Færsluflokkur: Samgöngur

Álftanesvegur við Flatahraun - ha?

Í morgun var mikil romsa um vegalokanir í útvarpi en allt í einu sperrti ég eyrun þegar orðið Álftanesvegur heyrðist í upptalningu um lokaða vegi (til kl. 18 í dag, sem kássast ekki uppá mig, C-manneskjuna). Við Álftnesingar höfum auðvitað stundum orðið vör við umferð vegna forsetasetursins en hún er yfirleitt afskaplega lítið tefjandi. Nánar til tekið var þetta Álftanesvegur við Flatahraun, og þá strax velti ég því fyrir mér hvort þetta væri litli vegastubburinn sem ég veit aldrei almennilega hvar er. Var samt alveg tilbúin að taka Flatahraun fyrir Fjarðarhraun. Svo sá ég að einhver miðillinn bætti um betur og staðsetti þessa lokun við sælgætisgerðina Góu, og þá gat ég ekki stillt mig um að leita á korti. Þessi litli vegastubbur er ofan við Kaplakrika og í hvert sinn sem ég ek hann, þá geri ég það án þess að fatta að ég sé á Álftanesveginum. Augljóst er að unnt er að tengja ,,þann eiginlega, svokallaða Álftanesveg" (svo ég noti hliðstætt orðalag og Árni prófastur í Görðum notaði árið 1842 um Álftanesið) við þennan stubb ef leyfi fæst og vilji er til. alftanesvegur


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband