Baráttudagurinn 8. mars
8.3.2008 | 13:07
Þegar ég var unglingur fannst mér 9. mars merkilegastur marsdaga. Þá átti litla systir nefnilega afmæli. Hún á enn afmæli 9. mars, og er meira að segja að segja að ferma miðbarnið á morgun. Í millitíðinni hef ég líka eignast son sem á afmæli 4. mars, mikinn feminista. En 8. mars hefur í mörg ár verið sá dagur sem helst hefur fengið okkur mörg til að staldra við og hugsa: Hvar erum við stödd í baráttunni gegn misrétti í garð kvenna? Hvar erum við stödd í dag, árið 2008?
Ofbeldi gegn konum er rætt af meiri festu og einurð en nokkru sinni fyrr, þökk sé Stígamótum, Kvennathvarfinu, baráttuhópum kvenna og karla.
Dómar í málum er varða ofbeldi gegn konum eru skammarlega vægir, kusk á hvítflibba vegna bloggs er hærra metið en líf og limir kvenna sem beittar eru ofbeldi.
Konur í valdastöðum eru fleiri og frjálsari en fyrr.
Víða um heim hafa konur enga möguleika á að komast í valdastöður, ekki einu sinnni til mennta. Fjármálaheimurinn er nánast kvenmannslaus í kulda og trekki (þótt vitað sé að fyrirtæki sem konur stjórna taka minni áhættu og fari síður á hausinn, áminning í ótíðinni) og menn hiksta á þeim möguleika að kjósa konu í valdamesta pólitíska embætti heims.
Launabilið milli karla og kvenna hefur minnkað.
Launabilið milli karla og kvenna (óútskýrður launamunur) er enn til!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Til hamingju með daginn!
Eins og þú segir þá eiga ekki allar konur kost á menntun. Mig langar að bæta við að í sumum löndum þar sem þær þó eiga kost á menntun er þeim haldð utan við völd og áhrif með því að tiltaka sérstaklega í lögum hvað störf konur mega vinna. Þannig geta stjórnvöld í þessum löndum sagt: Konur hafa nákvæmlega sama aðgang að menntakerfnu og karlar (en um sérlögin er aldrei talað). Í þessum sömu löndum og fleiri löndum til er landlæg trú á að strákar séu betur gefnir en stelpur (Guð má vita hvernig þetta rugl varð þetta) og foreldrar senda strákana í skóla en halda stelpunum heima og þannig viðhalda þeir bágri stöðu kvenna í löndum sínum: Skapa dætrum sínum nákvæmlega sama ömurlega lífið í fátækt, fáfræði og aðstöðuleysi og mæður þeirra og ömmur bjuggu við.
En mikið ofsalega er ég hrifin af UNIFEM á Ísland. Aðdáunarvert hvernig konunum í UNIFEM hefur tekist að beina athygli fjölmiðla að aðstöðuleysi kvenna og stúlkna þar sem stríð geisar.
Helga 8.3.2008 kl. 16:10
Sammála öllu þessu, það er svo margt sem kemur í hugann á degi eins og þessum.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 8.3.2008 kl. 16:15
Til hamingju með daginn! Launabilið er ekkert hjá Akureyrarbæ skv. rannsókn. Kv. frá Bleikri orku-fundinum, Akureyri.
Gísli Baldvinsson 8.3.2008 kl. 16:23
Til hamingju öll.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 8.3.2008 kl. 16:33