Á leiđ frá stjórnmálabloggi til ferđabloggs - golf á ódýrasta vellinum í Montreal

Hér er játning: Ég eyddi kosningakvöldinu viđ Niagara Falls! Eins ţrćlpólitísk og ég er nú, ţá hvarflađi ekki ađ mér ađ breyta löngu tilbúinni ferđaáćtlun til fundar viđ son minn og kćrustuna hans í Kanada, ţótt ég yrđi ađ yfirgefa kosningabaráttuna međ öllu yndislega fólkinu í Regnboganum (viđ sjáum ekki eftir neinu) fjórum dögum fyrir kosningar.

Og nú er ég komin til baka. Fyrir utan yndislega tíma međ fjölskyldunni, sem eiga minnst erindi í opinbert blogg, ţá var ţessi 11 daga ferđ til Kanada uppspretta ótal ćvintýra, bćđi á trođnum ferđaslóđum (Niagara, CN Tower og uppvaxtarstađur Leonards Cohen koma sterk inn) sem og í daglegu lífi sem innihélt strćtó- og neđanjarđarbrautarferđir, Dim Sum sunnudagsmáltíđ međ stórri kínverskri fjölskyldu og mitt heittelskađa golf, sem allt of lítiđ hefur veriđ sinnt ađ undanförnu, ýmist vegna annríkis eđa veđráttu.

Google frćndi er alltaf góđur. Ég leitađi ađ golfvelli sem vćri opinn gestum í Montreal og fann fínan völl sem ég síđar frétti ađ vćri sá ódýrasti í bćnum. Meadowbrook heitir hann. Flestar sumarflatirnar voru komnar í notkun, en ekki allar. Ţar spilađi ég ein ţar til á 12 holu ţegar ţau Cora, Anthony og ţriđji mađurinn sem yfirgaf okkur á 15 holu, kölluđu í mig. Međ ţeim spilađi ég seinustu sex. Veđriđ var himneskt, eins og alla dagana, og leikurinn batnađi nokkuđ hjá mér viđ ađhaldiđ af ţví ađ hafa međspilara. Refur skaust yfir ţvera brautina á 13 holu og Anthony var ósegjanlega glađur. Fjandans groundhog-kvikindiđ var nćstum búiđ ađ gera hann útlćgan í fyrra, sagđi hann mér. Ţau sáum viđ hjá flestum bönkerum, en ţađ fór ekkert á milli mála ađ refi ţekki ég á fćri, hef séđ ţá nógu marga í Borgarfirđinum og skottiđ fallega leynir sér aldrei. Cora, sem fluttist frá Filippseyjum til Kanada fyrir 42 árum, á börn á aldur viđ mín og tvö yngri, skutlađi mér til baka í neđanjarđarbrautina vildi endilega taka mig í skođunartúr í leiđinni og sýndi mér međal annars Monkland, sem er fjarri ,,mínu" hverfi í Montreal en nokkuđ nćrri golfvellinum. Ţau Anthony, sem ekki eru hjón, Cora er gift gyđingi og býr í sćtri götu međ miklum görđum (sem hún sýndi mér) spurđu hvort ég kćmi ekki aftur á morgun?

2013-05-02_17_21_17.jpg

Ferđin međ leigubíl frá neđanjarđarstöđinni Vendome til Meadowbrook var líka skemmtileg, ţví um leiđ og ég dáđist ađ sixties lögunum í útvarpi bílstjórans brast hann á međ sögur úr sínu lífi. Hann er eflaust á aldur viđ mig eđa ögn eldri, kom frá Bandaríkjunum, barđist í Viet-Namog hefur aldrei sagt neinum frá ţví, ekki einu sinni syni sínum, sem nú er uppkominn. Ekki sáttur viđ ađ hafa drepiđ fólk. Hann spilar í sixtís hljómsveit í Montreal um flestar helgar en keyrir leigubíl á milli. Eitt sinn var hann í 10 tíma flugi og leiddist. Hann tók upp gítarinn, stillti sér upp fremst í ganginum og fór ađ spila og syngja. Söng frekar lengi og gaf svo peningana sem fólk var fariđ ađ gefa honum, í hendur flugstjórans og bađ um ađ ţeir fćru til góđgerđarmála. Flugstjórinn var frekar hress međ tiltćkiđ allt en hafđi aldrei ,,lent" í svona flugfarţega áđur og hafđi ţó flogiđ mjög langan feril.

Sögur sem fólk segir ţeim sem ţeir eiga ekki von á ađ hitta aftur eru auđvitađ mjög mismunandi persónulegar og skemmtilegar, en yfirleitt einlćgar og sćtar. Skosku og Norđurensku karlarnir í neđanjarđarbrautinni til Heathrow, ţegar ég var ađ fara ađ sćkja dóttur mína úr flugi til London, búđareigandinn okkar góđi í Hurghada, Bretinn sem ég spilađi viđ í haust í Alicante, sem hafđi misst dóttur sína í bílslysi í hitteđfyrra, bjó í fjöllunum og átti íslenska nágranna, allt er ţetta fólk sem var gaman ađ tala viđ. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband