Haustiđ og House

Mér finnst komiđ haust í sjónvarpsdagskrána, House er byrjađur. Venjulega er ţađ ţannig á sumrin ađ jafnvel fólk sem er ađ reyna ađ rćkta upp sjónvarpsáhuga, eins og ég er farin ađ gera eftir ađ houseég uppgötvađi hvílík hvíld svona heilalaust sjónvarpsgláp getur veriđ, gleymir tilvist ţess langtímum saman. Helst ađ ég rumski ţegar ég heyri af Monk á sumarkvöldi. En međ haustinu koma ţessir ţćttir einn af öđrum, House og haustlaufin, Greys Anatomy og vetrarstormarnir og loks American Idol og jólakreditkortareikningurinn. Mér finnst full fljótt ađ House sé kominn, fá lauf fallin og flest grćn ennţá nema rauđa röndin međfram einhverri akbrautinni sem ég brunađi framhjá. Hitastigiđ framundan segir mér ađ House eigi ekki ađ vera byrjađur. En House er kominn á kreik og minnir á óhjákvćmilega komu vetrarins, einn góđan veđurdag.

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband