Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2024

Á myndlistarsýningu í London þar sem formin lifnuðu við

Síðan ég bloggaði seinast hefur margt gerst, ný verkefni rekið á fjörur mínar, Córdoba-vatnslitahátíðin haldin öðru sinni og enn átti ég mynd þar, nú ásamt fimm öðrum Íslendingum, sem er vænn skerfur af 236 mynda sýningu listamanna frá 42 löndum, en þrjú okkar sóttu hátíðina (með viðkomu í Madrid) og nutum við sýnikennslu, útimálunar og skoðunarferða. Eftir það frekari Spánardvöl, fyrst í Córdoba og síðan í Valencia en á bakaleiðinni gaf ég mér smá tíma í London og þar hef ég upprifjun ferðarinnar með frásögn af einni sýningu.

Aðalástæðan er sú að þar stendur nú yfir merkileg sýning í Hayward Galleríinu á suðurbakka Thames, rétt við Waterloo, í frekar stuttan tíma,frá 7. febrúar til 6. maí. Enn er því mánuður til stefnu að komast á hana, öruggast að panta miða fyrirfram og fylgja þessum hlekk: 

When Forms Come Alive

Mér er rammasta alvara, þessi sýning er einstök, falleg og skemmtileg. 

Verk Teresu Solar Abboud, ungrar spánsk-egyptskar konu, heilluðu mig mest, en hún fær heilan sal eins og fleiri listamenn, á þessari stóru sýningu með verkið/verkin Tunnel Boring Machine sem var víst á Feneyjatvíæringnum 2022 og hefur verið sýnt víðar. Ég varð svolítið lítil við hlið þessa verks.

435229367_379322655072629_262624346267335357_n

Verkið sem mætir sýningargestum í orðsins fyllstu merkingu í upphafi sýningarröltins er eftir Ralph Nauta og Lonneke Gordijn úr DRIFT hópnum sem ég þarf að kynna mér betur. Reyni að pósta videó-i af því verki síðar. 

2024-04-04_01-22-41

Mæli með að ætla sér 2-3 tíma í að skoða sýninguna og það þarf að gæta þess að missa ekki af neinu (margir salir út um allt), upplifunin er ótrúleg. 

435320049_379322991739262_2644342924173735912_n

435274527_379322781739283_6770422480263428698_n

435278714_379322828405945_5812487148481397913_n


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband