Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 80
- Frá upphafi: 575853
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 58
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Nokkrar bækur í tilverunni
Bækur hafa áhrif - hér eru nokkrar sem virkuðu á mig. Áskil mér rétt á að breyta listanum, en svona er hann í dag.
-
Jón Helgason: Úr landsuðri
Ljóð Jóns Helgasonar fræðimanns og skálds eru yndisleg, allt frá Afmæli kattarins til Áfanga. Lesið þau öll, oft!
***** -
Germaine Greer: The Obstacle Race
Listasagan hennar Germaine Greer - uppáhalds feminismabókin mín
**** -
Sigurður Guðmundsson: Tabúlarasa
Ætla ekki að reyna að skýra hvers vegna þessi heillar mig mest, þið verðið bara að lesa hana ... eða ekki.
***** -
E. H. Carr: What is history?
Bókin sem réð úrslitum um að ég varð sagnfræðingur.
*** -
Hómer: Illionskviða
Las hana mölbrotin á spítala og fannst hún flott.
**** -
Steinunn Sigurðardóttir: Sífellur
Steinunn er flott ljóðskáld
**** -
Eleanor H. Porter: Pollýanna
Ótrúlega skemmtilegur heilaþvottur, virkar enn (stundum).
*** -
Antoine de Saint-Exupéry: Litli Prinsinn
Lífsspeki og húmor.
****
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Óviðráðanleg þörf fyrir að hrósa borgarstjóra
18.4.2007 | 18:13
Heyrði í sjónvarpi áðan frá borgarstjóra (vonandi rétt eftir haft) að hann leggi áherslu á að halda þeirri heildstæðu götumynd sem var á horni Austurstrætis og Lækjargötu þar sem enn brennur. Skil hann svo að hann muni vilja láta endurbyggja húsin í sinni upprunalegu mynd, frá því um 1800. Ég skora á hann að standa við þessi orð með fullri sæmd. Það er hægt að endurbyggja með miklum sóma, t.d. er fallegt dæmi um það í gamla bænum í Varsjá og reyndar miklu víðar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Mér heyrðist það sama og þér og hann vitnaði einmitt til Aðalstrætisins. En eins og hann sagði þá voru þessar byggingar í einkaeigu þannig að ræða þarf auðvitað við þá aðila um framhaldið. Hann ræður víst ekki alveg öllu þó að hann sé borgarstjóri Þetta er náttulega hreint hræðilegur atburður að horfa upp á. Vonandi bara að ákvarðanir og uppbygging verði sem hröðust í framhaldinu og fólk standi saman í því.
Vilborg G. Hansen, 18.4.2007 kl. 20:46
Vona að Vilhjálmur beiti áhrifum sínum og ekki mun standa á stuðningi annarra í borgarstjórn, það er ég sannfærð um.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 18.4.2007 kl. 22:59