Hópspennufall

Cesar er död, Napoleon er död og selv föler jeg mig faktisk lidt sloj, sagđi í gömlum brandara. Hálf dösuđ ţessa stundina, vinnan hefur veriđ óvenju lýjandi, stjórnmálin reynt á ţolrifin, alla vega réttlćtiskenndina og svo er ţetta svikavor ekki alveg viđ minn smekk. Ég kann miklu betur viđ sól og blíođu, og ţá meina ég logn og hlýju. Mér finnst ég skynja svipađ víđa í kringum mig. Í vinnunni eru auđvitađ ýmsir á sama bát, talsvert álag ţessa dagana, ţannig ađ ţađ er engin furđa, bloggvinir fagrir eru í sömu súpunni og ég, einhverjir fagna ákaft, en fleiri finnst mér hálf hugsi. Og öll ţjóđin heyrist mér vera meira og minna öskuill út í verđurguđina, svona eftir ţví sem hún ţorir.

Ég er ađ upplifa í annađ sinn ađ skuldinni er skellt á rangan ađila, nefndi um daginn hvernig Kvennalistakonum var kennt um ađ ţćr lentu ekki í stjórn á sínum tíma, ţótt ţeim vćri ćtlađ ađ hanga međ upp á vonlaus býti, og eins finnst mér núna ađ Steingrímur J. sé gerđur ađ blóraböggli ađ ósekju fyrir ađ hafa talađ hreinskilnislega um hvernig honum ţćtti réttast ađ standa ađ stjórnarmyndunarviđrćđum og hvers konar stjórn hann teldi helst í anda kosningaúrslitanna. Ţađ var hreinlega ekki stjórn međ Framsókn innanborđs, skýr skilabođ kjósenda, en ţađ var heldur ekki stjórnin sem nú hefur veriđ mynduđ. En vitanlega lokađi hann aldrei á neina leiđ, ţađ vita allir sem hlustuđu á hann og ađra málsvara Vinstri grćnna.

Sannarlega vona ég ađ stjórnin reynist farsćl en skynja ákveđna ábyrgđ og alls ekki ţakklátt hlutverk Vinstri grćnna í sögulegri stjórnarandstćđu. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mér líđur líkt og ţér mín kćra.  Er eins og splćstur vindill andlega. Vegna veđurs og vegn stjórnmálanna.  Ţađ misbýđur svo réttlćtiskennd minni ađ Samfó fóru af stađ međ ađ kenna Steingrími um.  Langsóttur fjandi og ferlega ósanngjarn.  Voru ţađ VG sem fóru í stjórnarviđrćđur međ íhaldinu sem fyrsta kost?  Ég held ekki.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.5.2007 kl. 00:00

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Les pistla Ögmundar Jónassonar ákaft ţessa dagana, ţeir eru góđir en sá nýjasti er samt bestur, hressandi greining og hárbeitt.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 24.5.2007 kl. 00:17

3 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Sammála ţér um ađ stjórnarsáttmálinn sé óljós - en ţeir/ţau eru strax byrjađir ađ tala sig frá skođunum sínum, t.d. Kristján L. Möller sem akkúrat núna vill ekki tala óábyrgt í Ríkisútvarpiđ um gjaldfrjálsan akstur í gegnum Vađlaheiđargöng. Reyndar er ég tilbúinn til ađ borga fyrir aksturinn ţar í gegn ef ég fć göngin, sem ég vil ađ fari líka undir Eyjafjörđ til ađ forđast tafir fyrir Ţingeyinga á Akureyri og minnka mengunina hér í bćnum.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 24.5.2007 kl. 08:05

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Mér líst sérlega vel á göngin undir Eyjafjörđinn af sömu ástćđum og ţú nefnir, Ingólfur.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 24.5.2007 kl. 11:58

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband