Konan sem var tekin í vopnaleit í Amsterdam - 1. hluti flugvallaćvintýra

Sem betur fer fyrir okkur öll er flug (nú orđiđ allavega) orđiđ enn öruggari ferđamáti en fyrrum, og hefur ţó alltaf veriđ mjög öruggt, samanboriđ viđ akstur mishćfra viđvaninga (okkar bílstjóranna) á misgóđum vegum. Eitt af ţví sem tryggir ţetta er góđ vopnaleit. Hér er saga sem sannar hversu góđ hún er, svona ađ mestu leyti.

Fyrir rúmum mánuđi var kona tekin í vopnaleit á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. Eflaust gerist ţađ nokkrum sinnum á dag, en ţetta var í fyrsta sinn sem téđ kona lenti í ţessu. Hún hafđi ćtlađ ađ laumast um borđ í Dreamliner-vél TUI í 10 tíma flug til Karabíska hafsins vopnuđ skćrum, sem hún hafđi reyndar ekki hugmynd um ađ leyndust í handfarangri hennar. Ţegar upp komst sótti hún ţađ fast ađ vopniđ yrđi gert upptćkt, en ţađ var bara hlegiđ ađ henni og henni sagt ađ halda áfram svona ţungvopnuđ. Ţegar í áfangastađ var komiđ og konan gat ekki stillt sig um ađ taka mynd af vopninu fann hún í fórum sínum, einnig í handfarangri, hníf og hann fékk ađ vera međ á myndinni, en ţađ vekur spurningar hvernig ţađ vopn komst í gegnum vopnaleitina. 

Eins og lesendur grunar ef til vill er ég ţessi ţungvopnađa kona og sannast sagna rifjast ađrir válegir flugvallaviđburđir upp í framhaldi af ţessu einkennilega ćvintýri. Reyni ađ gera ţví skil í 2. hluta flugvallaćvintýranna. Ţar verđur fjallađ um saklausu smyglarana.unnamed (2)vopnaleit 


« Síđasta fćrsla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband