Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 154
- Frá upphafi: 575852
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 119
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćkur
Nokkrar bćkur í tilverunni
Bćkur hafa áhrif - hér eru nokkrar sem virkuđu á mig. Áskil mér rétt á ađ breyta listanum, en svona er hann í dag.
-
Jón Helgason: Úr landsuđri
Ljóđ Jóns Helgasonar frćđimanns og skálds eru yndisleg, allt frá Afmćli kattarins til Áfanga. Lesiđ ţau öll, oft!
***** -
Germaine Greer: The Obstacle Race
Listasagan hennar Germaine Greer - uppáhalds feminismabókin mín
**** -
Sigurđur Guđmundsson: Tabúlarasa
Ćtla ekki ađ reyna ađ skýra hvers vegna ţessi heillar mig mest, ţiđ verđiđ bara ađ lesa hana ... eđa ekki.
***** -
E. H. Carr: What is history?
Bókin sem réđ úrslitum um ađ ég varđ sagnfrćđingur.
*** -
Hómer: Illionskviđa
Las hana mölbrotin á spítala og fannst hún flott.
**** -
Steinunn Sigurđardóttir: Sífellur
Steinunn er flott ljóđskáld
**** -
Eleanor H. Porter: Pollýanna
Ótrúlega skemmtilegur heilaţvottur, virkar enn (stundum).
*** -
Antoine de Saint-Exupéry: Litli Prinsinn
Lífsspeki og húmor.
****
Eldri fćrslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Stysti dagurinn
22.12.2007 | 17:27
Upplifi tvo stystu daga ársins í ţetta sinn. Stóđ endilega í ţeirri meiningu ađ 21. desember vćri stysti dagur ársins en svo var ţađ 22. des. í ţetta sinn alla vega. Slétt sama, mér líkar ágćtlega viđ skammdegiđ og myrkriđ en samt er alltaf gaman ađ fylgjast međ deginum lengjast. Ţótt ég sé ekki eldheitur ađdáandi kulda og gallharđur andstćđingur hálku ţá finnst mér veturinn oftast ágćtis árstíđ. Sumariđ líka. Haustiđ markar endalok sumarsins og af ţeim sökum ekki (lengur) í uppáhaldi hjá mér og voriđ er yfirleitt of kalt til ađ ég kunni ađ meta ţađ. Ţegar litgreiningarfáriđ gekk yfir landiđ var ég lauslega greind sem sumar eđa vetur, mjótt á mununum, en alls ekki sem vor og haust. Passar ágćtlega viđ smekk minn á árstíđum. Mig minnir ađ Steinunn Sigurđardóttir hafi sagt í einhverju ljóđa sinna (finn ekki réttu ljóđabókina eftir hana, ţessa litlu rauđu): Ţađ eru svik í ţessu vori, eins og brosi hrekkjusvínsins ...
« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »
Athugasemdir
Minn tími er hin nóttlausa voraldar veröld. Nú vinnur birtan smátt og smátt sigur á myrkrinu. Bestu jóla- og nýárskveđjur til ţín og fjölskyldunnar međ ţökk fyrir pistlana.
Sigurđur Sveinsson, 22.12.2007 kl. 18:01
Hć elskan mín. Já, ég vissi ađ vetrarsólstöđur yrđu 22. des ađ ţessu sinni vegna greinar sem ég skrifađi í Vikuna, annars hefđi ég örugglega skellt ţeim á 21. des. Eigum viđ ekki ađ segja ađ ţeir hafi veriđ álíka stuttir ...
Ćtlunin er ađ kíkja á ţig á morgun, Ţorláksmessu, međ risastóran pakka. Hringi áđur.
Guđríđur Hrefna Haraldsdóttir, 22.12.2007 kl. 18:29
Mér finnst bara fínt ađ fá tvo stystu daga. Meira spennandi, en nóttleysiđ er líka heillandi, ţótt ég hafi átt mér nokkur sveitaballaár í Rangarvallasýslunni ţegar mađur kom úr dimmu, reykmettuđu umhverfi međ ćrandi hávađa út í sól og blíđu međ fuglasöng fyrir utan Hvolinn og alltaf jafn hissa. Eins gott ađ ég bragđađi ekki áfengi í ţá daga, annars hefđi ég ekki trúađ mínum eigin augum ;-)
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.12.2007 kl. 22:37
Ţessir stuttu dagar geta reynst langir!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 22.12.2007 kl. 22:58
Já, hann var drjúgur ţessi seinni stutti dagur og sá fyrri var bara alveg ţokkalega langur líka.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.12.2007 kl. 01:28
Hlakka til ađ sjá ţig, Gurrí, ég verđ sennilega heima allan daginn (sofandi til hádegis, vonandi) og ţađ verđur bara gaman ađ fá ţig hingađ og taka pásu í heimilisţrifunum, vonandi verđur risajólatré komiđ upp, ţađ er bara veriđ ađ bíđa eftir seinustu steypuvinnunni (já, ţú heyrđir rétt) til ađ geta lagt seinasta parkettiđ, og ekki nema rétt komiđ fram yfir miđnćtti 22. des. ;-)
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.12.2007 kl. 01:30