Veturinn kveður með óþarfa hvelli

Þessi vetur er að kveðja okkur Íslendinga með óþarfa hvelli, eldur og vatn hafa sagt til sín og spurning hvort jörðin og himininn eiga eftir að blanda sér í málið. Indjánarnir í New Mexico (og eflaust víðar) vitna reyndar frekar til fjóreykisins jarðar, vinds, elds og vatns, sem sagt loftið er vindurinn, sem er svo sem næsti bær við. Við höfum reyndar nóg haft af vindi (foki) og jörð (skriðum) að undanförnu, sbr. Sauðarkrók um daginn og fleiri atburði að undanförnu. Ég held upp á árstíðaskiptin með því að leggjast í pestina sem ég ætlaði ekki að láta hafa af mér þennan seinasta vetrardag, og svo vona ég bara að þessi hálf veikindalegi vetur sé að baki og allt það vesen sem honum hefur fylgt, eftir smá tíma mun ég hvort sem er bara muna þetta skemmtilega sem gerðist í vetur, sumarfríið á Kanarí og Ameríkuferðina, frábær jól og áramót, skautaferð, VG uppsveifluna miklu en þó ekki síst bara þægilegar og notalegar stundir heima með fjölskyldunni. Þetta hefur verið köflóttur vetur en eins og alltaf er minnið þegar farið að grisja þetta leiðinlegra frá og magna upp það besta. Vonandi verður það saman raunin í Reykjavík og á Króknum, Laugarvegurinn hreinn og fínn eftir þvottinn og endurbyggingin norðan og sunnan heiða til fyrirmyndar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Pétursson

Anna þú ert heimskona með lifandi og litríka framkomu.Svo ert þú svo heppin að vera í sigurliðinu,sífelldar uppsveiflur VG.Ég samgleðst ykkur enda skammt undan.

Kristján Pétursson, 18.4.2007 kl. 23:15

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Takk, vona að það verði hægt að ná saman góðu liði eftir kosningar.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 18.4.2007 kl. 23:19

3 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Það kemur sér vel síðar að rifja upp minningarnar með því að kíkja á bloggið :)

Ester Sveinbjarnardóttir, 18.4.2007 kl. 23:21

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Já, Ester, ég er farin að standa mig að því að fletta upp atvikum úr tilverunni í gamla blogginu mínu, hefði ekki trúað því að óreyndu.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 18.4.2007 kl. 23:52

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband