Sit löngum stundum hér í lćrdómsherberginu hennar Hönnu hér í Debrecen undir flottu plakati af Albert Einstein og á ţví stendur: ,,Peace cannot be kept by force. It can only be achieved by understanding." Ţetta plakat fylgdi íbúđinni og fer henni vel. Ég horfi sem sagt á ţessi spöku orđ á hverjum degi og skil ekkert í ţví hvers vegna ţađ eru ekki allir sammála ţessu.
Fyrri myndin er frá ţví ađ Hanna fluttist í ţessa íbúđ fyrir nćstum tveimur árum og sú seinni sýnir hversu ţétt setinn bekkurinn er stundum, lappar í röđum og alls konar nytjahlutir sem tilheyra tćknivćddri tilveru íslensks námsmanns í útlöndum međ nördinn móđur sína í heimsókn.
Og aftur í daglega lífiđ: Viđ fórum á indćlan veitingastađ í kvöld, til ađ halda upp á útskriftina mína, og ég fékk meira ađ segja forláta Parker penna í útskriftargjöf frá fjölskyldunni minni, ég elska góđa penna. Stađurinn sem viđ fórum á heitir Wasabi og ţar kom ég fyrst í haust og varđ heilluđ. Varúđ, fariđ svöng á ţennan stađ. Međfram borđunum liđast ýmsir réttir á teinum og eru hver öđrum flottari. Svo er bara ađ fá sér. Japanskur stíll á innréttingum en sambland af ýmsum asískum línum í matargerđ. Viđ fórum á meiri gourmet stađ um daginn en ţessi stendur fyrir sínu. Hér er ódýrt ađ fara út ađ borđa en viđ gerum ekki mikiđ af ţví núna vegna náms og starfa.
Athugasemdir
Ég óska ţér til hamingju međ áfangann, líklega lokaáfangann í ţínni skólagöngu, eđa hvađ??
Alls ekki amalegt ađ eyđa deginum í Búdapest. Hafđu ţađ virkilega gott!!!
Lilja G. Bolladóttir, 15.6.2008 kl. 01:31
Mér finnst mjög gott ađ vinna undir ţessum orđum Einsteins og já, Lilja, ég held ađ ţessi áfangi sé lokaáfanginn á minni skólagöngu, en til öryggis lofađi ég dóttur minni ađ fara ekki aftur í skóla fyrr en efti sextugt.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 15.6.2008 kl. 08:37