Menn vilja ekki heyra það sem lætur óþægilega í eyrum
14.3.2007 | 00:26
Það hefur alla tíð legið fyrir að yfirráð yfir fiskveiðum kringum landið væri ógnað með Evrópusambandsaðild. Hins vegar eru margir sem vilja ekki heyra það, og aðrir sem reyna að sannfæra okkur um að þessi auðlind skipti okkur ekki máli. Enn aðrir skjóta sér á bak við að aflaheimildir séu hvort sem er í tröllahöndum og halda að þannig sé hægt að leiða málið yfir í annað, því flestir geta sameinast um að bölva kvótakónunum. En það er kannski sársaukaminna að kvótakóngurinn heiti Javier frekar en Jónas, Smith frekar en Siggi. Við losnum ekki við kvótakerfið með því að ganga í Evrópusambandið en kannski losnum við við kvótann, úr landi. Mér þykir það lítil væntumþykja í garð útgerðarstaðanna sem þegar blæðir, en kannski er þetta leið til að fá réttlætingu fyrir meiri mengunarkvóta svo við getum dritað fleiri stóriðjuverum út um landið.
Ragnar Arnalds: Hugmyndir um yfirráð Íslendinga ótryggar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:28 | Facebook
Athugasemdir
Þakka fyrir elju þína við að koma skoðunum mínum í orð!
HG
HG 14.3.2007 kl. 02:34
Gott hja ter ad vekja athygli a tessu, en tetta med fiskveidarnar er nu samt adeins brot af teim afarkostum sem vid yrdum ad lata yfir okkur ganga med inngongu i Evropubandalagid.
Sumir akofustu talsmenn Evropusambandsadildar Islands tala oft tannig ad ef okkur taekist nu ad semja okkur fra tessu atridi med fiskveidarnar ta se ollum hindrunum rutt ur vegi og ta liggi bara beinn og breidur vegur inni i "dyrdina" i fadmi Evropusambandsins.
Vid turfum alveg serstaklega ad vara okkur a tessum lymskulega arodri teirra. Med tvi ad halda umraedunni svona naumri virdast teir halda ad teir geti falid og breytt yfir adra hrodalega slaema kosti sem Evropusambandsadild Islands myndi hafa i for med ser fyrir tjodina. En oll upplyst rokraeda um Evropusambandid er mjog aeskileg fyrir okkur andstaedinga Evropusambands adildar, vegna tess ad ta blasir tad svo augljoslega vel vid hversu arfavitlaust tad vaeri fyrir okkur Islendinga ad ganga tessu Sambandi a hond. Possum okkur bara a tvi ad raeda tetta vitt og breitt og ekki lata ta toga okkur nidri tessar eins mals skotgrafir. Holdum tvi ollum okostum Evropusambandsadildar Islands vel til haga, ta holdum vid tessum serkennilega sertruarsofnudi algerlega i skefjum eins lengi og vid viljum !
Lifi frjalst og fullvalda Island.
Gunnlaugur 14.3.2007 kl. 07:50
Já ef þetta væri bara satt. Sem þessi fullyrðing er ekki. Þrátt fyrir að Spánverjar og Portúgalir séu með risa flota þá, hafa þeir aldrei haft heimild til þess að veiða í Norðusjó né Eystrasalti og því aldrei veitt þar. Af hverju? Engin veiðireynsla og lögmálið um hlutfallslegan stöðugleika. En það merkir að kerfið sem þegar er til staðar verður áfram. Kvótakerfið verður því áfram veljum VIÐ svo. Ég get því ekki séð að það sé einhver hætta að ESB fyrir sjávarútvegin, verstu óvinirnir eru hátt og ótryggt gengi krónunnar og hár flutningskostnaður.
Eitt annað, Ísland hefur aldrei nokkurn tíman tapað á erlendu samstarfi. Án Nato og SÞ hefðum við ekki 200 mílurnar, án EFTA værum við að borga ofurtolla fyrir vörur okkar. Einangrunarhyggjan er versti óvinur frjáls og óháðs Íslands, því undir hennar skugga leynist höft, okur og spilling.
Magnús Bjarnason
Magnús Bjarnason 14.3.2007 kl. 09:34
Steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 14.3.2007 kl. 15:30
Ekki er ég nú tilbúin í Evrópusambandið eins og það er og klárlega eru fiskimið okkar það mikil auðlind að við fórnum henni vonandi ekki með einu pennastriki eða Evrópupartýi, bara til að fá að vera með. En annað, hvað gerist þá ef kvótakóngarnir selja kvótann á milli fyrirtækja sinna svo ekki sé nú minnst á það til fyrirtækja sinna sem skráð eru í erlendu ríki. Er þá ekki kvótinn farinn hvort sem við göngum í Evrópusambandið eður ei. Ef kvótinn á að vera háður eignarétti eða hefð, þá getur þetta hæglega gerst.
Vilborg G. Hansen, 14.3.2007 kl. 16:28
Hæ, hó,,, ég fann bloggið þitt, en gaman... og VEI hvað það er gaman að lesa það. Þú ert svo sniðug og skemmtileg . Takk kærlega fyrir mig, nú fer ég að lesa þig reglulega. Kær kveðja, Oddrún (Önnu og Óladóttir).
http://blog.central.is/oddrunin ef þú hefur tíma til að kíkja inn
Oddrún 14.3.2007 kl. 17:11
Hæ, takk fyrir góð komment!
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 14.3.2007 kl. 18:49
Kreppa stjórnarflokkanna, varðhunda kvótakerfisins, í hnotskurn:
Um 70% landsmanna eru andvíg núverandi kvótakerfi og því er greinilega kominn tími til að taka upp nýtt og betra kerfi, sem meirihluti þjóðarinnar samþykkir. Ef hér er góð loðnuveiði er heildaraflinn um tvær milljónir tonna á ári og sæi íslenska ríkið í umboði þjóðarinnar um að úthluta veiðiheimildunum til einstakra byggðarlaga til eins árs í senn og tæki fyrir það tíu krónur að meðaltali fyrir kílóið í þorskígildum fengi þjóðin 20 milljarða króna í ríkiskassann. Hægt væri að útdeila þessari fjárhæð aftur til byggðarlaganna með margvíslegum hætti, til dæmis til samgöngubóta eða sem styrk vegna aflabrests. En að sjálfsögðu yrði verðið á aflaheimildunum mjög misjafnt eftir tegundum, til dæmis mun hærra verð fyrir kílóið af þorski en loðnu. Hægt væri að láta hvert byggðarlag fá ákveðnar veiðiheimildir árlega og veiðiheimildir yrðu að sjálfsögðu mismunandi frá ári til árs í samræmi við ástand fiskistofnanna. Veiðiheimildirnar yrðu einungis til eins árs í senn og ekki kvótaeign í nokkrum skilningi. Ríkið úthlutaði eingöngu réttinum til veiðanna og ákvæði hverju sinni hverjir fengju réttinn, til dæmis útgerðir, fiskvinnslufyrirtæki og fiskútflyjendur. Fiskvinnslufyrirtæki og fiskútflytjendur gætu greitt útgerðum fyrir að veiða fyrir sig upp í veiðiheimildir sem keyptar hefðu verið. Og þeir sem hefðu áhuga á að hefja veiðar í fyrsta sinn ættu kost á því, þannig að nýir aðilar væru ekki útilokaðir frá veiðunum, eins og nú er mikið kvartað yfir.
Tíu krónur fyrir kílóið í þorskígildum gæti að sjálfsögðu verið lægri eða hærri upphæð eftir atvikum. Sagt er að nú greiði lítil byggðarlög, til dæmis á Vestfjörðum, allt að einum milljarði króna á ári fyrir veiðiheimildir og þessar fjárhæðir muni fyrr en varir leggja allar minni sjávarbyggðir í auðn. Og þrátt fyrir að útgerðarmenn kaupi og selji aflakvóta fyrir gríðarlegar fjárhæðir á ári, jafnvel einn milljarð í litlu sjávarplássi, segjast þeir ekki hafa efni á að greiða hóflegt gjald fyrir veiðiheimildirnar ef núverandi kerfi yrði lagt af. Það er nú ekki mjög trúverðugt. Margir hafa velt fyrir sér hvernig hægt sé að leigja þorskkvóta fyrir 155 krónur kílóið til eins árs og haft eitthvað upp úr því. Og sumir halda því fram að greiða þurfi allt að 75% af aflaverðmætinu í leigu fyrir kvótann. Verð fyrir kílóið af "varanlegum" veiðiheimildum í þorski í aflamarkskerfinu var komið uppfyrir 2.200 krónur í nóvember síðastliðnum en krókahlutdeildin kostaði þá um 1.900 krónur. Og sagt er að nú sé þorskverðið á "varanlegum heimildum" sem útgerðarmenn kalla svo, komið yfir 2.500 krónur fyrir kílóið. Það er engum blöðum um það að fletta að útgerðarmenn telja sig eiga aflakvótana á allan hátt, bæði í orði og á borði, og munu með kjafti og klóm berjast fyrir því að "eiga" þá áfram.
Hugtökin "þjóðareign", "ríkiseign" eða "sameign þjóðarinnar" í stjórnarskrá hefur ekkert að segja í þessu sambandi, ef útgerðarmennirnir eiga í raun aflakvótana, fara með þá sem sína eign, veðsetja þá, þess vegna hjá "íslenskum" bönkum sem eru og verða í raun erlendir, að hluta til eða jafnvel öllu leyti. Eigandi kvótans getur þess vegna verið íslenskur ríkisborgari sem býr á Bahamaeyjum, kemur hingað aldrei og hefur engan áhuga á afkomu íslenskra sjávarplássa. Hann hefur eingöngu áhuga á arðinum, fiskvinnslan og fólkið sem býr í sjávarplássunum er réttlaust hvað varðar sína afkomu. En þessu má engan veginn breyta, þá fer allt landið á hliðina, segja útgerðarmenn og sporgöngumenn hennar á þingi. Þjóðin á að vera eignalaus, getur aldrei eignast neitt og útgerðarmenn eiga að sjá um að eiga hlutina fyrir hana, frekar en ríkið. Það er kommúnismi og getur aldrei gengið upp í lýðræðisríki. Kommúnismi hins eldrauða Mogga. Og margir þeirra sem eru algjörlega andvígir inngöngu Íslands í Evrópubandalagið verja þetta kvótakerfi okkar út í ystu æsar, enda þótt eigendur kvótans gætu fyrr eða síðar allir verið íslenskir ríkisborgarar búsettir í Evrópu, þess vegna kvæntir erlendum konum sem fengju þá helming hagnaðarins af veiðum "íslenskra" skipa.
Aflakvótar eru nú fluttir og seldir á milli landshluta í stórum stíl og einn útgerðarmaður getur lagt heilt byggðarlag í rúst með því að landa aflanum annars staðar eða selja kvóta "sinn" til annarra landssvæða. Vilja menn hafa þetta kerfi áfram? Meirihluti þjóðarinnar segir nei takk og 70% hennar hlýtur að vera fólk í öllum flokkum. Hagsmuna útgerðarmanna var hins vegar gætt á Alþingi að þessu sinni, þó þeir geti þess vegna búið á eyju í Karabíska hafinu. Þjóðin vill hins vegar að nýtt frumvarp um breytingu á stjórnarskránni verði lagt fram á næsta þingi, frumvarp sem gæti fyrst og fremst hagsmuna þjóðarinnar og einstakra byggðarlaga. Veiðiskip eru nú verðlítil eða verðlaus hér án aflakvóta. En þegar þau yrðu ekki lengur með "varanlegan" veiðikvóta fengju þau eðlilegt og raunverulegt verðmæti og úthlutaðan kvóta í sínu byggðarlagi, og myndu landa afla sínum þar. Byggðastofnun sagði í október 2000 að veikleikar sjávarbyggða á Vestfjörðum væru meðal annars versnandi kvótastaða, afli fluttur óunninn í burtu, erfiðar vegasamgöngur og lágt fasteignaverð.
Þannig ganga kaupin fyrir sig á eyrinni, samkvæmt Þórólfi Matthíassyni, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, og Ólafi Klemenssyni, fiskihagfræðingi hjá Seðlabanka Íslands:
Markaðsvirði Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum var 6,3 milljarðar króna árið 2002, eigið fé tveir milljarðar, kvótastaðan var 15 þúsund tonn og bókfært verðmæti kvótans 1,7 milljarðar króna. Verð á kvóta á hlutabréfamarkaðnum var 403 krónur fyrir kílóið en þorskígildistonnið var þá selt á 1.070 krónur.
Lögmálið um eitt verð sem sagt ekki í gildi. Hlutabréfamarkaðurinn verðleggur kvótaeign sjávarútvegsfyrirtækja en mikill munur er á verði á kvótamarkaði og óbeint á hlutabréfamarkaði. Mögulegar ástæður ólíkrar verðmælingar geta annars vegar verið mæliskekkja, þannig að þorskígildi séu "ranglega" skilgreind, uppsjávartegundirnar fái of hátt vægi, fleira sé ómetið en upprunalegur kvóti (gjafakvóti), eða stjórnendaauður, viðskiptavild, og hins vegar ólíkar væntingar, þannig að kaupendur og seljendur á kvótamarkaði séu ekki þeir sömu og kaupendur og seljendur á hlutabréfamarkaði.
Verð á hlutabréfamarkaði ræðst af verði á lönduðum afla, sóknarkostnaði, líkindum á tækniframförum og hversu miklar þær gætu orðið hvað sóknina snertir, heimiliðum heildarafla, ávöxtunarkröfu og veiðigjaldshlutfalli.
Magnús Thoroddsen hæstarréttarlögmaður segir meðal annars í tillögu sinni um nýtt ákvæði í stjórnarskránni um þjóðareign á auðlindum:
"Tilgangurinn með því að stjórnarskrárbinda nýtt ákvæði þess efnis, að "náttúruauðlindir Íslands skuli vera þjóðareign" hlýtur að vera sá, og sá einn, að þjóðin öll skuli njóta arðsins af þeim. Því þarf að búa svo um hnútana í eitt skipti fyrir öll, að þessar auðlindir verði aldrei afhentar einhverjum sérréttindahópum á silfurfati. Ég leyfi mér því að leggja til, að þetta stjórnarskrárákvæði verði svohljóðandi:
"Náttúruauðlindir Íslands, hvort heldur er í lofti, legi eða á láði, skulu vera þjóðareign. Þær ber að nýta til hagsbóta þjóðinni, eftir því, sem nánar er ákveðið í lögum. Heimilt er að veita einkaaðiljum, afnota- eða hagnýtingarrétt á þessum auðlindum til ákveðins tíma gegn gjaldi, hvort tveggja ákveðið í lögum. Slík afnotaréttindi geta aldrei skapað eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðilja yfir náttúruauðlindinni."
Steini Briem 16.3.2007 kl. 22:10