Ekkert viss um að ég hlakki lengur til að sjá málefnasamninginn ...

Fyrst vil ég óska Samfylkingunni til hamingju með jafnræði kynjanna í ráðherraliðinu. En ég hef áhyggjur af ummælum Ingibjargar Sólrúnar varðandi Evrópumálin, áhyggjur af því að hún segir að Samfylkingin ætli að halda Evrópumálunum á lofti. Varaði við því um daginn að ríkisstjórn sem setti Evrópusambandsaðild á dagskrá gæti verið í uppsiglingu, og þegar tilvonandi utanríkisráðherra lætur þessi ummæli falla þá er full ástæða til að hafa áhyggjur af innihaldi málefnasamningsins, það er að segja fyrir okkur sem viljum vera utan skrifræðis ESB og erum á móti því að tapa forsjá yfir auðlindum á borð við fiskimið okkar.
mbl.is Ingibjörg: Evrópumálum verður haldið á lofti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bryndís G Friðgeirsdóttir

Sæl Anna

Ég á ekki von á öðru en að ISG haldi Evrópumálunum á lofti.  Þetta er eitt af því sem Samfylkingin ein flokka hefur haft á sinni stefnuskrá.  Ef hún bakkar með þetta mál þá er anski miklu fórnað fyrir stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokki.  Varðandi auðlindir okkar og stjórn fiskveiða þá er íslenska kvótakerfið eitt mesta ranglæti Íslandssögunnar.  Nýjasta dæmið er sala á aflaheimildum frá Flateyri.  Innganga í Evrópusambandið gæti ekki toppað þá vitleysu. Ég hef meiri áhyggjur af íslenska dómskerfinu og íslensku réttarfari yfir höfuð og tel að innganga okkar í Evrópusambandið gæti verið verið leiðarljós í þeim efnum.

Bryndís G Friðgeirsdóttir, 22.5.2007 kl. 23:06

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Eitt ranglæti í fiskveiðimálum réttlætir ekki annað og okkur greinir augljóslega á um stjórnarfar innan Evrópusambandsins, þar með talið dómstólana. Mér finnst alvarlegt að varpa stjórnarfari okkar í hendur á skriffinnum sem ekki hafa verið kjörnir í lýðræðislegum kosningum, en ákvarðanir innan Evŕopusambandsins eru í of miklum mæli byggðar á tilskipunum sem kjörnir fulltrúar koma hvernig nærri nema til að samþykkja þær á lokastigi.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.5.2007 kl. 23:11

3 identicon

Og nýji heilbrigðisráðherrann lýsir yfir aukinni einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu - og Drífa Hjartar er ánægð með hlut kvenna í ráðherraliði sjálfstæðisflokksins - og  þingflokksformennsku Arnbjargar er sagt vera ígildi ráðaherradóms!!!
Hverskonar stjórn hafa Samfylkingarmenn búið til?
En þeirra var valið.

Björn Valur 22.5.2007 kl. 23:14

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Hmmmmm er ég að misskilja eitthvað, var það ÞETTA sem kjósendur voru að velja?

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.5.2007 kl. 23:15

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Gleði mín hefur minnkað til muna. Aukin einkavæðing í heilbrigðiskerfinu ... NEIIIII! Evrópumálum haldið á lofti! NEEEIIIIIII!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 22.5.2007 kl. 23:19

6 identicon

Held ekki. Sú staðreynd að Samfylkingin tapaði u.þ.b. 15% af fylgi sínu á mili kosninga hlýtur að vera ástæða fyrir veikri stöðu flokksins í ríkisstjórninni sem sjá má á skiptingu ráðuneyta. Sjálfstæðismenn náðu til sín bæði mennta og heilbrigðisráðuneyti og fjármálaráðuneytið til viðbótar sem hlýtur að vekja ugg í brjóstum allra þeirra sem láta sig mennta og heilbrigðismál varða.
En Samfylkingin hafði val - til vinstri eða til hægri - og fór til hægri.

Björn Valur 22.5.2007 kl. 23:29

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband