Góð ljóð undir svefninn - ágætis skortur á spennusögum

Uppgötvaði í gærkvöldi að ég var orðin uppiskroppa með spennusögur, sem ég les mikið af og hef alltaf gert. Ég á margar góðar bækur ólesnar en hef verið óheppin með val á þeim að undanförnu, því miður kippt með mér hverri hrútleiðinlegu gæðabókinni á fætur annarri að náttborðinu. Hins vegar bregðast ljóðin aldrei og ég verð seint þreytt á Blótgælum Kristínar Tómasdóttur og er komin með aðra innan seilingar, Birnu þó ... eftir Birnu Þórðardóttur, þegar ég sekk mér ofan í svona góða lesningu hugsa ég bara: Spennusögur, hvað? Góð ljóð eru eitthvað sem erfitt er að verða leiður á og ég get heilshugar mælt með þessum tveimur bókum.

Svo þegar að því kemur er ég búin að dusta rykið af einni sem ég fann hjá mömmu og á þar ólesnar alla vega nokkra tugi af Agötum, en núna eru það ljóðin. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Það er fátt betra fyrir svefninn en að lesa góð ljóð til að dreifa huganum. Gyrðir Elíasson er mitt uppáhald.

Þorsteinn Sverrisson, 14.3.2009 kl. 17:30

2 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Sigurbjörn læknir nokkur yrkir ljóð á síðu sinni sem gaman má hafa af. http://sigurbjorns.blog.is/blog/sigurbjorns/

Hilmar Gunnlaugsson, 15.3.2009 kl. 01:20

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Gyrðir er auðvitað einstakur. Gaman að sjá það sem Sigurbjörn er að gera, ég drakk með honum kaffi æði oft árið sem ég var á Læknablaðinu en þá var hann einmitt formaður Læknafélagsins og með skrifstofu á sama stað og ritstjórnin. Vissi ekki að hann leyndi á sér.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 15.3.2009 kl. 23:07

4 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Hann gerir það svo sannarlega.

Hilmar Gunnlaugsson, 15.3.2009 kl. 23:48

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband