Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007
SS stjórn yrði ekki góður kostur
9.5.2007 | 22:51
Flýtur milli Framsóknar og Sjálfstæðismanna?
9.5.2007 | 13:03
Í dag 8.5. 2007 er stjórnin fallin!
8.5.2007 | 22:11
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.5.2007 kl. 00:14 | Slóð | Facebook
Hvað vakir fyrir Valgerði?
7.5.2007 | 18:21
Merkileg yfirlýsing frá Framsókn heyrðist af munni Valgerðar Sverrisdóttur samkvæmt fréttum útvarps kl. 18. Framsókn mun ekki taka þátt í ríkisstjórn með það fylgi sem kannanir úthluta henni, það er um 10% eða jafnvel minna. Spurning hvort það sé hægt að treysta þessu? Og í öðru lagi, segir hún þetta vitandi að Framsókn er oft vanmetin í skoðanakönnunum, sem sagt af því hún (Framsókn) þarf ekki að standa við þetta sé sú tilhneiging eins núna eins og áður? Eða er þetta örvæntingarfullt óp um að nú verði allir að kjósa Framsókn - hrópað út í loftið í trausti þess að skoðanakannanir benda einnig til að margir vilji núverandi ríkisstjórn áfram? Eða er eitthvað annað að gerast innan Framsóknar, er einhver að búa í haginn fyrir sjálfan sig og ef svo er, hver skyldi það vera?
Góð ábending hjá fréttastofu RUV um handhafa forsetavalds
7.5.2007 | 00:00
Vikan þegar allt getur breyst
6.5.2007 | 23:26
Næsta vika getur annað hvort orðið vikan þegar allt breytist, þegar ríkisstjórnin tapar meirihluta sínum og við tekur stjórn jöfnuðar, réttlætis og umhverfisverndar eða vika sem staðfestir stöðnun og óbreytt ástand. Við veljum og vonandi rétt.
Á persónulegri nótum, aldrei þessu vant ekki í prófum sjálf, þótt vor sé brostið á, en hins vegar þá eru krakkarnir mínir í prófum og ströngu námi. Eldsnemma í fyrramálið fer Hanna mín aftur í næstum tveggja mánaða lokatörn í lestri og prófum í Debrecen, en Óli á bara tæpar tvær vikur eftir í sínum prófum og les stíft heima hjá ömmu sinni. Notalegt fjölskyldukvöld okkar Ara og Hönnu í kvöld í Vonarholti hjá Sæunni (tengdamömmu) ásamt mágkonunum og fjölskyldu Sívíar og mömmu, en Óli sat heima og las á meðan.
Við bíðum öll spennt eftir niðurstöðu kosninganna um næstu helgi.
Fallegur dagur, góð veisla að baki og spennandi kosningar framundan!
6.5.2007 | 14:20
Þessi fallegi dagur, vel heppnu veisla að baki, afmælisbarnið var yfir sig ánægt með góða mætingu, en amk. 65 af 80 komust og svo er partí í kvöld hjá ömmunni sem ekki komst, þar sem sumir hinna mæta. Skelli inn myndum frá veislunni fljótlega.
Núna eru það kosningarnar sem eiga hug okkar allan. Afmælisbarnið kaus fyrir veisluna í gær, sem var auðvitað flott, og svo höfum við verið að lesa barmmerki frá ungum vinstri grænum, Hanna var hrifnust af: Hugsaðu! Það pirrar ríkisstjórnina. - En ég hallast að því að: Ekki biðja um jafnrétti, kjóstu það! passi best fyrir mig. Og það ætla ég auðvitað að gera.
Við fórum mjög pent í áróðurinn í afmælisveislunni í gær, minnug þeirra áhrifa sem pabbi vinar okkar fékk þegar hann endaði afmælisræðu í fertugsafmæli sonar síns (sem er Sjálfstæðismaður) á því að segja: ,,Og svo ætla ég bara að minna ykkur á að kjósa Ólaf Ragnar!" Held að sonurinn hafi ekki kunnað honum neina sérstaka þökk. En hins vegar verður að segjast að þessi sonur er svo sjálfstæður Sjálfstæðismaður að hann var reyndar samherji okkar í Álftaneshreyfingunni vegna skipulagsmálanna í seinustu kosningum, en það er önnur saga.
En, það var auðvitað svolítið rætt um pólitík og ég viðurkenni að græna hliðin var upp á fallega VG pokanum mínum sem segir einfaldlega X-V, svona ,,óvart". Ef einhver skyldi vera óákveðinn, sem ég held reyndar að sé ekki algengt í fjölskyldunni okkar eða vinahópi.
Það var þó nokkuð vinstri græn slagsíða á veislunni, og þá er ég ekki að tala um grænu skreytingarnar (afmælisbarnið valdi litina) heldur að það var svolítið fyndið að líta yfir hópinn, þarna var Oddrún, ekki orðin þrítug en samt fyrrverandi frambjóðandi VG, Hilda systir Gurríar á dóttur sem er rétt skriðin yfir tvítugt en samt líka fyrrverandi frambjóðandi VG, Óli okkar tók þátt í forvalinu seinast og almennt finnst mér bara mikið af krökkum í kringum okkur sem gefa ástæðu til bjartsýni, sama tilfinning og ég fékk á kvennakvöldinu hjá VG um daginn.
Marsipantertan sem datt ekki á hausinn
4.5.2007 | 22:37
Eins og títt er í þessari fjölskyldu þá er allt heimagert í veislunni á morgun, nema hvað ég pantaði eina stóra marsipantertu, ekta afmælistertu, í bakaríinu á neðri hæðinni í vinnunni minni. Ægifögur terta er ansi stór og þegar indæla stúlkan í afgreiðslunni þar bar hana út í bíl fyrir mig, þá ætlaði ég síst að skilja hvernig henni tókst að koma henni á gólfið farþegamegin. Gleymdi auðvitað að útskýra fyrir henni að skotthurðin væri biluð, þannig að eflaust undraði hún sig á staðsetningunni. Ég var svo sannfærð um að ekki tækist að koma tertunni klakklaust í kæli úti í Álftanesskóla, þar sem veislan verður haldin, og afmælisbarnið fékk það hlutverk að fiska hana upp af gólfinu farþegarmegin og draga hana út um of lítið op milli sætisins og hurðarinnar. Tókst svona ljómandi vel og síðan var rölt inn í skóla og hvorug datt á hausinn, Hanna eða kakan.
Bárum slatta af bökkum með bakkelsi út í kælinn í skólann, fyrir utan sjálfa afmæliskökuna og nú ætla feðgarnir að baka og skreyta kökur og ég að klára að smyrja, bæði núna og í fyrramálið (sumt þarf að smyrjast á seinustu stundu, eins og gengur). Spennandi að vita hvernig mætingin verður og rosalega gaman að vera búin að fá stelpuna sína heim, þótt í mýflugumynd sé.
Afmæli í fjölskyldunni
3.5.2007 | 19:07
Hugsa sér, hún dóttir mín er orðin þrítug í dag, og heldur upp á afmælið með því að fara í próf, austur í Ungverjalandi. Ætlar síðan að skjótast heim um helgina, sem betur fer ennþá beint flug hjá Heimsferðum, og svo beint aftur til baka í fleiri próf.
Fjölskylda og vinir samfagna henni um helgina og svo ætlar hún líka að nota tækifærið og kjósa. Eldheit vinstri græn, var meira að segja í fyrstu stjórn Ungra vinstri grænna, ef ég man rétt. Þannig að það verður stutt en viðburðaríkt stopp um helgina heima.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.5.2007 kl. 10:41 | Slóð | Facebook
Þrjár spár um úrslit kosninganna, sem þið sjáið ekki annars staðar
2.5.2007 | 23:42
Flestar spár um úrslit kosninganna þessa dagana byggjast á úrslitum úr skoðanakönnunum. Einhverjir hafa verið að vitna í Völvu Vikunnar, og það finnst mér út af fyrir sig gaman að sjá, því ég hóf blaðamannaferil minn á því ágæta blaði fyrir 27 árum. En nú ætla ég að leyfa mér að leika mér og koma með þrjár spár um úrslit kosninganna, sem þið munuð ekki sjá neins staðar annars staðar, þótt einhverjar líkar tölur muni eflaust koma upp. Tek á móti leiðréttingum ef samtölur standast ekki (ég er sífiktandi í þessu og leiðrétti kannski ekki allar tölur).
1. Fyrsta spáin er ,,raunsæ" óskaspá mín, það er að segja ekki draumaniðurstaðan, heldur það sem ég leyfi mér að vona í ljósi hagstæðustu skoðanakannana og kosningaspáa.
VG 28% - 18 þingmenn
Samfylking 25 % - 16 þingmenn
Sjálfstæðisflokkur 34 % - 22 þingmenn
Framsóknarflokkur 8 % - 4 þingmenn
Íslandshreyfingin 5 % - 3 þingmenn
Frjálslyndir 1 % - 0 þingmenn
2. Önnur spáin er sú raunverulega raunsæja, hvernig ég held að kosningarnar muni fara í raun og veru, þar sem ég er raunverulega bjartsýn manneskja.
VG 24 % - 16 þingmenn
Samfylking 24 % - 15 þingmenn
Sjálfstæðisflokkur 37 % - 25 þingmenn
Framsókn 10 % - 5 þingmenn
Íslandshreyfingin 2 % - 0 þingmenn
Frjálslyndir 5 % - 2 þingmenn
3. Í þriðju spánni nota ég aðstoð, það er í rauninni alveg sama hvað maður notar, ég er vönust tarotspilum, en þetta gæti alveg eins verið telauf, kaffidropar eða krystalskúla, skiptir ekki máli. Spádómar eru eldgömul hefð, einkum hefð kvenna, og ég ber fulla virðingu fyrir þeim, en vara eindregið við að nokkur láti spádóma stjórna lífi sínu. Það er stórháskalegt að mínu mati. Hins vegar finnst mér alltaf gaman að sjá hvort eitthvað óvænt kemur upp í spilunum (sem ég ef ekki snert í hartnær tvö ár) og hvort þetta óvænta er í einhverri líkingu við það sem raunverulega gerist. Ég kem úr sterkum vinkvennahópi þar sem sumar eru raunverulega rammgöldróttar. Átti líka ömmu sem var nokkuð slyng í kaffibollaspám, og gleymi ekki þegar miðaldra fyrrverandi ráðherra kom einhvern tíma og sagði mér feimnislega frá því þegar amma spáði fyrir honum og fleiri úr vinahópi móðursystur minnar.
VG - gengur vel, mjög frjósamur jarðvegur fyrir hugmyndirnar
Samfylking - breytingar í vændum, þarf að nota visku og vera hófstillt og ekki gefa allt upp
Sjálfstæðisflokkur - gerjun, leggur (eða þarf að leggja) áherslu á kvenlegu þættina í flokknum
Framsókn - góð samvinna og forysta gefur ýmsa möguleika, þarf að gæta sín á hégómagirnd
Íslandshreyfingin - sameining eða samstarf leiðir til hamingju - eitthvað gott gerist
Frjálslyndir - einn maður yfirskyggir alla hina - áhrif hans á aðra en samherja eru óljós
Hmmm, allir fengu þokkaleg spil, sem er merkilegt því í rauninni eru álíka mörg ,,góð" og ,,vond" spil í bunkanum. Mér finnst þetta lykta af umræðuþætti þegar fyrstu tölur liggja fyrir, allir hafa unnið! Átti ekki von á þessu, en ég svindla ekki, þannig að þetta eru niðurstöðurnar, hvor t sem mér líkar betur eða verr . Eitt merkilegt kom upp, það er eins og laufið (stafirnir) séu ríkjandi. Vona að það viti á græna stjórn ;-)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook