Skýringin fengin

Var að þvælast um á hinum bloggunum þegar ég rakst á samantekt á umræðunni um formann KSÍ, eins og hún var áður en Halla var ,,ekki kjörin". Uppruni þessarar samantektar er á síðu Hrafns Jökulssonar og hér er linkur þangað. Þetta er ótrúleg lesning, einkum í ljósi úrslitanna. Takk þið sem leidduð mig á þessa síðu og takk Hrafn. Til að fyrirbyggja allan misskilning þá er rétt að taka það fram að þessi síða birtir fordómafullt spjall sem Hrafn tíndi til og birti höfundum til háðungar. Tekið fram að gefnu tilefni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heldur þykir mér Hrafn minn hafa minnkað við þetta, en það bara mín skoðun.

Guðmundur G. Hreiðarsson 12.2.2007 kl. 07:45

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Held að Guðmundur misskilji þetta. Hrafn birti bara skítkast sem ýmsir gaurar hafa skrifað um Höllu. Hrafn finnur oft svo einstaklega áhugaverða hluti og birtir á síðunni sinni! Ég hef oftar en ekki þakkað honum kærlega fyrir skrifin! Hann er æði!

Guðríður Haraldsdóttir, 12.2.2007 kl. 09:08

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Nokkuð ljóst að Hrafn er að birta þetta mönnunum til háðungar, þannig að ég endurtek, takk Hrafn fyrir að afhjúpa umræðuna.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 12.2.2007 kl. 10:51

4 identicon

Já, já, svo þið viljið bara meina að það átti að kjósa Höllu, ekki vegna ágætis hennar, heldur vegna kyns!

Þið verið að fyrirgefa, en fulltrúar aðildarfélaga KSÍ kusu Geir ekki vegna þess að hann pissar standandi, heldur vegna þess að þeir treysta honum og hann hefur verið starfandi lengi innan KSÍ og því þekkja þeir hann og hans verk.

Halla er nánast óskrifað blað, en það eitt virðist vera næg ástæða til að þið heimtið hana í formannssætið.

Ekki vegna ágætis síns, heldur vegna þess að hún pissar sitjandi. Það er asskotans enginn munur á ykkur og nafnlausu óþverrunum á heimasíðunum sem Hrafn vitnaði í.

Fyrirgefið orðbragið.

Ólafur Garðarsson 12.2.2007 kl. 16:44

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég hef ekkert á móti Geir! ??????? Mislíkaði skítkastið sem Halla fékk hjá nafnlausu óþverrunum! Ég hlýt að mega tjá mig um það án þess að ég sé að skammast út þann góða mann fyrir að vera karlmaður! ???? 

Guðríður Haraldsdóttir, 12.2.2007 kl. 18:21

6 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Mér finnst athyglisverðast að fá svona viðbrögð. Hafði ekki sterka skoðun á þessu kjöri fyrir þar sem ég set alltaf spurningu um keppni um formennsku, eins og fram kom í fyrri pistli mínum, en núna sé ég að það hefði verið miklu stærra skref í jafnréttisátt að fá Höllu til forystu en mig hafði órað fyrir. Takk.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 12.2.2007 kl. 18:45

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband