Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Á baráttudegi kvenna verður mér hugsað til ...
8.3.2007 | 16:34
... kvennanna í erfiðisvinnunni á sjúkrahúsunum sem þurfa að dröslast með þunga sjúklinga en fá ekki greiðslur eins og aðrir sem stunda erfiðisvinnu.
... fjölgunar kvenna í stjórnum, nefndum, ráðum og á þingi seinustu tvo áratugina. Man einhver þegar það voru bara þrjár konur á þingi? Já, það var fram til ársins 1983.
... bakslags í fjölgun kvenna í stjórnunarstöðum og pólitík.
... hversu glæsilega konur og karlar um allan bæ eru að fagna þessum degi.
... launabilsins milli karla og kvenna.
... allra ungu stelpnanna sem eru að gera það gott á öllum sviðum samfélagsins.
... kynferðisofbeldis sem enn virðist ekki vera búið að uppræta.
... allra strákanna og karlmannanna sem eru yfirlýstir, stoltir feministar.
... þeirra kvenna sem þora ekki að leggja feminismanum lið.
... VG og framrásar kvennabaráttunnar innan vébanda flokksins.
Orðskýringar Önnu um ESB
7.3.2007 | 22:36
Þið eruð örugglega ekki öll sammála mér. En skoðið, hugsið, og sjáið til hvort þetta er ekki einmitt rétt.
Þegar sagt er:
Ég er Evrópusinni
... þá er raunverulega átt við:
Ég er Evrópusambandssinni
Þegar sagt er:
Ég vil að við skoðum með opnum hug: aðild að Evrópusambandinu/upptöku Evrunnar/aðildarviðræður við ESB
... þá er raunverulega átt við:
Ég vil að við göngum í Evrópusambandið
Þegar sagt er:
Við getum haft (mikil) áhrif á stefnu Evrópusambandsins
... þá er raunverulega átt við:
Ég er svo klár að ég get sannfært kallana í Brussel, alla vega um eitthvað sem fólkið heima kaupir.
Þegar sagt er:
Við megum ekki eingangrast
... þá er raunverulega átt við:
Ég vil ganga í Evrópusambandið
Þegar sagt er:
Við getum alveg tekið upp Evruna án þess að ganga í Evrópusambandið
... þá er raunverulega átt við:
Ef ég fæ fólk til að sannfærast um að við eigum að taka upp Evruna þá neyðumst við til að ganga í Evrópusambandið
Þegar sagt er:
Mér finnst að við eigum að láta reyna á það hver langt við komumst í aðildarviðræðum við ESB
... þá er raunverulega átt við:
Auðvitað veit ég að við förum ekki í aðildarviðræður með annað að markmiði en að ganga í Evrópusambandið, en það vita ekki allir og kannski er þetta eina ráðið sem dugar til að koma okkur inn
Við sem erum andstæð aðild að Evrópusambandinu kunnum ekki þessa felulist, kannski höfum við bara ekkert að fela. Ég hef til dæmis aldrei heyrt sagt: Ég vil að við skoðum með opnum hug að standa utan Evrópusambandsins. Hugsið málið. Kannski meira seinna, og allar viðbætur velkomnar.
Merkilegur titringur í gangi
7.3.2007 | 12:23
Áhugavert að skoða viðbrögðin við þessari frétt, sem að mínu mati er frekar frétt vegna þeirra sem ekki eru með á þessu áliti. Afstaða þessara flokka hefur alltaf verið skýr og aðalástæða fyrir andstöðu við inngöngu sú sem fram kemur í fréttinni. Þótt nýr formaður Framsóknar hafni aðild á næstum árum virðist hann ekki geta hamið sitt lið. Afstaða Samfylkingarinnar er ljós, hún er á leið í ESB, nánast ein síns liðs heyrist mér stundum, eins og þegar stungið var upp á því á sínum tíma að veita Jóni Baldvin einstakingsaðild að ESB. Svo er bara spurningin hvort einhver er tilbúin að setja aðildarviðræður á svo háan stall í stjórnamyndunarviðræðum að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum eða VG. Ég held að þeir flokkar sem myndu taka slíka afstöðu væru sjálfkrafa að dæma sig úr leik í næstu ríkisstjórn, því hún verður vart mynduð án annars hvors þessara flokka, eða beggja.
![]() |
VG og Sjálfstæðisflokkur gegn ESB-aðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:25 | Slóð | Facebook
Í fullu samræmi við veruleikann
6.3.2007 | 18:34
![]() |
Konur í Samfylkingu og Framsókn á leið til vinstri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónleikar á fimmtudaginn í Fríkirkjunni
6.3.2007 | 13:36
Var að fá meldingu um spennandi tónleika á fimmtudaginn, svona fyrir þá sem vilja sjá aðra hlið á Páli Óskari en í X-factor, og miklu mun ljúfari. Það er reyndar fullt af góðu fólki sem ætlar að leggja góðu málefni lið, en tónleikarnir eru til styrktar Vímulausri æsku og Foreldrahúsinu.
Mér er málið æði mikið skylt þótt ég sé alveg hætt öllum stjórnarstörfum í samtökunum, en ég er búin að fylgjast með þessum samtökum síðan ég var lausapenni í blaðamennsku og vann blað fyrir samtökin næstum um 20 árum. Þetta eru öfgalaus samtök (með fjármálin á þurru og því miður allt of lítið af peningum) og þarna hafa foreldrar krakka sem lenda í vanda getað leitað aðstoðar á göngu sinni gegnum kerfið og litlu systkinin átt aðgang að styrktarhópum og uppbyggilegum námskeiðum, því oft eru þau í áhættu þegar allt snýst um fíkilinn. Krakkarnir sem komast upp úr farinu eiga síðan aðgang að stuðningi eftir á, sem lengst af hefur vantað. Það er áreiðanlega enginn til sem sættir sig við að til séu krakkar í samfélaginu sem við nennum ekki að berjast fyrir að fái að lifa betra lífi.
Eftir Byrgismálið er eins og þessi málaflokkur sé orðinn svolítið ósnertanlegur á nýjan leik, og það er auðvitað bara blekkingarleikur, því eftir sem áður eru margir í vanda, Vímulaus æska og Foreldahúsið hafa haft hlutverki að gegna gagnvart fjölskyldum fíkla og krökkunum sem eru að reyna að fóta sig aftur í samfélaginu. Þannig að ég ætla bara að hvetja alla sem komast að kíkja í Fríkirkjuna á fimmtudagkvöldið - hér er bréfið sem ég fékk og rétt að taka fram að það verða líka seldir miðar við innganginn meðan pláss leyfir alla vega:
VÍM 2007
Fjölskyldutónleikar til styrktar Vímulausri æsku Foreldrahúsi verða haldnirfimmtudaginn 8. mars nk. kl. 19:00-20:30 í Fríkirkjunni í Reykjavík. Eftirtaldir tónlistarmenn koma fram: Páll Óskar og Monika, Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson (úr Mezzoforte), dúettinn Picknick (Sigga Eyþórs og Steini úr Hjálmum), Hilmar Garðarsson trúbador, Halli Reynis trúbador, Elín Eyþórsdóttir og Helgi Valur Ásgeirsson trúbadorKynnir á tónleikunum verður Felix Bergsson leikari. Miðaverð er kr. 2.000 og er hægt að kaupa miða í Foreldrahúsi við Vonarstræti 4b í Reykjavík, símar: 511 6161 og 511 6163. Bæði er hægt að staðgreiða miða og greiða með greiðslukorti (debet og kredit). Einnig er hægt að hringja og panta miða í síma og leggja þá inn pening beint á reikning sem við gefum upp við viðmælandann. Tónleikarnir eru ætlaðir öllu fólki sem hefur gaman af lifandi tónlist og vill sýna hug sinn í verki til styrktar vímuvörnum meðal barna og unglinga. Styrktartónleikarnir eru skemmtun fyrir alla fjölskylduna og eru foreldrar hvattir til að mæta með unglingum sínum. Frítt fyrir börn 10 ára og yngri Nánari upplýsingar: www.vimulaus.is
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:30 | Slóð | Facebook
Alltaf hægt að vona - en líklega lafir stjórnin út kjörtímabilið
5.3.2007 | 19:34
Fréttaflutningur af árekstrum í stjórnarsamstarfinu er til þess fallinn að auka bjartsýni á að stutt sé til kosninga. Fréttaflutningur, ítreka ég, ekki endilega sá veruleiki sem þar liggur að baki. Framsókn mun eflaust hanga í stjórn eins og hundur á roði eins lengi og hægt er. Og varla verður séð að það þjóni hagsmunum Sjálfstæðismanna að flýta kosningum heldur. Samfylkingin ræður kannski engu, en varla dreymir hana um um að kosningar bresti á. Þannig að það er ábyggilega talið ,,pólitískt klókt" að hóta stjórnarslitum, skilgreina sig frá stóra flokknum, og vona svo það besta undir stjórn kosningaímyndarkónganna. Framsókn hefur yfirleitt verið frekar heppin með auglýsinga- og ímyndarstofur, til dæmis þegar Heiðar snyrtir klæddi Pál Pétursson upp í málmblá föt og Finn í sumarmosagræn jakkaföt. (Sumarmosinn er grágrænn en vetrarmosinn er skærgrænn, ég hef aldrei séð mosagrænan mosa ). Reyndar fataðist þeim aðeins þegar stóru andlitsmyndirnar af Halldóri og Finni voru út um alla borg, ætla ekki að rifja upp brandarann sem þá var sagður, en hver man ekki eftir ,,Klettinum í hafinu", og skiptir þá engu þótt einhverjir hafi kallað hann Kolbeinsey. Kletturinn í hafinu virkaði á marga, ekki satt?
Núna hljómar eins og ímyndarsmiðirnir hafi, rétt einu sinni, sagt: Sýnið ákveðni! Enda varla við öðru að búast, ekki fara þeir að segja: Sýnið linkind! En hvað svo sem veldur, þá er kominn ansi mikill kosningaskjálfti í stjórnmála- og fréttamenn og á hverjum morgni, áður en ég vakna almennilega, þá trúi ég því andartak að það verði kosið eftir 3-4 vikur. En svo vakna ég betur og veit að ég þarf að þrauka í næstum tíu vikur í viðbót. En ekki lengur, ekki lengur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:38 | Slóð | Facebook
Húrra Sóley og tekst að þökuleggja hægri pólitíkina?
4.3.2007 | 13:25
Umræðan um klám var að komast í hreinasta öngstræti hjá gestum Egils Helgasonar þegar Sóley Tómasdóttir hreinlega jarðaði allt ruglið í sumum hinna gestanna í þættinum og skildi mannskapinn eftir kjaftstopp. Egill hafði vit til að stoppa umræðuna þar, enda var ekki meira um málið að segja eftir áhrifaríka lýsingu Sóleyjar á nöprum veruleika þessa iðnaðar og fórnarlamba hans. Húrra Sóley.
Svo mætti Ómar til leiks. Hann boðar, eins og á bloggsíðunni sinni, framboð innan skamms. Nú á að leggja grænar þökur yfir hægri og miðsvæðin í pólitík, það er að segja ef það tekst. Ég óska Ómari og félögum alls góðs í þeirri viðleitni sinni og vona að hann beri gæfu til að sitja ekki uppi með of marga kverúlanta eða lið sem ekki fær byr hjá öðrum flokkum (lengur) og tek fram að ég er alls ekki að tala um Margréti Sverris og hennar fylgismenn, því það er að mínu mati hópur fólks sem í rauninni er hinn eiginlegi Frjálslyndi flokkur, þótt innkoma annarra lukkuriddara hafi hrakið þau úr flokknum. Forvitnilegt að sjá hvernig til tekst. Við fáum víst að vita það innan 10 daga.
Smá upprifjun frá Herferð gegn hungri
4.3.2007 | 01:16
Ætli ég hafi ekki verið 13-14 ára þegar ég hljóp á milli bæja hér á Álftanesi og safnaði fyrir Herferð gegn hungri. Þá voru það börnin í Biafra sem við vorum að reyna að bjarga og síðan höfum við séð margar tilraunir hér á Vesturlöndum (Live Aid, Live 8 o.fl.) til að bjarga hungrinu í heiminum, lært margar lexíur, grátið mörgum söltum tárum og horfið svo aftur til leikja og starfa eins og gengur. Sumir hafa gerst þátttakendur í að reyna að hjálpa, sem einstaklingar í hjálparstarfi, og ég hef alltaf verið svolítið hugsandi eftir að hafa í tvígang tekið viðtal við Sigríði Guðmundsdóttur, eina okkar allra öflugust manneskju í hjálparstarfi fyrr og síðar. Fyrst fyrir blað sem gefið var út fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar og síðan fyrir bók sem hét Lífsreynsla, en sú frásögn hét ,,Ekki varð öllum bjargað".
Þar sem ég er nú allt í einu farin að horfa á sjónvarp, þá datt ég inn í kvikmynd (Beyond Borders) sem byrjaði (með svona smá útúrdúr) í hjálparstarfi í Afríku og enn og aftur fékk maður þessa magnleysistilfinningu að ekki yrði öllum bjargað. En það var bara hollt að rifja upp þessa tilfinningu frá unglingsárunum í skugga Biafra stríðsins, fyrst var maður að reyna að safna peningum, svo að gera einhverjar áróðursmyndir (teikningar - man ekki hver stóð fyrir því átaki) og svo fjaraði þetta einhvern veginn út. Aftur vaknaði aftur með hverri aðgerð. Raunsætt séð veit ég ósköp vel að engin töfralausn er til, en það merkir ekki að maður eigi að gleyma þessum málum, af því þau eru erfið eða vonlítil. Sagt er að gleymskan sé það versta, gleymd stríð, gleymt neyðarástand. Held að þessi kvikmynd hafi verið gerð af góðum hug, þótt hún sé svolítið væmin á köflum.
Þegar við vorum að safna fyrir Herferð gegn hungri á sínum tíma sagði ráðskonan á Bessastöðum í gríni: Fransbrauð eða rúgbrauð? Ég varð hálf vandræðaleg yfir því að fara að hlæja, fyrir 13 ára stelpu var þetta auðvitað allt of mikið alvörumál til að grínast svona með það. Fyrsta kast af vondu samvisku Vesturlandanna og greinilega ekki vaxin upp úr því enn.
Baugsrappið
3.3.2007 | 20:46

Óskhyggja eða verður af því núna?
3.3.2007 | 13:52
Mér finnst ég hafa heyrt þetta áður. Rétt fyrir kosningar er kominn pirringur og yfirlýsingar. Þetta þykir víst pólitískt klókt, hef aldrei verið neitt óskaplega trúuð á þessa pólitískt klóku leiki. Þegar upp er staðið eru það raunveruleg stefnumál og heiðarleiki sem gilda, en líklega deila ekki margir þessari skoðun með mér.
Fyrst þegar ég heyrði orðróm um mögulegt stjórnarslit á einhverri bloggsíðu blaðamanns, þá fannst mér hann leiða allgóð rök fyrir því að núna gæti möguleikinn verið raunverulegur. Það er löngu kominn tími á uppstokkun og línurnar í stjórnmálum gerólíkar því sem gerðist fyrir fjórum árum þegar fulltrúar okkar voru kjörnir. En eftir því sem æsingurinn verður meiri og yfirlýsingarnar stangast meira á, þá er ég hrædd um að þetta séu bara fastir liðir eins og venjulega og ég er ekkert svo vongóð um að kosningum verði flýtt. Óskhyggjan segir mér að við eigum að kjósa strax, en spá mín er sú að við þurfum að bíða eftir settum kjördegi.
![]() |
Núningur og kurr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |