Ekki snúin af glćpa(sagna)brautinni - hliđarspor og áframhald
1.4.2023 | 01:04
Vatnsliturinn hefur átt hug, hönd og hjarta ţetta misseriđ, en ég er ekki hćtt ađ hugsa (um glćpi). Ţannig ţróast mínar glćpasögur, í hausnum á mér. Ţegar ég fór aftur í fasta vinnu eftir fjögurra ára eftirlaunatíma (sem var erilsamur í meira lagi) ţá var ég langt komin međ glćpasögu nr. 3, en hins vegar var nr. 2 ekki komin út og kom ekki formlega út fyrr en um mánađarmótin maí/júní í fyrra. Hausinn á mér hefur nokkrum sinnum fariđ á yfirsnúning síđan, eins og gjarnan gerist ţegar ég er ađ setja saman andstyggileg plott og hugsa einhver svikráđ á glćpa(sagna)brautinni og tíminn frá útkomu síđustu bókar er engin undantekning. Hef haldiđ í viđ ađ skrá hjá mér allar vendingar á söguţrćđinum og unniđ í einstökum köflum en í augnablikinu er meira eftir óskrifađ af ţeirri sögu en var fyrir rúmu ári ţegar ég henti mér aftur út á vinnumarkađinn. Engin tilviljun ađ ég er ekki ađ fara í páskaflippsreisu í ár, eins og í fyrra (ţegar ég fór til Rómar í annađ sinn á hálfu ári). Fyrir utan fjölskyldusamveru er ég ,,bara" búin ađ skipuleggja ađ hitta tvćr vinkonur, og á ekki nema tvćr hálfklárađar vatnslitamyndir sem gćtu gripiđ hugann. Held samt ađ blessuđ sagan mín fái ađ njóta páskanna ađ ţessu sinni.
Annars hef ég alls ekki lifađ eins glćpasnauđu lífi og ćtlađ mćtti nú í vetur. Tók nefnilega hliđarspor og skellti mér í verkefni sem er glćpagáta sem ţú, lesandi góđur, getur nálgast í símanum ţínum, vćntanlega međ vorinu. Ţá er ćtlunin ađ koma út allmörgum morđgátum og ég á eina ţeirra, og vonandi sjáum viđ fólk hlaupandi međ símana sína út um allar koppagrundir í leit ađ vísbendingum. Sá sem fékk mig til ađ taka ţetta hliđarspor er sami mađur og gaf út vel lukkađ leiđsögukerfi fyrir snjallsíma, kringum.is og eftir samskiptum okkar ađ dćma veit hann svo sannarlega hvađ hann er ađ gera á glćpa(appa)brautinni. Kápan sem hér er sýnd er ekkert endilega sú sem verđur á minni glćpagátu ţegar nćr dregur formlegri útgáfu, en ég held ađ nafniđ haldist. Alla vega nafniđ á höfundinum :-) Leyfi ykkur blogglesendum mínum ađ fylgjast međ.
Svo ţegar útgefandinn minn góđi, á pappírsglćpasögunum tveimur sem út hafa komiđ, kemur heim úr nćstum árlegri langferđ sinni, ţá setjumst viđ sjálfsagt niđur og plönum nćstu skref. Hvort sem viđ ćtlum ađ vera samferđa áfram eđa ekki. Ég er međ ákveđnar hugmyndir og hann er alls ekki skyldugur til ađ vera sammála mér, ţađ vitum viđ bćđi, en fyrst ţurfum viđ bara ađ ná ađ vera bćđi á landinu á sama tíma. Međ fullri virđingu fyrir fjarfundum og ţess konar samskiptum, eru ţetta mál sem mest gaman er ađ rćđa saman yfir kaffibolla og meira ađ segja í há-covid, ţegar hinar bćkurnar mínar komu út, tókst okkur ţađ. Bara spennandi, hvađa leiđ sem viđ veljum, mun áreiđanlega líka halda bloggvinum mínum upplýstum um ţann hluta tilverunnar.
Flokkur: Menning og listir | Facebook