Blágresiđ festir rćtur
15.8.2008 | 01:19
Nei, ţetta er ekki pólitísk frétt. Ţannig er mál međ vexti ađ ég hef veriđ ađ reyna ađ koma blágresi til hér fyrir aftan sumarbústađinn, og nú sé ég ađ blágresiđ sem ég flutti af baklóđinni okkar í Blátúninu á Álftanesi er búiđ ađ skjóta góđum rótum hér í Borgarfirđinum og virđist ćtla ađ lifa góđu lífi hér. Veit hins vegar ekki hvernig verđur međ blágresisfrćin mín, sem ég setti niđur fyrr í sumar. Ţađ verđur allt ađ koma í ljós. Eftir ţennan frekar fúla dag í sögu borgarinnar er ţó alltaf gott ađ geta fjallađ um eitthvađ skemmtilegt sem er bćđi blátt og grćnt, og ţá á ég sannarlega ekki um sjallana og framsókn.
Hann Trausti, fyrrverandi nágranni minn, mikill og einlćgur kommi, sagđi viđ mig, ţegar ég varđ međ óbeinum hćtti til ţess ađ gatan okkar var skírđ Blátún: Anna, hvernig gastu gert mér ţetta? Mér til málsbóta get ég sagt ađ ég er hrifin af mörgum litum en verđ ađ viđurkenna ađ orđiđ Blátún hafđi sérstakan sess í huga mér frá ţví ég horfđi yfir á fallega húsiđ Blátún viđ Kapaskjólsveg af fjórđu hćđinni í blokkinni minni ţegar ég var lítil. Ţannig ađ ţegar viđ byggđum úti á Álftanesi ţá fékk ég leyfi eins afkomandans í Blátúni til ađ nota nafniđ á húsiđ okkar og ţađ var síđan yfirfćrt á götuna. Í bakgarđinum er ađ sjálfsögđu góđ blágresisbreiđa og fleiri falleg bleik og blá blóm blómstrandi, en blágresinu ánetjađist ég í sveitinni minni á Sámsstöđum í fljótshlíđ.
Athugasemdir
Til hamingju međ blágresiđ....hvíld ađ lesa um jurtir. Blágresi keypti ég síđata sumar en ţađ kom ekki upp í vor.............
Hólmdís Hjartardóttir, 15.8.2008 kl. 01:22
Ég lenti líka í ţessu í fyrra, en vona ađ harđgeru jurtirnar mínar úr Blátúni komi aftur upp nćsta sumar, alla vega eru ţćr komnar vel af stađ núna.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 15.8.2008 kl. 01:30