Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 154
- Frá upphafi: 575852
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 119
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Nokkrar bækur í tilverunni
Bækur hafa áhrif - hér eru nokkrar sem virkuðu á mig. Áskil mér rétt á að breyta listanum, en svona er hann í dag.
-
Jón Helgason: Úr landsuðri
Ljóð Jóns Helgasonar fræðimanns og skálds eru yndisleg, allt frá Afmæli kattarins til Áfanga. Lesið þau öll, oft!
***** -
Germaine Greer: The Obstacle Race
Listasagan hennar Germaine Greer - uppáhalds feminismabókin mín
**** -
Sigurður Guðmundsson: Tabúlarasa
Ætla ekki að reyna að skýra hvers vegna þessi heillar mig mest, þið verðið bara að lesa hana ... eða ekki.
***** -
E. H. Carr: What is history?
Bókin sem réð úrslitum um að ég varð sagnfræðingur.
*** -
Hómer: Illionskviða
Las hana mölbrotin á spítala og fannst hún flott.
**** -
Steinunn Sigurðardóttir: Sífellur
Steinunn er flott ljóðskáld
**** -
Eleanor H. Porter: Pollýanna
Ótrúlega skemmtilegur heilaþvottur, virkar enn (stundum).
*** -
Antoine de Saint-Exupéry: Litli Prinsinn
Lífsspeki og húmor.
****
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Næstu stórtíðindi stjórnmálanna - ný könnun
28.12.2008 | 01:32
Ný könnun hefur leyst krónukönnunina af hólmi, sú náði litlu flugi og er því lokað, en flestir veðjuðu þó (réttilega) á að krónan myndi halda sjó eftir að hún yrði sett á flot (32%). 21% bjuggust við að hún drukknaði, en annars dreifðust svörin mjög og m.a. merktu heil 6% við þann valkost að ESB tæki hana upp!
Nýja könnunin snýst um næstu stórviðburði í pólitíkinni, endilega takið þátt og ef fleiri tillögur koma fram má alltaf nota athugasemdakerfið.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Athugasemdir
Krónan var ekki sett á flot, hún var sett í flotkví, sem er haldið á floti með reglugerðum, eða brimbrjótum.
Hún hvorki flýtur né sekkur
Magnus Guðmundsson 28.12.2008 kl. 01:39
Krónan er að falla aftur eftir að hún var sett á flott þannig að hún hefur alls ekki haldið sjó.
Styrkur gjaldmiðils felst í stöðugleika, ekki dramatískum sveiflum.
Lúðvík Júlíusson, 28.12.2008 kl. 01:53
Kannski er merkilegast að halda sjó í ölduróti og þá þarf oft að gera ráðstafanir.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 28.12.2008 kl. 02:00
Krónan hefur ekki enn verið sett á flot. Gjaldeyrishöft þýða að hún er ekki á floti en samt fellur hún! Blaðamenn hafa skemmt sér við orðaleiki eins og að króna fljóti með kút og kork sem er algjört bull, annaðhvort er hún á floti og markaðurinn ræður hennar verði eða ekki...
Róbert Viðar Bjarnason, 28.12.2008 kl. 02:20
Það kæmi mér ekki á óvart að næstu pólitísku stórtíðindi verði þau að Samfylkingin kippi stólnum undan Ingibjörgu Sólrúnu. Ástæður? Jú, skv. nýlegri blaðagrein flokksbróður hennar þá lætur hún samþykkt landsfundar flokksins um ESB sig engu skipta (lék þann leik líka í Kvennalistanum þegar hún ætlaði þvert á stefnuskrá Kvennalistans að kjósa með aðild Íslands að EES). Hún hefur vaðið yfir eins og fíll í glerbúð: Gefur flokkssystkinum sínum langt nef og hótar samstarfsflokknum að fari hann ekki að vilja hennar þá sé samstarfinu lokið. Það er ekki spurning í mínum huga að margir hugsa henni þegjandi þörfina.
Bið að heilsa Simba
You know who 28.12.2008 kl. 02:48
Ég verð að viðurkenna að grein Stefáns Jóhanns kom mér á óvart, þótt ég héldi að ég fylgdist sæmilega með og hafi heyrt efnislega ýmislegt í þessa átt. En það þurfti samt að stafa það ofan í mig að Samfylkingin hefði sett þessa fyrirvara, og svo er auðvitað farið ða hártoga það á ymsa vegu. En að setja Ingibjörgu Sólrúnu af, nei, það finnst mér ekki líklegt. Mér hefur fundist Samfylkingin oft vera henni ótrygg, hef á tilfinningunni að það séu ýmsir sem kalla mætti ,,back-stabbers" í kringum hana, og þá oft í málum þar sem við eigum skoðanalega samleið, en mér finnst ekkki líklegt að þessi hjörð sem mestu ræður þar hreki hana frá í þessu máli, og gildir þá einu hvaða samþykktir hafa verið gerðar.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 28.12.2008 kl. 09:22
Engin ráðherraskipti Anna mín, því miður. Allt er miður þessa dagana í pólitíkinni nema VG í skoðanakönnunum en það breytir litlu í deginum.
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.12.2008 kl. 10:40
Það var ekki tilviljun að ég taldi ,,engin ráðherraskipti" til stórtíðinda :-|
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 28.12.2008 kl. 14:09
Spennandi mánuðir framundan í íslenskri pólitík. Ég spá því að Sjálfstæðismenn felli ESB aðildarviðræður, nema þjóðin fái að kjósa um slíkt og þá aðra kosti. Ef það gengur eftir er væntanlega stjórnarsamstarfinu sjálfhætt eins og ISG sagði og frægt er orðið
En hver veit svo sem þetta eru ruglingslegir tímar
Vilborg G. Hansen, 28.12.2008 kl. 23:10
Já þetta eru sannarlega áhugaverðir, óvissir og mjög ruglingslegir tímar.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 29.12.2008 kl. 02:49