđ á Föstudaginn Langa fyrir 3 árum og mér fannst ţađ mjög miđur og var mjög undrandi á prestinum ađ láta ţetta viđgangast.   'Eg var ađ lesa ađ á ári hverju á Föstudaginn Langa lćtur hópur fólks í Filippseyjum krossfesta sig sem ég get ekki séđ nema hálfgerđa sjálfdýrkun. 

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 21.3.2008 kl. 17:04

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband