Hrikalega flott Eurovision-lög

Það hafa oft verið flott lög í Eurovison. Framlög seinustu tveggja áranna frá Íslandi eru meðal minna uppáhalda. En hér er smá skammtur af óvæntu og fyrirsjáanlegu frá Eurovision, lög sem ég elska:

Fyrst sigurlagið 1963, ef þið ætlið bara að hlusta á eitt, þá er það þetta:

 

 

Æjá, ég verð líka að hafa þetta með, þótt ég sé þegar búin að nefna það:

Nú vantar mig bara hið vinsæla Vi gratulerar, sem er norska útgáfan af Congratulations, laginu sem Cliff vann Eurovision EKKI með, heldur vann eitthvert lag sem ég held ég hafi ekki heyrt síðan. En maður var að gera annað 1968, fór í kröfugöngur í Osló - stúdentauppreisnin var annað hvort búin eða ekki byrjuð þegar ég kom þangað í lok maí en þess í stað var hægt að fara í kröfugöngu gegn innrásinni í Tékkó (vor í Prag) - og það var sko ekki ein ganga heldur nokkrar, vinstri menn voru til að mynda með fleiri en eina (ég í einni þeirra) og hægri menn ábyggilega með eina eða fleiri og jafnvel miðjumenn. En norska þjóðin söng: Vi gratulerar til heiðurs brúðkaupi Haraldar og Sonju.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Eins og vanalega þá get ég ekkert heyrt... en efast ekkert um að lögin séu góð.

Eigðu góða helgi mín kæra.

Linda litla, 16.5.2008 kl. 10:37

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

skemmtilegt, þetta verður spennandi, þó svo að ég hafi ekki alveg verið að fíla danska lagið sem var valið !

blessi þig á fallegu föstudagskvöldi

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 16.5.2008 kl. 17:16

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband