Kona eignast indverskt sjal vegna nokkurrar dönskukunnáttu

Lengi vel var ţetta indverska sjal uppi í sumarbústađ, en ég tók ţađ í bćinn fyrir haustiđ og stend mig ađ ţví ađ njóta ţess ađ horfa á ţađ. Mínir litir og ţeir eru fallegir fyrir ţá sem kunna ađ meta ţá. 

2023-10-20_21-35-44Sjaliđ á sér sögu. Ţegar ég var ađ vinna í Hamborg, ásamt fólki af ýmsu ţjóđerni (33 mismunandi) voru tveir Danir međal vinnufélaga minna, en svo fór Natalie heim til Danmerkur og Anders var einn eftir af Dönunum. Viđ unnum svolítiđ saman, nógu mikiđ til ađ vera búin ađ átta okkur á ţví ađ viđ áttum sama afmćlisdag og skakkađi varla nema hálfri ćvi á okkur hvađ fćđingaráriđ varđađi. Einhvern tíma eftir ađ Natalie fór og áđur en viđ áttum afmćli dó mamma hans Anders frekar óvćnt og hann var heldur miđur sín, skiljanlega. Ţegar hann kom til baka til Hamborgar var enn í ýmis horn ađ líta og hann frekar upptekinn, en einn daginn kom hann ađ máli viđ mig og spurđi hvort ég kynni ekki dönsku? Jú, ég hélt ég gćti haldiđ ţví fram. Ţá vantađi hann nefnilega vott ađ ţví ađ hann hefđi sjálfur útfyllt smá eyđublađ sem varđađi skipti arfs milli hans og systur hans, ef ég man ţađ rétt. Anders var ekkert ađ grípa nćsta mann í verkiđ, heldur stálheiđarlegur fann hann til dönskulesandi manneskju, mig, og ég vottađi ađ sjálfsögđu allt hans verk, ekki var ţađ erfitt. Nema hvađ, daginn eftir kom hann međ ţetta fallega sjal í vinnuna og sagđi mér frá ţví ţegar hann bjó ásamt móđur sinni og systur á Indlandi, en ţađan er sjaliđ. Tvennt togađist á í mér, ađ afţakka sjaliđ af ţví ţađ var einfaldlega allt of mikiđ fyrir svona létt og lítiđ verk, eđa ţiggja ţađ af ţví ţađ er svo fallegt. Og ţannig eignađist kona indverskt sjal vegna nokkurrar dönskukunnáttu. 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband