Óþarflega verðskuldaður sigur Kópavogs í Útsvari - en hvað er Framsókn að hugsa?

Óska Kópavogsliðinu til hamingju með sigurinn í Útsvari í kvöld, en það var auðvitað alveg óþarfi að sigra endilega okkur Álftnesinga. En gott og vel - þetta var verðskuldað!

Hef meiri áhyggjur af Framsóknarmönnum af því ég sé ekki glóru í þeirra hegðun, voru búnir að bjóða hlutleysi að fyrrabragði, hvað eru þeir eiginlega að hugsa?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

 ... ég var búin að ákveða að Álftanes myndi sigra og hefna okkar Skagamanna í leiðinni fyrir tvöfalt burst í fyrra. Þið voruð samt afslappaðri og skemmtilegri fyrir bragðið. Í svona keppni á t.d. ekki að vera með vandlega æfð kerfi til að lesa í leikhæfileikana, heldur bara skemmta sér. Of mikill Gettu betur bragur á þessu ... en þeir eru skrambi klárir þessir strákar úr Kópavogi, ekki vantar það. Þið líka. Sýnist fésbókarheimar loga út af þessu. Allir héldu með Álftanesi!

Guðríður Haraldsdóttir, 30.1.2009 kl. 22:24

2 Smámynd: Sveinbjörn Kristjánsson

Sæl

Ég auðvitað ánægður með Kópavog þó þeir hafi því miður unnið ykkur.

En Framsókn er nú sem betur fer að hugsa hluti til enda. Það er gott.

Kv.

Sveinbjörn

Sveinbjörn Kristjánsson, 30.1.2009 kl. 22:26

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Var að kíkja á fréttirnar á netinu og sýnist að einhver (úr flokknum væntanlega) sé búinn að tala við Sigmund Davíð, hann er kannski að fatta að þetta sé ekki svo sniðug hegðun. Þetta kemur alla vega allt í ljós.

Og ég þarf greinilega að kíkja á  Facebook, þetta er auðvitað orðið Útsvar keppir við Gettu betur, og það er bara gaman hjá okkur alla vega.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 30.1.2009 kl. 22:36

4 Smámynd: Aprílrós

Gaman að sjá þig á skjánum ;) Hef samband við þig næst þegaqr ég lendi í tölvu ástandi ;)

Aprílrós, 30.1.2009 kl. 22:56

5 Smámynd: Guðlaug H. Konráðsdóttir

Þið stóðuð ykkur mjög vel.  Sammála Gurrí um að of mikill Gettu betur bragur er á Kópavogsstákunum. 

Framsókn er að miskilja hrapalega hlutverk sitt í stjórnarmyndunar viðræðum og margir munu hugsa sig tvisvar um í næstu kosningum eftir þetta inngrip þeirra.

Guðlaug H. Konráðsdóttir, 31.1.2009 kl. 11:52

6 Smámynd: Sigrún Óskars

Þið voruð flott og stóðuð ykkur vel, ég var stolt af ykkur (enda strákarnir úr minni götu)

kópavogsstrákarnir fengu "léttari" spurningar en þið  

Sigrún Óskars, 31.1.2009 kl. 16:55

7 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Blikastígsstrákarnir eru alveg frábær félagsskapur og við erum bara kát eftir þessa törn, gaf mér góða ástæðu til að fara á fallegar slóðir á nesinu ;-)

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 31.1.2009 kl. 17:42

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband