Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.4.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 576682
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Nokkrar bækur í tilverunni
Bækur hafa áhrif - hér eru nokkrar sem virkuðu á mig. Áskil mér rétt á að breyta listanum, en svona er hann í dag.
-
Jón Helgason: Úr landsuðri
Ljóð Jóns Helgasonar fræðimanns og skálds eru yndisleg, allt frá Afmæli kattarins til Áfanga. Lesið þau öll, oft!
***** -
Germaine Greer: The Obstacle Race
Listasagan hennar Germaine Greer - uppáhalds feminismabókin mín
**** -
Sigurður Guðmundsson: Tabúlarasa
Ætla ekki að reyna að skýra hvers vegna þessi heillar mig mest, þið verðið bara að lesa hana ... eða ekki.
***** -
E. H. Carr: What is history?
Bókin sem réð úrslitum um að ég varð sagnfræðingur.
*** -
Hómer: Illionskviða
Las hana mölbrotin á spítala og fannst hún flott.
**** -
Steinunn Sigurðardóttir: Sífellur
Steinunn er flott ljóðskáld
**** -
Eleanor H. Porter: Pollýanna
Ótrúlega skemmtilegur heilaþvottur, virkar enn (stundum).
*** -
Antoine de Saint-Exupéry: Litli Prinsinn
Lífsspeki og húmor.
****
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Hugsjónir og mænuskaði
14.9.2008 | 17:11
Samtök sem berjast fyrir bættum hag fólks með mænuskaða eru að fara í mikla fjáröflun á næstunni og ég ætla rétt að vona að allir verði tilbúnir að leggja þessum málstað lið. Elfa vinkona mín Gísladóttir (sumir muna best eftir henni sem Beggu frænku á Stöð 2) var hér í sumar og langaði að vera með í einhverju slíku átaki, eins og því kraftaverkaátaki sem gert var í þessum málaflokki fyrir 20 árum að mig minnir. Ragnheiður Davíðsdóttir hefur auðvitað verið pottur og panna í þessu máli og ég gleðst því innilega yfir því að hún keyrir málið áfram núna þótt Elfa hafi ekki náð að vera með í þessu átaki á meðan hún var á landinu (hún er leikhússtýra með meiru í Washington-fylki í Bandaríkjunum núna en bjó áður í Kanada). Og nú er allt á fullri ferð í málinu. Það er svo margt hægt að gera með samstilltu átaki.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 15.9.2008 kl. 12:15 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Athugasemdir
Ég ætla að vona að sem flestir taki þátt í þessari fjáröflun.
Linda litla, 16.9.2008 kl. 09:09
Þarft mál sem þarf að fá stuðning sem um munar.
Anna Ólafsdóttir (anno) 16.9.2008 kl. 20:08
Brynja skordal, 16.9.2008 kl. 22:54