Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 81
- Frá upphafi: 575854
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 59
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Nokkrar bækur í tilverunni
Bækur hafa áhrif - hér eru nokkrar sem virkuðu á mig. Áskil mér rétt á að breyta listanum, en svona er hann í dag.
-
Jón Helgason: Úr landsuðri
Ljóð Jóns Helgasonar fræðimanns og skálds eru yndisleg, allt frá Afmæli kattarins til Áfanga. Lesið þau öll, oft!
***** -
Germaine Greer: The Obstacle Race
Listasagan hennar Germaine Greer - uppáhalds feminismabókin mín
**** -
Sigurður Guðmundsson: Tabúlarasa
Ætla ekki að reyna að skýra hvers vegna þessi heillar mig mest, þið verðið bara að lesa hana ... eða ekki.
***** -
E. H. Carr: What is history?
Bókin sem réð úrslitum um að ég varð sagnfræðingur.
*** -
Hómer: Illionskviða
Las hana mölbrotin á spítala og fannst hún flott.
**** -
Steinunn Sigurðardóttir: Sífellur
Steinunn er flott ljóðskáld
**** -
Eleanor H. Porter: Pollýanna
Ótrúlega skemmtilegur heilaþvottur, virkar enn (stundum).
*** -
Antoine de Saint-Exupéry: Litli Prinsinn
Lífsspeki og húmor.
****
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Veruleikakast
24.10.2008 | 22:38
Fluginu seinkar og heima er kafald skilst m'er. Gengið með versta m'oti 'i dag, sem er bara vont/gott, engin ástæða til eyðslusemi við n'uverandi aðstæður en hins vegar hangir fleira 'a sp'ytunni sem er verra. En sem sagt vonandi 'a heimleið samt!
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Óttalegur ruglingur er þetta... Hér er blíðskaparveður þótt nokkrar þakplötur séu í labbitúr og sjórinn svolítið áttavilltur fyrir norðan og vilist upp á land. Láttu ekki veðurfréttir hrekja þig frá því að koma heim og tala við mig um heimsmálin . Gengið á krónunni hefur verið það sama dögum saman: Aldrei stöðugra! Er það ekki það sem margir hafa beðið um: Stöðugleika og stjórnfestu! Já, hér er líka stjórnfesta í lagi: Enginn sem hugsanlega hefur staðið sig illa í vinnunni ætlar að hreyfa sig: Nei, nei, fólk situr sem fastast í sætunum: Það kallar maður nú stöðugleika. Ef þú verður "jafnheppin" og flugfarþegar í gær þá geturðu hallað þér aftur í sætinu og látið þig hlakka til hvort vélin lendir í Keflavík, á Akureyri eða Egilsstöðum ! Þannig að í stöðugleikanum er engu að síður nokkuð um fjölbreytni.
Nafn? Æi, þú veist það nú! 25.10.2008 kl. 03:01
Því miður ertu sennilega steinsofandi núna, ég þarf að beita mig hörðu til þess að rífa ekki upp símann. Fréttir af dvölinni í Elfugarði eru bráðnauðsynlegar núna, eitthvað annað að hugsa um en yfirvofandi gjaldþrot og hungurverkir.
Núna eru aðgerðirnar gegn Íslandi farnar að koma í bakið á Bretum sjálfum. Alls kyns fjármálakóngar í City farnir að spyrja sig hvort þeir eigi líka von á hryðjuverkalögum í bakið þegar illa árar, sem er einmitt raunveruleikinn núna þessa dagana. Hvort betra væri að flytja sig um set þangað sem menn beita sér með meiri yfirvegun í fjármálum. Kannski verður Ísland litla þúfan sem velti stóra hlassinu, þannig að Stóra-Bretland hverfur undir í tilkomumiklum rykmekki.
Íslendingar líta á þetta eins og náttúruhamfarir sem þeir þekkja svo vel, áfall í fyrstu en svo er bara að bíta á jaxlinn og bretta upp ermarnar.
Borghildur Anna 25.10.2008 kl. 12:18
Sakna þess ekki að hafa ekki lent í nýjasta veðrinu okkar. Og rétt til getið, þrátt fyrir að kreppan hafi valdið því að hver farþegi hafi haft þrjú sæti í flugvélinni og þrjá afgreiðslumenn fyrir sig í fríhöfninni, þá fór ég reyndar að sofa uppúr hádegi þegar ég var búin að tala við ættliðina á undan og eftir mér. Er að vakna, fer sjálfsagt að vakna í ,,alvöru" hvað á hverju.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 25.10.2008 kl. 18:08