Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Írak - og hvað svo?
19.3.2007 | 20:54
Bush er að fjölga í herliðinu í Írak, sífellt fleiri Bandaríkjamenn eru annarrar skoðunar, heimsbyggðin fylgist með og sumir leiðtogar eru komnir með slitsár af því að reyna að þvo heldur sínar af ábyrgðinni á því sem er að gerast í Írak. Andstaðan gegn Íraksstríðinu vex og vex og ég vona að við förum bráðum að sjá fyrir endann á þessari martröð sem byrjaði fyrir fjórum árum. Að setja svona mikið vald í hendur svo fárra manna gegn andstöðu sem jafnvel nær til meirihluta þeirra þjóða sem þeir eiga að vera fulltrúar fyrir hlýtur að vera rangt. Er ekki kominn tími til að hugsa stjórnmál og völd upp á nýtt og finna betri leið en þá sem hefur leitt okkur út í þessa óásættanlegu stöðu?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook
Ærandi þögn Ómars og Margrétar
18.3.2007 | 15:13
Á Samfylkingin kannski að ganga í Vinstri græn?
18.3.2007 | 12:39
Egill var að flytja ,,leiðara" Silfursins og varpaði því fram að draumur Samfylkingarinnar um stóran flokk á vinstri vængnum myndi sennilega ekki rætast nema Samfylkingin gengi í Vinstri græn. Af hverju hoppaði ég ekki hæð mína upp af gleði? Líklega af því ég tel mig ekki eiga heima í flokki með Evrópusambandssinnum, stóriðjusinnum og fólki sem ég veit ekki hvaða skoðanir hefur í fjölmörgum málum. Hins vegar er hægt að starfa saman á skýrt afmörkuðum forsendum og því betur skilgreindar og niðurnegldar forsendur, þeim mun meiri von til að hægt verði að mynda góða ríkisstjórn. Ekki líst mér neitt sérlega vel á að einhver F-flokkur verði þriðja hjólið undir vagninum, hins vegar má eflaust lifa við að Íslandsflokkur Ómars yrði með, ef hann einhvern tíma verður barn í brók. Fleiri möguleikar eru í stjórarsamstarfi og mér leist bara harla vel á þá hugmynd að sjá Steingrím með stjórnarmyndunarumboðið í höndunum. Held þó að Ólafur Ragnar vildi frekar reyna að koma því yfir í hendur Samfylkingarinnar, en það gæti orðið erfitt að réttlæta það, ef það er fyrirstaða fyrir ÓRG, sem ég hreinlega veit ekki.
Afmæli Loftorku og aðrar myndir úr tilverunni
17.3.2007 | 03:25
Afmæli Loftorku, Reykjavík, að baki, 45 árum fagnað og á morgun, laugardag, verður haldið upp á afmælið hjá Loftorku, Borgarnesi. Meðalaldur verktakafyrirtækja er ekki ýkja hár, en Loftorka hefur siglt í gegnum allan ólgusjó sveiflna á verktakamarkaði til þessa. Margir starfsmennirnir hafa verið um áratuga skeið hjá fyrirtækinu. Tengdaforeldrar mínir, Siggi og Sæa, hafa helgað líf sitt þessu fyrirtæki, lengst af var Sigurður í eldlínunni en þegar hann féll frá fyrir nokkrum árum tók Sæunn við stjórnartaumunum. Margir úr fjölskyldunni hafa unnið alla sína starfsævi hjá Loftorku, aðrir skemur og stundum held ég að ég sé sú eina sem ekki hef gert það, en í staðiinn hafði ég athvarf þar á meðan á ritun sögu Sandgerðis stóð, og það var mjög notalegur tími. Þannig að ég get sagt eins og fleiri að það sé fínt að vinna hjá Loftorku.
Byrjuð að setja inn á bloggið myndir frá afmælinu í dag og stefni að því að setja fleiri myndir inn, en á morgun er það sem sagt Borgarnes sem kallar. Ennfremur skellti ég talsverðum skammti af Kanarí-myndum í myndasafnið, enda held ég að ég hafi verið búin að lofa því einhvern tíma, ef ekki þá hef ég bara efnt ógefið loforð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:46 | Slóð | Facebook
Þarf að auka vægi framkvæmdavaldsins? Um skrifstofurnar 60 í tillögum Framsóknarflokksins.
16.3.2007 | 23:07
Ekki veit ég hversu mikið vægi tillögur Framsóknarflokksins í Stjórnarráðsmálum er, en samt er alltaf vert að gefa því gaum þegar verið er að leggja einhverjar línur í grundvallarplagginu, sem stjórnarskrá hlýtur að teljast, alla vega meðal þeirra þjóða sem hafa slíkt plagg. Það sem ég hnýt um við fyrstu yfirferð í tillögum Frammara er ákveðin tilhneiging, vonandi óaðvitandi, til að auka vægi framkvæmdavaldsins á kostnað löggjafavaldsins. Mögum hefur reyndar þótt nóg um hversu mikið vald framkvæmdavaldsins er í raun. Þarna er tvennt sem ég get ekki skilið á annan veg, annars vegar að færa það vald sem löggjafavaldið hefur nú varðandi skipan ráðuneyta til framvkæmdavaldsins. Hins vegar eru það þessar 60 skrifstofur ráðuneytanna sem valda mér heilabrotum. Kannski er þetta ekkert nýtt, kannski eru skrifstofurnar svona margar nú þegar, vonandi ekki, en ég er samt ekki alveg að skilja. Mér finnst vera tilhneiging til að auka vægi skriffinna (afsakið ljómandi góða fólk í ráðuneytunum) og ég get ekki alveg varist þeirri hugsun að það sé verið að hugsa í áttina til fyrirkomulagsinshjá ESB í Brussel, sem þó er bullandi ágreiningur um í Framsókn hvort er draumaskipulagið. Skriffinnar í Brussel eru afskaplega óhressir með tilvist og vald Evrópusambandsþingsins og vilja það helst sem minnst, og´mér finnst að sjálfrátt eða ósjálfrátt sé verið að stíga skref í þessa átt. Ekki gleyma því að þingmenn eru bara 63 og án persónulegra aðstoðarmanna, hvernig mun þeim ganga að glíma við 60 skrifstofur, jafnvel vel mannaðar, og ég segi glíma við, því ég hef sjálf upplifað pirring hjá ráðuneytisfólki þegar kjörnir fulltrúar fólksins eru eitthvað að reyna að breyta því sem ráðuneytisfólkið hefur ÁKVEÐIÐ. Mér finnst að við eigum að færast nákvæmlega í hina áttina, til meira lýðræðis alls fólks, en ekki aukins vægis fulltrúa sem ekki eru kjörnir af fólkinu.
Ef tillögur Framsóknarmanna eiga að hníga í aðra átt en það sem ég les úr þeim, þá vinsamlegast hefjið umræðu hér í blogginu mínu, því mér er það talsvert hjartansmál að afhenda ekki það litla vald sem enn er kosið um til þeirra sem ekki eru til þess kjörnir, það er embættismanna. Hef heyrt rökin um stöðugleika og að embættismenn (skipaðir af tilteknum ráðherrum og mögulega ævilangt flokkshollir) afi þurft að ,,lifa af" ákveðna ráðherra, en ég er bara einfaldlega ekki sammála þeim rökum. Eiga sem sagt 60 skrifstofurnar að lifa ótal ríkisstjórnir og þingmeiri og -minnihluta.
Hins vegar er ég afskaplega sammála því að ráðherrar eigi ekki að sitja á þingi, ástæðan er einföld, þeir hafa of lítinn tíma til að sinna þingstörfum og ekkert skrýtið að Framsókn leggi þá tillögu fram, því í þeim flokki hefur komið upp sú staða að illa hafi gengið að manna formennsku og aðrar skyldur í þingnefndum vegna þess að annar hver þingmaður flokksins er orðinn ráðherra. En það gerir tillöguna alls ekki minna rétta að mínu mati.
![]() |
Stjórnarráðsnefnd Framsóknarflokksins leggur fram tillögur að drögum að frumvarpi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.3.2007 kl. 03:45 | Slóð | Facebook
Menn vilja ekki heyra það sem lætur óþægilega í eyrum
14.3.2007 | 00:26
![]() |
Ragnar Arnalds: Hugmyndir um yfirráð Íslendinga ótryggar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:28 | Slóð | Facebook
Nýjar hliðar á Breiðavíkurmálinu enn að skjóta upp kollinum. Grein Ásu Hjálmarsdóttur í Morgunblaðinu um daginn hreyfði við mörgum og mér finnst vel til fundið hjá Mogganum að fylgja henni eftir með viðtali við hana. Í sama blaði er líka frásögn af ráðstefnu sem verður 15. mars um fátækt á Íslandi, en Harpa Njálsdóttir hefur öðrum fremur rannsakað þá staðreynd að enn má finna fátækt í allsnægtarsamfélaginu okkar. Eitt af því sem Ásu svíður sárast og fram kemur í hennar grein og viðtali er að hafa verið látin gjalda fátæktar, á meðan synir betur stæðra bæjarbúa fengu allt aðra meðferð. Ekki hægt annað en fyllast hljóðlátri reiði út af því hvernig samfélagið brást við þá og reyna að læra af mistökunum. Ef það getur verið að enn séu fordómar í gangi vegna fjárhagsstöðu fólks, þá þarf að uppræta þá, enn mikilvægara er að uppræta fátækt. Við hljótum að vera nógu rík þjóð til að geta séð vel um alla.
Raunar þarf ég ekki að segja ef, enn eru til fordómar, mis vel duldir. Ég veit um tilvik þar sem annað foreldri var talið síður hæft til að hafa barnið sitt en hitt, sökum fátæktar, þrátt fyrir að um harðduglega manneskju væri að ræða. Í stað þess að tryggja stuðning var horft til óréttlætanlegra aðstæðna. Við vitum líka af því að fjárhagsstaða aldraðra og öryrkja er ekki alltaf til að hrópa húrra fyrir. Kannski er ekki verið að taka börn af öryrkjum eða ömmu og öfum (sem stundum annast barnabörnin) en það er alla vega verið að bíta hausinn af skömminni með því að láta eitt óréttlæti (fátækt) réttlæta annað óréttlæti. Þannig að enn eru dæmi í nútímanum sem ættu ekki að sjást.
Álverið í Straumsvík hefur ekki aðeins áhrif í Hafnarfirði
11.3.2007 | 19:56
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook
Hit the road Jacques
11.3.2007 | 19:47
Það fyrsta sem mér datt í hug þegar Jacques Chirac er loks að hætta. Í upphafi forsetaferils hans var þetta sungið (danskir mótmælasöngvarar) gegn kjarnorkuvopnatilraunum Frakka í Suður-Kyrrahafi 1995. Þessar tilraunir höfðu þá verið í gangi í nokkur ár og þegar ég átti leið um Tahiti 1989 var mér reyndar bannað að fara inn í landið nema ég lofaði að skrifa ekki um tilraunirnar. Ég var bara venjulegur ferðalangur en gaf upp starfsheiti mitt, blaðamaður, og það kallaði á þessi viðbrögð. Sem sannur Íslendingur, friðarsinni og fulltrúi kaldastríðskynslóðarinnar var mér ekki ljúft að gefa þetta loforð, og ekki minnkaði samviskubitið þegar ég hitti af tilviljun Ástrala á ferjunni til nágrannaeyjarinnar Morea, sem var með bók í fórum sínum þar sem drepið var á þessar ömurlegu tilraunir. Ég sagði honum frá loforðinu sem mér hafði verið gert að gefa og pirringi yfir að vera sett í þessa stöðu og á endanum reif hann þessar síður út úr bókinni og gaf mér. Ég hélt heit mitt, alltaf verið frekar fyrir að standa við orð mín, og skrifaði ekkert, en hins vegar fjallaði ég um málið í útvarpsþætti sem ég var með um ferðina. Engin tímamótaumfjöllun en hins vegar fannst mér það beinlínis skylda mín að koma þessu á framfæri prívat og persónulega, þótt ekkert hafi skort á vandaða umfjöllun um málið í íslenskum fjölmiðlum.
Og nú er Jacques að hætta, hitting the road, fjölmargir aðrir gripið þessa setningu á lofti vegna annarra tilefna, í viðskiptalífinu og íþróttum jafnvel. Þannig að þó þessi setning er ekki tengd bara Jacques Chirac lengur, þá langar mig enn að eignast eintak af gamla, danska mótmælasöngnum.
![]() |
Chirac segist ekki gefa kost á sér áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook
Skipulagstillögur á Álftanesi og Álftanespólitíkin
11.3.2007 | 18:16