Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 154
- Frá upphafi: 575852
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 119
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Nokkrar bækur í tilverunni
Bækur hafa áhrif - hér eru nokkrar sem virkuðu á mig. Áskil mér rétt á að breyta listanum, en svona er hann í dag.
-
Jón Helgason: Úr landsuðri
Ljóð Jóns Helgasonar fræðimanns og skálds eru yndisleg, allt frá Afmæli kattarins til Áfanga. Lesið þau öll, oft!
***** -
Germaine Greer: The Obstacle Race
Listasagan hennar Germaine Greer - uppáhalds feminismabókin mín
**** -
Sigurður Guðmundsson: Tabúlarasa
Ætla ekki að reyna að skýra hvers vegna þessi heillar mig mest, þið verðið bara að lesa hana ... eða ekki.
***** -
E. H. Carr: What is history?
Bókin sem réð úrslitum um að ég varð sagnfræðingur.
*** -
Hómer: Illionskviða
Las hana mölbrotin á spítala og fannst hún flott.
**** -
Steinunn Sigurðardóttir: Sífellur
Steinunn er flott ljóðskáld
**** -
Eleanor H. Porter: Pollýanna
Ótrúlega skemmtilegur heilaþvottur, virkar enn (stundum).
*** -
Antoine de Saint-Exupéry: Litli Prinsinn
Lífsspeki og húmor.
****
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Stolt af því að vera frá landinu þar sem búsáhaldabyltingin var gerð
31.1.2009 | 17:46
Mér finnst þetta svo fallegt orð: Búsáhaldabylting. Kannski ég endurveki fegurðarsamkeppni íslenskra orða, seinast sigraði orðið ljósmóðir og það voru einmitt ljósmæður sem náðu fram (að ég held) bestu og réttlátustu kjarabótum síðasta árs. Kannski fylgir lukka sumum orðum - svo framarlega sem merkingin á bak við þau er góð, eins og í þessum tveimur orðum.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:19 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Af mbl.is
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Sammála, sum orð eru fallegri en önnur, ljósmóðir er eitt fallegasta orð íslenskrar tungu og þær hafa eitt af mikilvægustu störfum lífsins að gæta.
Búsáhaldabyltingin er svona orð líka.
Jenný Anna Baldursdóttir, 31.1.2009 kl. 18:14
Já ljósmóðir er mjög fallegt orð ;)
Aprílrós, 31.1.2009 kl. 20:20
Vona að það fylgi sama lukka orðinu eins og raunin varð á með ljósmóður.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 31.1.2009 kl. 20:21
Þetta orð er náttúrulega bara snilld, vona að það verði notað þegar hinar þjóðirnar taka við sér. Spurning hvort það nái að halda sjarma sínum á öðrum tungumálum.
Búsáhaldabylting á dönsku kökkengrej-revolution
Búsáhaldabylting á ensku kitchenware-revolution
Lilja Kjerúlf, 31.1.2009 kl. 20:25
The Household Revolution
Svanur Gísli Þorkelsson, 31.1.2009 kl. 20:34
Skemmtilegt orð og vonandi að lukkan fylgi því
, 31.1.2009 kl. 20:51
Flokkurinn sem svipti Hafnfirðinga 2500 til 3000 störf þegar þeir börðust á móti stækkun ISALs er tekinn til starfa ,en samt lofuðu þeir störfum á móti þeim sem töpuðust þegar deiluskipulagið var fellt var á sínum tíma hvar eru þau störf?.
Á meðan blæðir Hafnarfjörður og hafnfirskt verkafólk, fjölskyldur missa heimili sín og þið gleðjist er það sjúkt hugsið og svarið.
Kv. Sigurjón Vigfússon
Rauða Ljónið, 31.1.2009 kl. 23:23
Ég bið fólk sem vill tjá sig í athugasemdakerfinu mínu að halda sig innan velsæmismarka. Annars neyðist ég til að loka á það. Að saka aðra um sjúkt hugarfar vegna þess að það hefur aðrar hugmyndir um atvinnusköpun er ekki stórmannlegt. Áliðnaður er sveiflukenndur, fórnarkostnaðurinn hár, kostnaðurinn við hvert starf mikill og íbúarnir sjálfir mótmæltu þvert á öll flokksbönd.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 1.2.2009 kl. 00:08
Ég er samála. Nú get ég sagt hvaðan ég kem án þess að skammast mín erlendis. Það má gjarnan einhver koma með þýðingu á orðinu á fleiri tungumállum.
Kristin Emelie 1.2.2009 kl. 01:05
Ég bið líka þeir sem segja satt verði útilokaðir eins og AO segir sannleikurinn er hættulegasta vopnið gegn lýðræðinu þess vegna verður lokað á mig á þessari síðu, bless og takk fyrir mig lýðræðið er einungis fyrir VG ekki fyrir verkafólk, eins og Anna Ólafsdóttir Björnsson segir.
Rauða Ljónið, 1.2.2009 kl. 02:40
Skil ekki seinustu athugasemd, fulltrúar verkafólks og lýðræðis eru margir og tjá sig á mismunandi hátt. Þakka alla góða umræðu sem fram hefur komið.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 1.2.2009 kl. 18:02