Salt í sárin og ,,ţetta sagđi ég ţér"

Hefur ykkur ekki oft langađ ađ segja: Ţetta sagđi ég ţér! ţegar einhverjir eru loksins ađ átta sig ţví sem ţiđ eruđ búin ađ segja ţeim hundrađ sinnum? Og vantar ekki stundum vettvang til ađ dvelja ađeins lengur viđ einhver afglöp sem einhver hefur gert sig sekan um? Í samrćđum viđ góđa vinkonu mína, sem nú er reyndar ađ nálgast áttrćtt, spratt eitt sinn upp sú hugmynd ađ halda saman smá yfirliti yfir allar ţessar ,,ţetta sagđi ég ţér" stundir lífsins - og ţá er ég ađ tala um í pólitík, NB.

Ţađ er auđvitađ alltaf umdeilanlegra hvort viđ hćfi sé ađ nudda salti í sárin. Lifandi dćmi ćtti ađ skýra mál mitt ađeins betur. Frjálslyndir héldu ađ hljómgrunnur fyrir rasisma-dađri ţeirra mundi fćra ţeim fylgisaukningu í ţađ óendanlega í skođanakönnunum. Brotthvarf Margrétar og hennar hóps átti nánast engu máli ađ skipta. Ţá sagđi ég á hinu blogginu mínu ađ ţetta yrđi ţeim dýrt. Svo ţegar ég ég sá nýjustu könnunina í Blađinu í morgun rann upp hiđ dćmigerđa ,,ţetta sagđi ég ţér" augnablik. Ef ég bít nú hausinn af skömminni einhvern tíma á nćstunni og ný ţeim ţessu um nasir af einhverju (eđa engu) tilefni, ţá flokkast ţađ undir ,,salt í sárin." Mér finnst, eins og fleirum, ađ gott fólk innan Frjálslynda flokksins hafi ađeins látiđ blekkjast af ţví nýja afli sem stormađi inn í samtök ţeirra. Ţótt ég deili ekki pólitískum skođunum međ flokknum ţá hef ég haft ágćt kynni af fólki úr röđum hans og ţví hefđi ég alveg getađ unnt flokknum ţess ađ sleppa viđ ţessar hremmingar. Kannski er ţađ ekki pólitískt klókt ađ láta sér annt um ađra flokka en sinn eigin, en ţađ verđur bara ađ hafa ţađ. Ég vil engum flokki ţađ ađ feta í fótspor norrćnna rasistaflokka og óttast ađ ákveđin öfl innan Frjálslyndra stefni ţangađ. 

Bođa hér međ sérstakar síđur á ţessu bloggsvćđi sem munu heita: ,,Salt í sárin" og ,,Ţetta sagđi ég ţér" sem verđur haldiđ úti međ óreglubundnum hćtti og hefja göngu sína ţegar ţurfa ţykir. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband