Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Nokkrar bækur í tilverunni
Bækur hafa áhrif - hér eru nokkrar sem virkuðu á mig. Áskil mér rétt á að breyta listanum, en svona er hann í dag.
-
Jón Helgason: Úr landsuðri
Ljóð Jóns Helgasonar fræðimanns og skálds eru yndisleg, allt frá Afmæli kattarins til Áfanga. Lesið þau öll, oft!
***** -
Germaine Greer: The Obstacle Race
Listasagan hennar Germaine Greer - uppáhalds feminismabókin mín
**** -
Sigurður Guðmundsson: Tabúlarasa
Ætla ekki að reyna að skýra hvers vegna þessi heillar mig mest, þið verðið bara að lesa hana ... eða ekki.
***** -
E. H. Carr: What is history?
Bókin sem réð úrslitum um að ég varð sagnfræðingur.
*** -
Hómer: Illionskviða
Las hana mölbrotin á spítala og fannst hún flott.
**** -
Steinunn Sigurðardóttir: Sífellur
Steinunn er flott ljóðskáld
**** -
Eleanor H. Porter: Pollýanna
Ótrúlega skemmtilegur heilaþvottur, virkar enn (stundum).
*** -
Antoine de Saint-Exupéry: Litli Prinsinn
Lífsspeki og húmor.
****
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tang Hua vinkona mín datt inn á msn í dag og eftir að við höfðum spjallað aðeins saman um pólitíkina og mótmælin sagði hún mér að nú væri ár uxans runnið upp, raunar í gær. Við erum venjulega ekki mjög lengi á msn, svo ég ákvað að fletta þessum árum bara sjálf upp á netinu. Fráfarandi ár, ár rottunnar, er kennt við auð (!) og það hlýtur þá að merkja líka að þýða að þegar auðurinn yfirskyggir allt þá getur hann líka horfið. Árið sem nú er hafið er ár uxans. Það lofar alveg sæmilegu, merkir góðan efnahag með mikilli vinnu og dugnaði. Á það ekki bara að duga?
Annars er þessi pest sem ég var að glíma við í fyrri viku búin að koma mér aftur á kné, enda fór ég þokkalega bratt af stað eftir að vera búin að liggja í pestinni í viku. Þannig að ég vona að þið sem hugsanlega fáið þessa pest gætið ykkar vel, ekki fara of snemma eða of hratt af stað aftur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.2.2009 kl. 03:17 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Athugasemdir
Ég skrifaði eitthvað um ár Uxans í Vikuna, held þá nýjustu, og þetta verður svona eins og þú lýsir og svo kom eitthvað meira fyrir hvert merki.
Sendi þér góðar batakveðjur!!!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 27.1.2009 kl. 19:49
ÆÆ láttu þer batna
Sædís Hafsteinsdóttir, 27.1.2009 kl. 21:18
Góðan bata og áfram með skemmtilegt blogg.
TARA, 27.1.2009 kl. 22:17
Góðan bata
Aprílrós, 27.1.2009 kl. 23:21
Takk, takk, auðvitað er hættulegt að fullyrða svona lagað, því það kemur í hausinn á manni, ég stalst nefnilega til þess að gefa sjálfri mér bæjarleyfi í kvöld, eins og fram kemur í næstu bloggfærslu. Jæja, þannig er nú það.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 28.1.2009 kl. 00:41
Þarf svo greinilega að fara að kíkja í Vikuna, sú sem liggur frammi er að verða gegnumlesin (með Innlits/Útlits drop-out viðtalinu).
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 28.1.2009 kl. 01:08