Virðist vera á leiðinni í útskrift (einu sinni enn ;-)

Mér sýnist á öllu að ég sé að fara að útskrifast með master í tölvunarfræði í júní, ef ég klúðra engu á lokasprettinum. Var að fara yfir lokaverkefnið mitt með leiðbeinandanum mínum í morgun og þótt ég eigi eftir að fínpússa það þá er það á lokaspretti. Skrýtið að vinna þetta samhliða free-lance vinnu, einhvern veginn svo allt öðru vísi skilgreindur tími.  Þetta nám er búið að taka rosalegan tíma, sjaldan fengið að vera í aðalhlutverki í tilverunni, en þetta er nú samt að hafast allt saman. Frekar góð tilhugsun, en ég þarf að halda vel á spöðunum í öllum mínum verkefnum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

KNÚS Á ÞIG INN Í NÓTT OG NÆSTA DAG, MEGI HANN VERÐA FULLUR AF TÆKIFÆRUM

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 6.5.2008 kl. 02:01

2 Smámynd: Einar Indriðason

Gangi vel með verkefnið og góða útskrift

Einar Indriðason, 6.5.2008 kl. 08:02

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Takk öll, sætt af ykkur að senda svona góðan samhug.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 6.5.2008 kl. 10:15

4 Smámynd: Steinn Hafliðason

Gangi þér vel á endasprettinum

Steinn Hafliðason, 6.5.2008 kl. 10:28

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Vá, ég trúi þessu ekki!!! Að verða búin? Æðislegt, æðislegt!!! Glæsilegt að geta stundað svona erfitt nám með fullri vinnu, ekki margir gætu leikið það eftir. Þú ert snillingur.

Guðríður Haraldsdóttir, 6.5.2008 kl. 10:32

6 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Trúi því varla sjálf ;-)

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 6.5.2008 kl. 11:55

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband