Sveiflast öfganna á milli í tónlistarhlustun
24.11.2007 | 21:50
Dottin í smá klassískt tónlistarflipp þessa stundina. Skrýtið hvað tónlist hefur sterk áhrif, alla vega á mig. Hef aldrei verið virk sjálf í tónlistariðkun, en þeim mun ákafari hlustandi. Þetta klassíska skot kom þegar ég heyrði að 100 ára ártíð Grieg væri um þessar mundir, nagaði mig í handabökin að hafa ekki drifið mig á sinfóníutónleika þar sem hann var í brennidepli, en bætti það upp með því að tína fram þá diska sem ég fann með Grieg og finna restina á netinu. Fín tónlist og í framhaldi eru nokkrir aðrir klassískir diskar komnir á borðið við hliðina á mér.
Svo sit ég í Megadeth bolnum mínum og hlusta. Margt reyndar skylt með þungarokki af hörðustu gerð og klassík, flottar melódíur og mikill kraftur. Svo datt ég í smá rapp-fíling eina nóttina, ætla að dusta rykið af Rolttweiler og rímum og rabbi við tækifæri og ég er meira að segja farin að hlusta á laugardagslögin eftir Hó, hó hó-ið um daginn, en ekki af mikilli innlifun, enda fíla ég aðallega hó, hó-lagið, ekki hin, en það eru innan um alveg þokkaleg lög þó.
Málið er að það er hægt að skapa sér svo mismunandi andrúmsloft með tónlist og þessa dagana þegar ég læri og vinn mest í stofunni með fjölskylduna og sjónvarpið á fullu í kringum mig, þá dett ég inn í eigin heim á milli þegar eitthvað stórkostlegt hljómar í eyrnaskjólunum (head-phonunum) en uppi í vinnuathvarfinu mínu eru þessi fínu (gömlu) hátalarar mínir sem eru í notkun þegar ég vil láta fleiri njóta.
Athugasemdir
Ef þú ert á klassísku línunni núna ætla ég að plögga smá. Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins verða með tónleika á mánudagskvöld og miðvikudagskvöld kl. 8, í Langholtskirkju. Þau flytja messu í C-dúr eftir Beethoven. Dóttir mín er í kórnum og segir að þetta sé alveg stórkostlegt verk. Það verða einsöngvarar og alles með. Ég kem suður til að fara á seinni tónleikana. Slæ tvær flugur í einu og næ seinni partinum af tónleikum Hrundar Óskar á Domo sama kvöld. Tónlistarveisla framundan
Svo bíður Mugison eftir þér í tónlistarspialaranum mínum þegar þú flytur þig aftur yfir í nútímann 
Anna Ólafsdóttir (anno) 24.11.2007 kl. 22:25
Takk fyrir ábendinguna, nafna, aldrei að vita nema ég taki þig á orðinu og tékki á tónleikunum. Fer eftir því hvernig mér gengur í próflestri og öðrum verkefnum, en þetta lítur vel út alla vega.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 25.11.2007 kl. 01:43
Þessar tímasetningar eru náttúrulega bara vitleysa - sorrý - það er í kvöld, sunnudagskvöld og þriðjudagskvöld sem háskólatónleikarnir eru og svo Dómó líka á þriðjudagskvöld. - Úff hvað þessir dagar renna eitthvað saman í eitt svona stundum
Best að líma bara upplýsingarnar beint úr póstinum:
Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins flytja saman Messu í
C-dúr eftir Beethoven á tvennum tónleikum í Langholtskirkju, sunnudaginn
25. og þriðjudaginn 27. nóvember kl. 20.00. Alls taka um 100 ungmenni þátt
í flutningnum. Einsöngvarar verða Rannveig Káradóttir sópran, Sibylle Köll
mezzósópran, Hlöðver Sigurðsson tenór og Valdimar Hilmarsson bassbaritón.
Auk þess flytur hljómsveitin Hersinfóníuna eftir Joseph Haydn. Miðasala er
á kor@hi.is og kostar miðinn kr. 500 fyrir námsfólk í forsölu en kr. 1000
við innganginn. Aðrir fá miðann á kr. 1000 í forsölu en á kr. 1.500 við
innganginn.
Svona er þetta rétt
Anna Ólafsdóttir (anno) 25.11.2007 kl. 15:07
Gaman að heyra þessa samlíkingu á þungarokki og klassík. Ég er innilega sammála henni. Ég hef enn ekki heyrt þungarokkara toppa Shostakovich :-)
Kristján Kristjánsson, 25.11.2007 kl. 15:11
Takk, þriðjudagur er nær dæmaskilum en miðvikudagur, en samt, ég hef svo rosalega góða reynslu af því að taka sérstökum ábendingum um tónleika, að það er aldrei að vita hvað verður úr. Ég er enn að þurrka tárin eftir að ákveða með rúmlega klukkutíma fyrirvara að skreppa á Mattheusarpassíuna í Hallgrímskirkju, þótt liðin séu rúm tvö ár og ég hafi farið á marga góða konserta síðan.
Þungarokk og klassík, þetta er svo magnað að fá að hlusta, og Shostakovich er sannarlega ofarlega á mínum vinsældarlista líka.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 25.11.2007 kl. 16:55