Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2009
Fylgst međ úr fjarlćgđ og ćvisaga Elfu Gísladóttur
30.7.2009 | 06:53
Ţegar ég var á leiđ Keflavíkurveginn um daginn áleiđis til móts viđ flugiđ sem bar mig hingađ til Bandaríkjanna hlustađi ég á seinustu ţingmennina gera grein fyrir atkvćđi sínu varđandi ESB-ađildarumsókn, mál sem mér finnst ţađ stćrsta sem íslensk stjórnvöld hafa glímt viđ ađ undanförnu. Samfylkingin, sem sótt hefur ađildarviđrćđur hvađ harđast, hafđi naumlega betur í ţeirri viđureign.
Síđan hef ég fylgst međ á fćri, fyrst međ ESB-málunum, síđan Icesave og reyndar ýmsu öđru. Mér finnst af einhverjum ástćđum enn einkennilegra ađ vera stödd hér í Bandaríkjunum núna en ţađ var í október síđastliđinn, ţegar bankahruniđ varđ, en ţá var ég líka hér vestan hafs.
Hins vegar er ţessi ferđ mín hingađ til Washington-fylkis, rétt norđan viđ Seattle, hiđ besta mál. Ég er ađ skrifa ćvisögu Elfu Gísladóttur leikkonu međ meiru, sem rekur öfluga menningar- og listastarfsemi í hérađinu norđan viđ Seattle. Ţađ hefur ekki gengiđ átakalaust fyrir hana ađ fá öll leyfin fyrir starfseminni, en hún hefur haft sigur í baráttunni viđ yfirvöld, dýran ađ vísu, en hún er baráttujaxl.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:57 | Slóđ | Facebook
Atkvćđagreiđslan um ESB-ađildarumsókn á morgun - valkostir í atkvćđagreiđslu fyrir ţingmenn
16.7.2009 | 01:32
Baráttan gegn ESB-ađildarumsókn er ađ ná hámarki, hvort sem okkur ESB-andstćđingum líkar betur eđa verr. Var ađ fá smá facebook-pćlingu sem mér finnst rétt ađ fara ađeins í gegnum:
Mgi langar ađ kortleggja og lesa ađeins í möguleikana sem ţingmenn hafa til ađ segja hug sinn á morgun. Tel hjásetu ekki međ, ţótt hún hafi veriđ iđkuđ í EES-samningnum:
1. Međ breytingartillögu - hún felld - móti ađildarumsókn.
2. Međ breytingartillögu - hún felld - međ ađildarumsókn.
3. Móti breytingartillögu - hún felld - móti ađildarumsókn.
4. Móti breytingartillögu - hún felld - međ ađildarumsókn.
5. Međ breytingartillögu - hún samţykkt - móti ađildarumsókn.
6. Međ breytingartillögu - hún samţykkt - međ ađildarumsókn.
7. Móti breytingartillögu - hún samţykkt - móti ađildarumsókn.
8. Móti breytingartillögu - hún samţykkt - međ ađildarumsókn.
Ég ćtla ekki ađ rađa ţingmönnum á ţessa bása ađ svo stöddu. Hef samt grunsemdir, en ekkert er víst í ţessum efnum nema ađ Samfylkingin mun eflaust rađa sér öll á bás 4 eđa 8 eftir ţví hver örlög breytingartillögunnar yrđu. Ef ég sćti á ţingi núna myndi ég vćntanlega kjósa nr. 1 eđa 5.
Er í ţeirri undarlegu stöđu ađ vera ađ fara utan á morgun en mun fylgjast međ atkvćđagreiđslu, umrćđu, eđa hverju ţví sem verđur í gangi ţar til ég fer í flugiđ síđdegis.
Erfitt verk fyrir höndum ađ bjarga heilu ţjóđfélagi - eyđum ekki tímanum í ESB-vitleysu
10.7.2009 | 22:48