Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 4
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 575860
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Nokkrar bækur í tilverunni
Bækur hafa áhrif - hér eru nokkrar sem virkuðu á mig. Áskil mér rétt á að breyta listanum, en svona er hann í dag.
-
Jón Helgason: Úr landsuðri
Ljóð Jóns Helgasonar fræðimanns og skálds eru yndisleg, allt frá Afmæli kattarins til Áfanga. Lesið þau öll, oft!
***** -
Germaine Greer: The Obstacle Race
Listasagan hennar Germaine Greer - uppáhalds feminismabókin mín
**** -
Sigurður Guðmundsson: Tabúlarasa
Ætla ekki að reyna að skýra hvers vegna þessi heillar mig mest, þið verðið bara að lesa hana ... eða ekki.
***** -
E. H. Carr: What is history?
Bókin sem réð úrslitum um að ég varð sagnfræðingur.
*** -
Hómer: Illionskviða
Las hana mölbrotin á spítala og fannst hún flott.
**** -
Steinunn Sigurðardóttir: Sífellur
Steinunn er flott ljóðskáld
**** -
Eleanor H. Porter: Pollýanna
Ótrúlega skemmtilegur heilaþvottur, virkar enn (stundum).
*** -
Antoine de Saint-Exupéry: Litli Prinsinn
Lífsspeki og húmor.
****
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Sýnishorn af tegundinni - heil kona í ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins!
22.5.2007 | 20:49
Ég hélt það væri liðin tíð að einni konu væri stillt upp í hópi karla og það þætti duga. Greinilega ekki í ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins! Varla að maður trúi þessu, konurnar eru greinilega mjög reiðar en vel tamdar, illu heilli. Nú langar mig að sjá Ástu Möller öskra og Guðfinnu stappa í gólfið.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:58 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Yfir leit hefur fjármálaráðuneytið verið talið það næst bitastæðasta. Ég hefði talið Þorgerði Katrínu næst valda mesta í xD... Þarf leiðandi hefði ég talið að eðlilegast að hún tæki við því ráðaneytinu... En kannski er staðalmyndin um að konur kunna ekki að fara með pening, það sterk í sjálfstæðisflokknum að það hefði aldrei gegnið upp..
Ingi Björn Sigurðsson, 22.5.2007 kl. 21:03
Já, ég er reyndar líka sammála því að sú breyting hefði verið eðlileg og skref í átt gegn fordómunum sem þú nefnir.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.5.2007 kl. 21:04
Já Anna það er vel "agað" fólkið í Sjálfstæðisflokknum þótt kannski lýsi það hroka að segja það. Ég bjóst nú ekki við kraftaverkum frá íhaldinu en 1 kona for craying out loud!! Ég mun brjálast með látum ef Jóhanna verður ekki ráðherra hjá Samfó.
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.5.2007 kl. 21:22
Sjálfstæðismenn eru almennt séð vel tamdir, bæði konur og karlar, eða eins og þú segir mun ljúflegar en ég, agaðir. Nú bíð ég spennt eftir ráðherralista Samfylkingarinnar, alla vega er búið að lofa jafnræði kynjanna þar og það gleður mig virkilega.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.5.2007 kl. 21:26
Hvað með Sjálfstæðar konur? Voru þær ekki byltingarafl innan Sjálfstæðisflokksins ... eða misminnir mig svona ofboðslega?
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.5.2007 kl. 21:28
Þær voru búnar að lyppast niður seinast þegar Sjálfstæðisflokkurinn floppaði í kvenráðherramálunum.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.5.2007 kl. 22:05
Ahhh, ég var eiginlega að djóka.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.5.2007 kl. 22:12
Þá liggur ráðherralistinn fyrir!
Ekki nóg með að kosningalöggjöfin er meingölluð og ekki boðleg í lýræðisríki (eða er þetta kannski allt annars konar ríki hér?) þá eru lögð skollaeyrun við því litla sem kjósendur geta þó gert til að sýna vilja sinn: dómsmálaráðherra endurskipaður í embætti! Er hægt að senda kjósendum lengra nef?
Samanlagt sé ég eina manneskju á þessum ráðherralista sem á erindi í ráðuneyti og það er Þórunn Sveinbjarnardóttir, því þótt ég sé ósammála henni í ESB þá er hún fullfær um að vera ráðherra. Bind vonir við hana í umhverfisráðuneytinu þegar flokkssystkini hennar fara að mæra stóriðjuna. Mínar svartsýnustu spár hafa gengið eftir; Kristján Möller orðinn ráðherra samgöngumála og þar með ferðamála. Það held ég að hann eigi eftir að leggja þeim lið eða hitt þó heldur.
ESB, Anna! Er eftir nokkru að bíða með að undirbúa vörn í því máli? Það ætti ekki að fara á millli mála hvert þetta ráðherralið mun beina sjónum sínum.
Drottinn minn, gangi spár Morgunblaðsins ekki eftir um að ISG sprengi stjórnina eftir tvö ár, þá eru löng fjögur ár fram undan.
HG 22.5.2007 kl. 22:19
Aðeins meira, því núna berast nýjar fréttir með fárra mínútna millibili. "Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, væntanlegur utanríkisráðherra, sagði í kvöld að Samfylkingin myndi halda Evrópumálum á lofti og umræðum um þau gangandi", segir Morgunblaðið. Eigum við að gera okkur vonir um að þessi fulltrúi "samræðustjórnmála", muni sjá til þess að andstæðingar jafnt sem aðdáendur ESB hafi úr jafnmiku fé að spila?
HG 22.5.2007 kl. 22:28
Ég var nákvæmlega að taka eftir sama varðandi ESB og ég var reyndar búin að spá þessu. Mikið rosalega líst mér illa á ef ég hef rétt fyrir mér, en þetta sagði ég þér (held ég). Var líka að sannfæra ýmsa þungavigtarmenn í íslenskum stjórnmálum fyrri ára um að Solla tæki utanríkisráðuneytið, enginn trúði því nema ég.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.5.2007 kl. 22:35