Suđureyri viđ Súgandafjörđ í gćr

Einn af örfáum bćjum á Íslandi sem ég hafđi ekki heimsótt, fyrr en í gćr, er Suđureyri viđ Súgandafjörđ. Viđ Nína systir hoppuđum upp í strćtó viđ Pollinn á Ísafirđi og fórum í gegnum göngin góđu og síđan út međ löngum Súgandafirđi ţar til Suđureyri blasti viđ. Ţar röltum viđ um, fengum okkur frábćrt kaffi á kaffihúsinu (međ húmorískum uppeldisskilabođum á vegg) og kíktum á handverk.

 2013-08-16_16_07_38.jpg

 Besta útsýniđ var auđvitađ á hćstu götunni svo viđ röltum hana nánast út á enda.

2013-08-16_17_00_51.jpg 

Ţótt liđiđ sé á sumar virđist enn nokkuđ mikiđ um ferđalanga í bćnum, bćđi erlenda og súgfirska sem voru ađ pakka saman eftir ferđalög annars stađar um landiđ. Glađlegt yfirbragđ mćtti okkur alls stađar en ţarna fjölgar víst fólki nú og smábátaútgerđin blómstrar og fiskvinnslan virđist ganga út ađ nýta sem mest og best ţann afla sem kemur ađ landi.

 2013-08-16_16_57_45.jpg

Ţótt veriđ sé ađ gera fjölmörg hús upp međ miklum myndarbrag var ţó eitt hálfrifiđ sem vakti sérstaka athygli mína, ég safna nefnilega myndum af bleikum húsum, en ţetta var bleikt ađ innan!

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband