Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Bataóskir og baráttukveðjur
29.9.2008 | 21:35
Er nokkuð viss um að mitt í hringiðu þessa viðburðarríka dags hugsa allir fallega til Ingibjargar Sólrúnar. Þótt margir láti peningamál stýra lífi sínu og þeir (peningarnir) ráði örlögum allt of oft, þá er á endanum varla margt annað mikilvægara en góð heilsa. Einlægar bataóskir og baráttukveðjur vestur um haf.
![]() |
Ingibjörg Sólrún gekkst undir aðgerð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook
Þögn, þjóðnýting og þungar brúnir
29.9.2008 | 10:50
Nei, nei, ábyggilega ekki krísufundur þótt formenn allra flokka séu boðaðir á fund klukkan ellefu á sunnudagskvöldi í Seðlabankann
29.9.2008 | 00:17
Vísir.is á heiður skilinn fyrir skjótan fréttaflutning (og Halldór vinur minn fyrir að hnippa í mig):
Formenn allra flokka á fundi í Seðlabankanum
Formenn allra flokka voru kallaðir á skyndifund í Seðlabankanum nú um ellefu leytið í kvöld. Ekki er vitað hvert tilefnið er en gera má ráð fyrir því að umræðuefnið sé efnahagskrísan sem nú dynur yfir landið.
Meira um málið á eftir
Þagnareiður um miðnæturfund

Geir Haarde kynnti formönnum annarra flokka yfirvofandi aðgerðir gegn kreppunni sem nú steðjar að.
Fundi formanna stjórnmálaflokkanna í Seðlabankanum lauk nú rétt fyrir miðnætti. Menn voru fremur brúnaþungir en gert er ráð fyrir að forsætisráðherra og bankastjórn Seðlabankans hafi gert grein fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í efnahagsmálum og hugsanlega boðað aðgerðir til að sporna gegn gjaldeyrisþurrð. ,,Ég vil ekkert segja," sagði Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sem mætti í fjarveru Guðjóns A. Kristjánssonar formanns Frjálslynda flokksins. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, tók í sama streng.
,,Þið fáið ekkert upp úr okkur," sagði hann. Áréttuðu þeir að þagnareiður gilti um fundarefnið.
Reiknað er með að ríkisstjórnin kynni aðgerðir sínar í fyrramálið.
MIKILL TRÚNAÐUR
Haft er eftir Steingrími J. á visir.is eða samræðurnar séu trúnaðarmál og smelli maður á fréttina þá kemur eftirfarandi upp (á slóð: http://www.visir.is/article/20080929/FRETTIR01/904060930) - tékkið áður en það er búið að laga þetta:
Username: | ||
Password: | ||
Ef þetta er ekki þrumutrúnaður þá veit ég ekki hvað er það.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:44 | Slóð | Facebook
Dálítið langt síðan ég byrjaði að býsnast yfir því hversu skaðlegt ráðleysi og sinnuleysi ráðamanna varðandi ástandið í efnahagsmálum væri, þá geri ég ekki ýkja mikinn greinarmun á ríkisstjórninni og Seðlabankastjórninni. Vissulega bárust af og til þau skilaboð að verið væri að gera ,,eitthvað meira en fólk vissi" en einnig að það væri best að aðhafast sem minnst. Það fyrra var í besta falli ýkjur (staðreyndir sýna alla vega að það var ekki nóg) og í versta falli lygi, það síðarnefnda einfaldlega rangt. Við heyrðum líka að skuldinni var skellt á ástandið á heimsmarkaði, en þar eru allir að ólmast og byltast og reyna að tryggja hag sinna þjóða - æ nema kannski við!
Mér finnst mjög rétt af Steingrími J. að stinga upp á þjóðstjórn eða kosningum við þessar aðstæður, en þar sem ríkisstjórnin hefur ekki status fótboltaþjálfara getur hún hangið eins og hundur á roði áfram og skaðað okkur enn frekar. Evrukjaftæðið hefur ekki bætt úr skák. það var löngu vitað að ekki er hægt að taka upp Evru með þeim hætti sem daður sumra ráðamanna hefur helst staðið til. Heldur ekki að við séum yfir höfuð tæk inn í það kompaní, svona fyrir þá sem þangað langar. Þannig að dýrmætur tími og tiltrú hefur farið til spillis í þeirri umræðu.
Að svo mæltu held ég áfram í bloggfrínu og reyni að nota tímann í það sem ég þarf að hafa í forgangi þessa dagana, sem er afskaplega fjölbreytilegt. Ýmislegt sem mig langar að blogga um verður að bíða eða týnast við þessar aðstæður, þannig er bloggið bara, engin mætingaskylda heldur bara eftir hentugleikum, ótvíræður kostur. Bloggfríið mitt hefur ekki síður komið niður á blogglestri, en nokkrir bloggvina minna hafa þó orðið varir við að ég lít enn við stöku sinnum. Svo kem ég bara tvíelfd aftur inn í þessa ágætu heima við tækifæri.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:42 | Slóð | Facebook
Eins og fram kom í seinustu færslu er ég ekki bloggandi þessa dagana. Er hins vegar bráðlifandi, á fullu í skemmtilegum verkefnum og ef ég hefði ekki fengið smá vink frá boggvinkonu biði ég enn með að blogga, það þarf nefnilega að taka smá tíma til að hugsa, svona um sumt af því sem bíður bloggs þessa dagana. Umhverfistengt og fleira mikilvægt sem ég ætla að grafa mig aðeins í þegar (ef) ég finn tíma. En ef þið viljið fræðast um kjör öryrkja, lesið þá ágætt blogg Ninnu.
Lilja Bolla er líka með ágætan pistil um kaup og kjör sem heldur duga ekki til framfærslu. Og það með held ég áfram í bloggfríinu í bili. Les bloggið meira og betur fljótlega og skrifa eitthvað líka.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:36 | Slóð | Facebook
Ný skoðanakönnun sem ábyggilega verður umdeildari en könnunin um haustið
19.9.2008 | 03:40
Dollarinn í 95 krónur ...
18.9.2008 | 01:05
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:06 | Slóð | Facebook
... víxlarnir falla og blöðin detta
17.9.2008 | 15:33
Það er mikil hauststemmning í fréttum og á fjármálamörkuðum. Eftir að sólin hefur skinið á þessum mörkuðum um allnokkurt skeið þá er eins og haustgarrinn sé alveg tekinn yfir. Sumt af þessu var fyrirsjáanlegt, annað ekki. Hér heima var varað við harðri lendingu þegar stóriðjufylleríinu lyki, erlendis mátti víða heyra viðvörunarraddir líka, mestmegnis fyrir daufum eyrum. Þessar djúpu haustlægðir í fjármálaheiminum eru, eins og hauslægðirnar Gústav, Ike og afgangar þeirra hér norðar, vísbending um að of mikill belgingur, þenslan margumtalaða, getur valdið eyðileggingu.
Einhvern tíma í vor vitnaði ég í Tómas Guðmundsson, Reykjavíkurskáldið sem menn vilja endilega að sláist í hóp með ,,styttum bæjarins, sem enginn nennir að horfa á". Í vor var hægt að segja:
Í nótt hefur vorið verið á ferli
og vorið það er ekk' af baki dottið
því áður en fólk kom á fætur í morgun
var fyrsta grasið úr jörðunni sprottið.
Þá hélt ég framhaldinu vísvitandi leyndu, þótt ég viti svo sem að margir þekkja það jafn vel og ég. En það hljómar svona (það er niðurlag ljóðsins - eftir minni):
En sumir halda að hausti aftur
þá hætta víst telpur og grös að spretta
og mennirnir verða vondir að nýju
því víxlarnir falla og blöðin detta.
![]() |
Hlutabréf lækka á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook
Velkomnir, nýir Íslendingar og skynsamleg stefna í vali flóttamanna
10.9.2008 | 12:58
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:08 | Slóð | Facebook
Þá er að rjúfa þögnina (mína) um Söruh Palin
8.9.2008 | 20:41
Ég hef ekki sagt stakt orð um Söruh Palin, þótt mér séu forsetakosningarnar í Bandaríkjunum hugstæðar, enda mikilvægt að koma Bush frá. Okkur feministum er oft legið (ranglega) á hálsi fyrir að vilja fá konur í allt ,,bara af því að þær eru konur" eins og oft er sagt. Það er mikill misskilningur. Það var Hannes Hólmsteinn, en ekki feministar, sem hyllti Margréti Thatcher á sínum tíma. Og ég held að hann hafi ekki verið að hylla hana ,,bara af því hún er kona" enda ekki grunaður um neinn umtalsverðan feminisma. Mér finnst reyndar komment í viðtali sem ég tók við ofurskemmtilegan, enskan feministaleikhóp, Clapperclaw, segja allt sem segja þurfti um Margréti Thatcher: She MAY be a woman but she is not a sister!
Og þá er það Sarah. Ég ákvað að gefa henni sjans þegar ég heyrði fyrst af henni. Vissi ekkert um konuna og var tilbúin að bíta í það súra epli að McCain hefði verið sá slyngi refur að finna ómótstæðilegt varaforsetaefni. Það hefðir verið slæmt fyrir okkur sem viljum ekki framhald á veldi repúplikana. En nú hef ég heyrt smávegis frá Söruh sjálfri, hún er vel máli farin, sem er ekkert furðulegt, merkilegra hversu langt sumir (mið)aldraðir, hvítir karlar komast án þess að vera kjaftfærir. Hins vegar eru þau gildi sem hún stendur fyrir ekki fýsileg að mínu mati, á móti valfrelsi kvenna þegar kemur að fóstureyðingum, hlynnt byssueign og á móti spillingu annarra en ekki endilega í eigin ranni, ef marka má fréttir. Þannig að þótt hún sé kona, mjög frambærileg og án efa mjög hæf, þá er ég ekki sátt við að skoðanir hennar nái brautargengi. Mér er hins vegar slétt sama um óléttu dóttur hennar, mér kemur það bara ekkert við hvort hún ætlar að giftast barnsföður sínum eða ekki. Vona samt að ef hún gerir það verði það af réttum ástæðum, ekki vegna einhvers óeðlilegs þrýstins íhaldssamra repúplikana.
Þannig að sorrí, ég verð að halda með framboði karlanna tveggja, vissulega held ég að demókratar væru betur settir núna ef Hillary væri í fararbroddi, en ég er afskaplega sátt við Obama og vil hann endilega sem næsta forseta Bandaríkjanna, það væri svo sannarlega heillaspor. Og ég vona innilega að hann muni að vera ötull talsmaður fyrir feminisma, ekki veitir af og ég veit að það er fullt af góðu fólki í kringum hann sem mun halda honum við efnið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook