Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Nokkrar bækur í tilverunni
Bækur hafa áhrif - hér eru nokkrar sem virkuðu á mig. Áskil mér rétt á að breyta listanum, en svona er hann í dag.
-
Jón Helgason: Úr landsuðri
Ljóð Jóns Helgasonar fræðimanns og skálds eru yndisleg, allt frá Afmæli kattarins til Áfanga. Lesið þau öll, oft!
***** -
Germaine Greer: The Obstacle Race
Listasagan hennar Germaine Greer - uppáhalds feminismabókin mín
**** -
Sigurður Guðmundsson: Tabúlarasa
Ætla ekki að reyna að skýra hvers vegna þessi heillar mig mest, þið verðið bara að lesa hana ... eða ekki.
***** -
E. H. Carr: What is history?
Bókin sem réð úrslitum um að ég varð sagnfræðingur.
*** -
Hómer: Illionskviða
Las hana mölbrotin á spítala og fannst hún flott.
**** -
Steinunn Sigurðardóttir: Sífellur
Steinunn er flott ljóðskáld
**** -
Eleanor H. Porter: Pollýanna
Ótrúlega skemmtilegur heilaþvottur, virkar enn (stundum).
*** -
Antoine de Saint-Exupéry: Litli Prinsinn
Lífsspeki og húmor.
****
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Pressa í kvöld, hvernig finnst ykkur til hafa tekist?
27.1.2008 | 16:02
Stend mig að því að hlakka til að horfa á Pressu í kvöld, þótt raunveruleikinn hafi reyndar verið í harðri samkeppni við skáldskapinn í síðustu viku. Þessi þættir hafa tekist virkilega vel, leikararnir eiga mikinn
þátt í því og svo er sögusviðið alveg ágætlega valið líka. Plottið er ennþá nógu gott til að ég veit ekki upp né niður í því hver gerði hvað og það er nokkuð vel að verki staðið. Sumum þótti eitthvað nóg um þráðinn í seinasta þætti þegar blaðakonan lenti á fylleríi heim til eins af grunsamlegustu persónunum í þættinum, en þegar ég spurði: Er þetta ekki einmitt það sem gæti gerst (á Íslandi og víðar) þá varð fátt um svör. Mun alla vega setjast trygg við sjónvarpið í kvöld.

Flokkur: Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 16:11 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Ég ætlaði að fylgjast með frá uphafi, en steingleymdi því svo.
Linda litla, 27.1.2008 kl. 17:04
Þetta eru dúndurþættir, ég hef horft á frá byrjun og er mjög hrifin! Hlakka til í kvöld! Jú, þetta gæti akkúrat gerst á Íslandi!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 27.1.2008 kl. 18:32
Þetta er hreint ágætis þættir, fín afþreying á vetrakvöldi.
Óttarr Makuch, 27.1.2008 kl. 18:56
Þátturinn í kvöld var æsispennandi, verst að það er bara einn eftir.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 27.1.2008 kl. 21:24