DV er ekki að grínast

Það mætti halda að DV hefði gefið út grínútgáfu í dag. Sá fyrst aðalfréttina á baksíðunni:

Fundu flugvöll í Vatnsmýrinni (yfirfyrirsögn í smærra letri: Gröfumenn og bílstjórar urðu hissa er þeir gerðu merkilega uppgötvun) - Hmmmmm það ER flugvöllur í Vatnsmýri!!!!

Til hliðar mátti sjá eftirfarandi:

Haarde sá hrylling

Á forsíðunni tók ekki betra við:

Annþór heiðraður af Rauða krossinum

Gnarr í Mercedes Club

Lögregla réðst á fjölskyldu (undirfyrirsagnir: Sonurinn margbrotinn í andliti / Faðirinn úðaður með piparúða)

Við nánari lestur má sjá að engin af þessum fréttum er neitt grín. Eftir standa fyrirsagnirnar: Flokkurinn sér um sína, Hannes í vanda og Hægviðri og bjart víða, sem eru bara frekar trúverðugar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Já, svo sananrlega.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 17.3.2008 kl. 16:42

2 identicon

Á hverju eru þessir snillingar eiginlega sem búa til þessar fyrirsagnir???

Anna Ólafsdóttir (anno) 17.3.2008 kl. 16:52

3 Smámynd: Linda litla

Dagblaðið hefur alltaf verið með skrautlegar fyrirsagnir.

Linda litla, 17.3.2008 kl. 16:59

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Sjaldan séð jafn margar (furðu-) merkilegar fyrirsagnir á útsíðum eins blaðs. Einhver hefur verið í stuði!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 17.3.2008 kl. 17:01

5 identicon

Ummm, elska svona heimskulegar fyrirsagnir og gott að sumir hafi glöggt auga fyrir þeim svo við getum öll hlegið

Taraji 18.3.2008 kl. 15:01

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband